Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Qupperneq 13

Skólavarðan - 2019, Qupperneq 13
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 13 Tækni / UMFJÖLLUN Ég hef aldrei lært á eitthvað til þess eins að læra á það heldur lært á það með mis- tökum og tilraunum því ég vil gera eitt- hvað með það. kennarar vilja fara á ráðstefnur eða skólaheimsóknir þá þurfa þeir sjálfir að finna einhvern til að leysa sig af. Ég held að skólastjórnendur og sveitarstjórnarfólk geti ekki lengur setið og beðið af sér tæknina. En innleiðing á tækni mistekst þó í 100% tilvika þegar skólastjórnendur halda að það eina sem þurfi að breytast séu tólin en ekki skólinn. Er kennaranám að undirbúa kennara í takt við nýja tíma? Það er í raun ekki hægt að kenna beint á tæknina. Lærdómurinn verður til á meðan þú ert upptekinn við að gera aðra hluti. Þú lærir ekki raunverulega á verkfæri fyrr en þú hefur ástæðu til að nota það. Ég hef aldrei lært á eitthvað til þess eins að læra á það heldur lært á það með mistökum og tilraunum því ég vil gera eitthvað með það. Tæknin uppfyllir ein- hvern annan tilgang. Þetta er ekki ósvipað því að læra á hljóðfæri. Þeir sem vilja læra að spila á gítar gera það til dæmis af því þeir vilja læra að spila eitthvað ákveðið lag. Þú lærir ekki bara G af því þú vilt það heldur af því að það er G í einhverju lagi. Það er eins með tækninotkun. Ég held að kennaranám sem hjálpar nemendum að tileinka sér hugarfar þess sem prófar nýja hluti, setur spurn- ingamerki við það hvernig við gerum hlutina og er tilbúinn að breyta því sé að undirbúa kennara í takt við nýja tíma, alltaf. Kennaranám er ekki að undirbúa kennara í takt við nýja tíma með því einu að kenna þeim forritun eða hvernig á að nota iMovie. Þetta snýst um „mindset“ en ekki „skillset“ og því fyrr sem fólk sér það, því betra. Hvernig verður kennslustofan árið 2050? Ég hef ekki hugmynd… og það er svo spennandi. Twitter: @IngviHrannar www.ingvihrannar.com Hlaðvarp: Menntavarp Lærum meira þegar námsleiðir eru fjölbreyttar Lísa Ólafsdóttir og Mira Esther Kamallakharan eru í 10. bekk Réttar holtsskóla. Þær segja snjalltæki vel til þess fallin að gera námið áhugaverðara og skemmtilegra. Þær segja hins vegar að símar séu vaxandi vandamál í skólastofunni, sífellt áreiti sem getur haft víðtæk áhrif. Skólavarðan lagði þrjár spurningar fyrir Lísu og Miru. XX Finnst ykkur snjalltæki, símar eða spjaldtölvur, bæta einhverju við kennslu? Já, snjalltæki geta opnað nýjar leiðir við að læra, aukið áhuga og svo veita þau okkur aðgang að endalausum upplýsingum. Þess vegna finnst okkur að snjalltæki ætti að nýta til að brjóta upp kennslustundir og auka fjölbreytileika námsins. Í íslensku erum við að lesa Gísla sögu Súrssonar og skemmtilegustu tímarnir eru þegar við förum í Kahoot, sem er forrit þar sem hægt er að setja upp spurningar og svör. Nemendur nota svo símana til að svara og keppa sín á milli. Við notum einnig Quizlet í tungumálakennslu til þess að auka orðaforða og finnst okkur við einfaldlega læra miklu meira þegar námsleiðirnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar. XX Geta þessi tæki haft truflandi áhrif á nemendur í kennslustund? Við tökum greini- lega eftir því að símar eru vaxandi vandamál í skólum og hafa truflandi áhrif í tímum. Krakkar geta ekki lagt símana frá sér og eru alltaf með þá uppi við. Þetta leiðir til þess að þegar þau fá „notification“ á skjáinn eða þegar þau heyra þetta „ping“ þá er ekki annað hægt en að athuga hvað er í gangi. Þetta er einskonar „fíkn“ þ.e. maður verður ósjálfrátt spenntur og vill ólmur kíkja á símann um leið og maður fær skilaboð. Við tölum af eigin reynslu og setjum því alltaf símann á „do not disturb“ og höfum hann ofan í tösku í kennslustundum. Þetta sífellda áreiti truflar ekki bara nemandann sem er í símanum heldur alla nem- endurna í kring. Þá minnkar einbeiting allra sem hefur áhrif á líðan nemenda í kennslu- stundinni. Lausn á þessu gæti verið að geyma síma í símahólfum fremst í stofunni. Flestar ef ekki allar kennslustofur í Réttó eru með þessi símahólf, sem eru þó sjaldan notuð. Það mætti nota hólfin og sækja svo símana þegar þörf er á, vonandi sem allra oftast, þar sem það að blanda notkun snjalltækja í kennslu er snilld og ættu kennarar virkilega að reyna að nýta sér það á skapandi hátt. XX Kunna unglingar að lifa með þessari tækni? Þetta snýst að okkar mati ekki endilega um skjátíma heldur frekar um það hvað ung- lingar eru að gera í símanum og hvernig þeir eru að nýta hann. Við notum símana okkar ekki bara til að vera á samfélgasmiðlum heldur í allskonar hluti, t.d. sem lítið sjónvarp, hlaupa- úr, til þess að búa til myndbönd, til að læra ný tungumál, til að tala við vini og ættingja hvar sem er í heiminum og svo auðvitað til að sækja alls kyns upplýsingar í tengslum við námið. Það er því erfitt að segja að unglingar noti símann sinn of mikið. Við erum að gera margt lærdómsríkt og notum þessi tæki á skapandi hátt. Þar sem að við höfum alist upp við þróun þessara tækja þá kunnum við að okkar mati að lifa með þeim. Þetta er bara spurning um það hvernig við nýtum tækin á uppbyggilegan hátt. Sjónarhorn ungmenna Lísa Ólafsdóttir og Mira Esther Kamallakharan héldu fyrirlestur sem bar yfirskriftina Snjall- tækjanotkun – sjónarhorn ungmenna á morgunverðarfundi „Náum áttum hópsins“ á Grand Hótel Reykjavík, 20. mars 2019. Meira um það á www.naumattum.is. Lísa og Mira segja að ekki beri að horfa einvörðungu til skjátíma hvers unglings heldur miklu frekar til þess hvað er verið að gera í símanum hverju sinni.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.