Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Síða 15

Skólavarðan - 2019, Síða 15
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 15 Tækni / UMFJÖLLUN Möguleikarnir endalausir „Við þurfum alltaf að halda á lofti umræðunni um hvaða áhrif tæknin og samfélagsmiðlar geta haft á líf okkar – og spyrja okkur hvort tæknin sé til bóta eða hvort hún hefti okkur á einhverjum sviðum, í námi til dæmis. Þetta snýst um forvörn og er kannski ekkert ósvipað og var talað um tóbaksreykingar árum saman – það hafði þau áhrif að mjög góður árangur náðist í að halda unglingum reyklausum.“ Anna María segir að á meðan börn séu frædd um tölvutæknina þá sé ekki ástæða til að banna síma í skólum. „Ég er ekki hlynnt slíku banni. Það er nefnilega þannig að ef við leggjum fram áhugaverð verkefni, í hvaða námsgrein sem er, þá vinna krakkarnir vel og þau eru ekki að nota tölvur eða síma í annað á meðan,“ segir Anna María og bætir við að heilt yfir gangi þetta vel en auðvitað hafi líka komið upp vandamál sem tengist tölvunotkun. „Málið er að taka á slíku strax, ræða við nemandann og reyna að finna lausn.“ Anna María segir möguleikana endalausa þegar snjalltæknin er annars vegar. Hún segir þó að betra væri ef fleiri öpp væru til á íslensku. „Það má auðvitað gera mun betur í þessu og einkum finnst mér vanta fleiri og fjölbreyttari verkefni sem tengjast lesskilningi. Ég hef heyrt nemendur á unglingastigi tala um að þeir vilji ná meiri árangri þar en því miður er ekki margt í boði fyrir unglingana. Þó vil ég segja að það er margt gott að finna á vef Menntamálastofnunar – til dæmis Viskuveituna sem er eldgamalt námsefni en kennir með ágætum hætti hvernig á að nota bókasafn og tölvur sem hluta af hugmynd um margmiðlunarver.“ Spjaldtölvuvæðingin hefur verið hröð síðustu árin, ekki síst í skólastarfi. Kennarar þurfa að fylgjast gríðarvel með og vera í stakk búnir að nota þessi tæki. En eru þeir það? „Já, engin spurning. Þeim fer fækkandi sem eru óöruggir en að sjálfsögðu þurfa þeir að njóta stuðnings við innleiðingu tækni og í framhaldinu. Við búum afar vel hér hvað þetta varðar; erum með tölvuumsjónarmann innan skólans og svo fáum við spjaldtölvuteymi Kópavogs reglulega í heimsókn. Stuðningur þarf að vera markviss og eins þarf skólinn að hafa skýr markmið í þessum efnum. Við fengum til dæmis lista yfir þau öpp sem spjaldtölvuteyminu fannst að allir kennarar ættu að kunna á. Listinn var sendur á kennara og þeir merktu við þau forrit sem þeir þekktu og fengu svo kennslustund í hinum.“ Anna María er sjálf dugleg að fylgast með þróuninni. „Já, ég er á kafi í þessu og reyni að deila öllu sem mér þykir markvert á blogginu mínu eða á Twitter. Svo eru kennarar og aðrir líka duglegir að segja mér frá forritum og öðru sem þeir rekast á. Þannig hjálpumst við að í þessu.“ Nemendur í Hörðuvallaskóla fá spjaldtölvu til einkanota.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.