Skólavarðan - 2019, Page 16
16 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
UMFJÖLLUN / Tækni
Börnum er eðlis-
lægt að fikta,
skoða og snerta
Fjóla Þorvaldsdóttir, sérkennari í leikskólanum Álfaheiði,
segir mikilvægt að börn fái tækifæri til að tileinka sér
tæknina í gegnum leik. Spjaldtölvur skili fjölbreyttu og
skapandi skólastarfi.
S njalltæki eru góð viðbót við annað námsefni sem leikskólinn hefur upp á að bjóða. Mikilvægt er að ung börn séu
ekki einungis neytendur stafræns
efnis í tækjunum og noti þau sér
til afþreyingar heldur læri þau að
nýta þennan búnað sem verkfæri og
námstæki,“ segir Fjóla Þorvaldsdóttir,
sérkennari í leikskólanum Álfaheiði í
Kópavogi.
Fjóla hefur áralanga reynslu
af innleiðingu á upplýsingatækni í
leikskólastarfi, hefur tekið þátt í fjölda
þróunarverkefna í þessum málaflokki
og í fyrra lauk hún M.Ed prófi með
áherslu á tölvu- og upplýsingatækni.
Fjóla segir að þar sem spjaldtölvur
hafi verið notaðar í leikskólum hafi þær
skilað fjölbreyttu og skapandi skóla-
starfi. Börnin læri að afla sér þekkingar,
vinna úr alls konar efni, búa til stafrænt
efni og deila því með öðrum.
„Það er afar mikilvægt að börnin
fái tækifæri til að læra á upplýsinga-
tæknina í gegnum leik. Leikurinn er
námsleið barna í þessu sem öðru sem
þau læra í leikskólanum. Börnum er
eðlislægt að fikta, skoða og snerta og
þau eiga þess vegna auðvelt með að
læra á smáforritin,“ segir Fjóla.
Hún segir stórkostlegt að fylgjast
með börnum uppgötva möguleika
spjaldtölvunnar þegar kemur að
tjáningu. Margmiðlunarbúnaður gerir
það að verkum að börnin koma sköpun
sinni á framfæri enda mörg smáforrit
í spjaldtölvum sem auðvelda sögu- og
myndgerð. „Þetta er spennandi tækni
og segja má að spjaldtölvur henti
börnum vel enda eru þær meðfæri-
legar og hannaðar til að virka hvar og
hvenær sem er. Spjaldtölvur eru ekki
einungis með innbyggðri myndavél,
búnaði til hljóð- og kvikmyndatöku og
búnaði til gagnavinnslu heldur eru þær
einstaklega notendavænar fyrir unga
notendur.“
Auka úthald og bæta árangur
Fjóla segir börnin dugleg að finna sér
efnivið og fái þau hæfilega hvatningu
og leiðsögn þá séu þau fljót að finna
sér myndefni. „Það er líka skemmtilegt
hvernig börn taka myndir frá öðrum
sjónarhornum en fullorðnir og engar
ýkjur að segja að þau taki oft frumlegri
og betri ljósmyndir en hinir fullorðnu.
Þau er óhrædd við að gera ýmsar tilraun-
ir með myndavélina og oftar en ekki
kemur útkoman skemmtilega á óvart,“
segir Fjóla.
Fjóla hefur lengi sinnt sérkennslu
og segir hún tilkomu spjaldtölva hafa
haft í för með sér byltingu. „Sérkennarar
eru sammála um að spjaldtölvurnar
hafi í för með sér fjölbreytta möguleika
í vinnu með börnum og einstaklings-
miðuðu námi. Spjaldtölvurnar virka afar
hvetjandi á börn sem áður var erfitt að fá
til samvinnu; þær auka úthald og bæta
árangur einstakra nemenda – og þeir fá
tækifæri til að vinna á hraða sem hentar
þeim.“
Fjóla segir að rannsóknir sýni að
spjaldtölvur séu ávallt nýttar á skapandi
hátt innan leikskólans. „Snjalltæki eru
ekki notuð til afþreyingar í leikskólum
hér á landi,“ segir Fjóla.
Ég hef upplifað það
margoft í kennslu
hversu mikið gagn
þessi smáforrit gera.
Þau eru mörg börn-
in sem hafa lært að
bera fram rétt mál-
hljóð með Lærum og
leikum með hljóðin
svo dæmi sé tekið.
Twitter
fa
ce
bo
ok
.c
om
/K
en
na
ra
sa
m
ba
nd
Is
la
nd
s
fa
ce
bo
ok
.c
om
/s
ko
la
va
rd
an
@
K
en
na
ra
sa
m
ba
nd
@
ke
nn
ar
as
am
ba
nd
#snjallirnemendur
Aðalheiður Anna Erlingsdóttir • @adalheidur91
Það var svo gaman í síðustu námslotu í
@Haskolinn_Ak! #Kennaranemar fengu að prófa
allskyns tæki og tól #kenno_ha #menntaspjall
#snjallirnemendur #snjallvagninn #komduaðkenna
Grunnskólinn á Ísafirði • @grisafjordur
Lego í 2.bekk #snjallirnemendur
Anna Maria Thorkelsd • @Kortsen
Model UN fundur hjá 9. bekk Hörðuvallaskóla
#snjallirnemendur #menntaspjall #Hörðuvallaskóli
Anna Maria Thorkelsd • @Kortsen
Multitasking, nemandi í enskutíma notar
símann til að hlusta á enska skáldsögu og
sinnir prjónaverkefni í prjónavali á sama tíma.
#menntaaspjall #snjallirnemendur
Margrét Þóra Einarsd • @margretthora
Tæknihringekja í lotu hjá #kennaranemar í
#kenno_ha í @Haskolinn_Ak Snjallvagninn
fenginn að láni hjá @MSHA_UNAK #menntaspjall
#snjallirnemendur