Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 26
26 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
VIÐTAL / Helga Hauksdóttir
B laðamaður Skólavörðunnar heimsótti fræðslu-svið Akureyrar fyrir skömmu og fékk Helgu
Hauksdóttur til að segja frá starfi sínu,
áskorunum og framtíðarsýn. Hún var
fyrst spurð af hverju hún hefði sóst eftir
starfi kennsluráðgjafa á sínum tíma.
„Mér fannst tímabært að skipta
um starf og mig langaði ekki að verða
gamall skólastjóri sem allir væru orðnir
þreyttir á. Mér þótti sú ákvörðun að
leggja niður móttökudeildina hér í bæ
afar spennandi og í raun má segja að
ég hafi elt erlendu nemendur mína í
Oddeyrarskóla út úr skólanum. Ég sótti
um starfið og er afar þakklát fyrir að
hafa fengið það,“ segir Helga og bætir
við að mikill áhugi á fjölmenningu og
kennslu barna með annað tungumál
hafi líka gert útslagið.
Helga segir það hafa verið pólitíska
ákvörðun að leggja móttökudeildina,
sem áður hafði verið kölluð nýbúadeild,
niður. Það hafði í för með sér að börn
með annað móðurmál en íslensku fóru
eftir það í sína hverfisskóla.
„Þegar hin svokallaða nýbúadeild
var sett á stofn árið 2001 voru sárafáir
erlendir nemendur hér og svo var fyrstu
árin, yfirleitt um 20 krakkar í deildinni.
Um 2006 tók þessum börnum að
fjölga mjög, einkum pólskum krökk-
um. „Þegar margir krakkar af sama
þjóðerni eru í sömu bekkjardeild er
mjög eðlilegt að þau haldi saman og
tali sitt móðurmál. Um leið minnkar
stundum áhuginn á að kynnast öðrum
bekkjarfélögum og að leggja sig fram
við íslenskunám,“ segir Helga. „Þó
svo að móttökudeildir hafi ýmsa kosti
var ég mjög sammála því að erlendir
nemendur færu í sína hverfisskóla. Við
þurfum að huga vel að félagslegri stöðu
þeirra og vinatengslum og það er best
að gera það í því hverfi sem þau búa í.
Þau eiga að vera eðlilegur hluti af öllu
skólastarfi allra skóla.“
Helga segir að fyrsta daginn í nýju
starfi þá hafi hún fengið skrifborð og
stól. „Starfið var óskrifað blað og það
var auðvitað svolítið spennandi. Ég
Tjáning og
samræður lykill
að árangri
Um eitt hundrað börn með annað móðurmál en ís-
lensku stunda nám í grunnskólum Akureyrar. Þau hafa
ólíkan bakgrunn og þarfir þeirra í skólanum eru margs
konar. Helga Hauksdóttir kennsluráðgjafi hefur síðustu
sjö árin unnið við að halda utan um þessa nemendur og
vera kennurum og foreldrum til ráðgjafar og aðstoðar.
Vinnu-
umhverfis
nefnd segir...
XX ...að nú eigi námsráðgjafar
gátlista til að meta vinnuum-
hverfi sitt og aðbúnað eins og
aðrir hópar sem starfa innan
skólastofnana. Gátlistinn á að
ná yfir öll þau atriði sem lúta
að starfi innan skóla. Gátlist-
ann er að finna á heimasíðu KÍ
undir KÍ/Um KÍ/Vinnuum-
hverfisnefnd/Gátlistar.
XX ...að leggja þurfi áherslu á
að minnka álag í starfi kennara
allra skólastiga. Stjórnendur,
ekki síður en kennarar, verða
að vera vakandi fyrir eigin
líðan og annarra og þekkja
einkenni kulnunar. Mikilvægt
er að ræða saman um möguleg
einkenni. Einkennum svipar
stundum til þunglyndis en
tengjast aðstæðum í starfi og
einkalífi á meðan þunglyndi er
viðvarandi og óháð aðstæðum.
Frekari upplýsingar má finna á
heimasíðu KÍ undir KÍ/Ann-
að/Vellíðan í vinnu/Streita og
kulnun.
XX ...að nú á vordögum muni
fara fram könnun á ofbeldi í
garð kennara. Byrjað verður
á grunnskólakennurum og
eru þeir beðnir um að svara
könnuninni um leið og hún
berst. Hún mun berast frá
netfangi Kennarasambandsins
og verður ekki rekjanleg til
einstaklinga.