Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Síða 18

Skólavarðan - 2019, Síða 18
18 SKÓLAVARÐAN VOR 2019 UMFJÖLLUN / Tækni Styrkir Gauti hefur fengið ýmsa styrki í gegnum árin vegna þessa verkefnis, aðallega frá Garðabæ og menntamálaráðuneytinu. Þá hefur hann fengið tækjastyrki hjá fyrirtækjum. „Samsung-umboðið lánaði mér til dæmis búnað sem ég er ennþá að nota. Ég er ekki að vinna þetta allt frítt. Vissulega hef ég ekki fengið hverja einustu mínútu borgaða en hluti af þessu flokkast sem undirbúningstími minn fyrir kennslu.“ Gauti hefur fengið ýmis viðbrögð við myndböndunum á síðunni og segir að einn aðili hafi skrifað að hann hafi bjargað skólagöngu hans. „Takk fyrir að bjarga lífi mínu með þessu vídeói.“ „Mjög áhugavert.“ „Takk. Þetta hjálpaði mér að komast í gegnum erfiðan part í lífi mínu.“ „Þú ert búinn að kenna mér meira en stærðfræðikennarinn minn. Elska myndböndin þín. Þau hjálpa mjög mikið.“ „Þú hjálpar svo mikið þegar maður er að læra heima fyrir próf. Takk fyrir.“ „Takk, karl sem ég þekki ekki.“ Ég veit að íslenskir krakkar í útlöndum nota þetta líka en ég er með fleiri tegundir af myndböndum „Takk, karl sem ég þekki ekki.“ G auti Eiríksson er úr Reykhóla-sveit og kynntist stórkostlegri náttúrunni þar þegar hann var að alast upp. Hann flutti suður til að stunda menntaskólanám og stundaði svo nám á náttúrufræðibraut við FVA (Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akra- nesi). „Ég var kominn með algert ógeð á skóla þegar ég kláraði stúdentspróf með herkjum árið 1996. Ég ákvað eftir stúd- entspróf að vera í einn vetur fyrir vestan og fór að vinna í þörungaverksmiðjunni um sumarið. Íþróttakennarinn í skól- anum í Reykholti var í fæðingarorlofi, auk þess sem það vantaði náttúrufræði- kennara, en ég hafði verið að þjálfa í ungmennafélaginu heima og því fannst skólastjóranum upplagt að fá mig til að kenna íþróttir, sund og náttúrufræði. Ég fór að kenna um haustið en það hafði ekki hvarflað að mér að fara í þetta starf eða að þetta starf ætti við mig. Ég hafði svo sem ekki skap í það heldur og það tók veturinn að læra að hemja það. Ég var rúmlega tvítugur þarna og átti það til að vera pínu skapbráður – en í dag er ég það alls ekki.“ Gauti flutti til Reykjavíkur eftir þennan vetur og hóf nám í líffræði við Háskóla Íslands. „Ég hafði fundið að kennslan átti við mig en mér fannst líffræðin ekki eiga eins vel við mig og hóf ári síðar nám við Kennó og tók stærðfræði og líffræði sem sérsvið þar og útskrifaðist árið 2002. Ég fór að kenna í grunnskóla í Hafnarfirði, þar sem ég kenndi í þrjú ár, og fór svo að kenna við Álftanesskóla þar sem ég er búinn að kenna í nærri því 14 ár. Ég er raungreinakennari í 7. - 10. bekk og svo kenni ég mínum umsjónarbekk, sem í vetur er 9. bekkur, stærðfræði og náttúrufræði en ég byrjaði með þau í 7. bekk.“ Ýktur í upphafi Gauti fór haustið 2013 ásamt þáverandi skólastjóra Álftanesskóla á ráðstefnu í Keili um vendikennslu. „Ég vissi mjög lítið um þetta annað en að vendikennsla snerist um myndbönd. Ég hef lengi viljað skoða nýjar leiðir í kennslu eins og í upplýsingatækni og tók ég þátt í því fyrir rúmum 10 árum að þýða stóran forritapakka í náttúrufræði. Þegar ég gerði tilraunina með forritin þá notaði ég þau og glósur. Ekkert annað. Krakk- arnir fengu ekki einu sinni bók þannig Rúmlega 600.000 áhorf Gauti Eiríksson, raungreinakennari og umsjónarkennari í Álftanesskóla, hefur á undanförnum árum útbúið YouTube myndbönd tengd náttúrufræði- og stærðfræðikennslu sem hafa hjálpað bæði nemendum hans og öðrum nemendum, hér á landi og erlendis. Þá hefur hann bætt við myndböndum um önnur efni á síðuna sína. Svava Jónsdóttir skrifar að ég var áður búinn að gera tilraunir með eitthvað annað en kennslubækur. Þessi ráðstefna í Keili stóð yfir í heilan dag og voru þar bæði íslenskir og erlendir fyrirlesarar og vinnustofur og á leiðinni heim hugsaði ég með mér að þetta væri eitthvað sem mig langaði til að skoða og spurði skólastjórann hvort ég mætti ekki prófa. Það var svona hálfur mánuður í skólasetningu og það tók mig nokkra daga að finna út úr tæknilega hlutanum; hvernig ég myndi fram- kvæma þetta og hvernig ég vildi gera þetta. Ég er búinn að venda hverjum einasta náttúrufræðitíma síðan. Það var rosaleg vinna í byrjun en ég bý ekki til myndbönd fyr- ir hvern einasta tíma í dag af því að ég á orðið svo mikið efni. Ég byrjaði þó ekki alveg strax að búa til myndbönd fyrir stærðfræðitíma af því að ég gat ekki gert allt í einu.“ Gauti segir að hann hafi í upphafi verið svolítið ýktur í þessu – hann nýtti myndböndin í tímum og lagði eingöngu áherslu á þau og reyndi að láta nemend- ur vinna sem mest í tímum. „Í dag er ég farinn að blanda saman vendikennslu og beinni kennslu. Þetta er þó svolítið Uppi í rúmi Gauti hefur gert alls konar æfingar þegar kemur að hljóðupptöku. „Það er tvennt sem gerir kennslumyndbönd góð og hefur ekkert með útskýringarnar að gera en það eru gæðin á hljóðinu og hljómfallið í röddinni. Ef það er ekki gott á fólk erfiðara með að meðtaka það sem verið er að segja. Ég tek orðið upp eiginlega öll mín myndbönd uppi í rúmi með sæng í kringum mig til að dempa hljóðið. Ef ég tæki hljóðið upp til dæmis inni í eldhúsi þá væri það eins og ég væri inni í tómri tunnu og það myndi glymja í öllu. Svona einfaldir hlutir skipta líka máli.“ Þess má geta að Gauti er einnig áhuga- ljósmyndari og heldur úti ljósmyndasíðu. https://500px.com/gautieiriksson

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.