Skólavarðan - 2019, Qupperneq 25
Kristín Valsdóttir / VIÐTAL
Kristín segir að um sé að ræða
fyrstu rannsóknina sem gerð er á
háskólamenntun listamanna á Íslandi.
„Mér finnst það ekki vera spurning að
við sem erum stjórnendur innan Lista-
háskólans eigum að horfa til þess hvað
það er sem skiptir máli. Eitt af því sem
kemur fram er að það þarf kannski að
vinna meira saman milli listgreina. Það
er líka þörf fyrir að við opnum kannski
á meistaranám þar sem allar listgrein-
ar koma saman í skapandi vinnu;
ekki bara í kennslufræði. Það má líka
segja að niðurstöður rannsóknarinnar
hafi haft áhrif á uppbyggingu nýrrar
námsleiðar við listkennsludeild.
Það hversu ánægðir nemendur hafa
verið með samtal á milli ólíkra greina,
samhliða markmiðum okkar að fjölga
kennurum sem nýta sér aðferðir lista í
námi og kennslu, varð til þess að nú í
haust verður í fyrsta sinn boðið upp á
kennaranám við deildina fyrir þá sem
lokið hafa BA- námi í öðrum greinum
en listum. Þeir geta þannig tekið
meistaragráðu í kennslufræðum með
áherslu á aðferðir lista í skólastarfi.“
Kristín segir að doktorsnámið
sé langt ferðalag. „Ég segi eiginlega
að doktorsgráða sé gráða í þraut-
seigju og úthaldi. Það var hins vegar
skemmtilegt ferðalag og góð tilfinning
að hafa tekið sér tíma og orku til þess
að kafa svona vel ofan í viðfangsefnið
sem er nátengt vinnu minni. Það er
ómetanlegt að mínu mati að hafa kafað
svona djúpt; ekki bara praktískt heldur
einnig fræðilega, samhliða því að móta
starfið. En ég er líka voðalega fegin að
vera búin.“
sérfræðingur í kennslufræði eru hér jafn-
vel listamenn á heimsmælikvarða í námi
og þar með sérfræðingar í sínu fagi. Við
nálgumst öll viðfangsefnið kennslufræði
listgreina á jafnréttisgrunni. Það að
tileinka sér nýja sjálfsmynd sem list-
kennari meðfram því að vera listamaður
krefst, eins og áður segir, tíma og lenging
kennaranámsins hefur því töluvert að
segja. Þessi námsmenning sem ég talaði
um leggur einnig áherslu á ígrundun í
náminu og að finna tíma fyrir samtal
vegna þess að hluti af því að þróa nýja
sjálfsmynd felst í því að maður verður að
fara svolítið inn á við. Það er ekki nóg að
hlusta, tala og lesa um eitthvað heldur
þarf nemandinn að íhuga hver hann er í
þessu samhengi og prófa sig áfram. Það
að skrifa dagbók, eins og ég lét nemendur
gera, gerir þeim meðal annars kleift að
ígrunda markvisst það sem þeir voru að
gera og tengja við fyrri reynslu.“
Að fjölga góðum listkennurum
Kristín segir að aðalmarkmiðið með
doktorsverkefninu sé að byggja upp
og þróa gott nám og mennta fleiri
góða listamenn til að verða kennarar.
Niðurstöðurnar geti nýst við þróun og
uppbyggingu frekara náms á meistara-
og doktorsstigi fyrir listamenn. „Ég er
listkennari og markmið mitt hefur alltaf
verið að efla listirnar inni í menntakerf-
inu. Fókusinn í doktorsverkefninu er
því á það sem ég er að gera hér. Verk-
efni mitt er að mennta góða kennara
og búa til gott nám fyrir listkennara
en lokamarkmiðið er að fjölga góðum
listkennurum úti í samfélaginu. Ef
tæknin á að taka við ákveðnum hlutum
sem við manneskjurnar erum að gera
í dag þá þurfum við að rækta það sem
er tengt mennskunni, sem er meðal
annars það að tjá sig í listum. Við þurf-
um að leggja áherslu á að rækta góðar
manneskjur, samkennd og skapandi
eiginleika einstaklinga sem geta tekist
á við ófyrirséða hluti í framtíðinni. Og
við getum notað listirnar til að tjá svo
ótrúlega marga hluti sem tækni og vélar
geta ekki. Auk þess eru listir vel til þess
fallnar að varpa nýju og gagnrýnu ljósi
á ýmislegt í samfélaginu og eru þannig
mikilvægt tæki til að efla gagnrýna
hugsun nemenda.“
VIKINGASUSHI
ÆVINTÝRASIGLING
NÁTTURUPARADÍS SEM LÆTUR ENGAN ÓSNORTINN
FERSKT SKELJASMAKK Í BREIÐAFIRÐI
SEATOURS.IS
Kristín Valsdóttir
varði doktors-
rigerð sína „Að
verða listkennari
– lærdómsferill
listamanna“ 25.
janúar 2019.
MYND: HÍ/GUNNAR
SVERRISSON