Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Qupperneq 35

Skólavarðan - 2019, Qupperneq 35
Danmörk / SKÓLASTARF Ófreskjuhan dbókin Þetta viðtal í Folkeskolen.dk vakti mikla athygli meðal danskra skólamanna. Eitt til tvö börn í hverjum bekk haldin skólakvíða Mikið vatn er til sjávar runnið síðan viðtalið við Palle Hansen birtist í kennarablaðinu árið 1997 og margt hef- ur breyst. Fjölmargar bækur hafa verið skrifaðar um skólakvíða og aðferðir til að takast á við hann – og ekki að ástæðulausu. Börnum sem haldin eru kvíða hefur fjölgað mikið á undan- förnum árum. Árið 2006 voru 2.354 dönsk börn greind með skólakvíða en tíu árum síðar voru þau 7.189 talsins – eitt til tvö í hverjum einasta bekk í dönskum grunnskólum. Ófreskjuhandbókin Ófreskjuhandbókin, Mon- stermanualen, vakti mikla athygli þegar hún kom út í fyrra. Höfundarnir eru tveir: Stine Hæk og Gitte Winter Graugaard. Þær hafa báðar unnið með börnum um árabil og skrifað nokkrar bækur, bæði saman og hvor fyrir sig. Þær ákváðu fyrir um það bil þremur árum að setja saman bók sem gæti hjálpað foreldrum og börnum á aldrinum 7 – 12 ára að takast á við og sigrast á kvíða. Bókin er í fjórum hlutum Fyrsti hlutinn heitir Smásagan um baráttu Simone. Þar er fjallað um líðan barns með kvíða og áhyggjur og hvernig sálfræðingurinn Mette hjálpar Simone (sem er tíu ára) og einnig um baráttu hennar gegn áhyggjuófreskjunni. Annar hlutinn ber heitið Ófreskju- skóli fyrir foreldra. Eins og nafnið gefur til kynna er hann ætlaður foreldrum. Þeir eru sendir í Ófreskjuskólann og þar er þeim leiðbeint um hvernig þeir geti á sem bestan og árangursríkastan hátt aðstoðað börn sín. Með réttu aðferðunum og því hvernig foreldrar tala við börn sín næst mikill árangur í baráttuna við ófreskjuna en í þeirri baráttu stendur fjölskyldan saman. Þriðji hlutinn heitir Ófreskjuskóli fyrir börn. Þarna úbúa börnin sína Ófreskjuhandbók en hún verður skjöldur þeirra í baráttunni við áhyggju- skrímslin. Með æfingum í þessum kafla fá börnin aðstoð sem gerir þau hugrakkari. Fjórði og síðasti hluti bókarinnar nefnist Þinn innri styrkur. Í þessum kafla kynnast börnin þremur mismun- andi íhugunar- og hugleiðsluaðferðum sem hver um sig getur styrkt barnið í þeirri trú að það geti sigrast á ófreskj- unum. Jafnframt er í þessum hluta bókarinnar gert ráð fyrir að börnin geti skrifað sína eigin handbók sem þau geti þá gripið til þegar ótti eða kvíði gerir vart við sig. Höfundar bókarinnar hafa í við- tölum sagt að þær aðferðir sem bókin byggir á (og ekki verða nánar útskýrðar hér), kognitiv terapi og metakognitiv terapi, séu ekki nýjar af nálinni. Hér sé hins vegar reynt að setja þessar aðferðir og vinnulag fram með þeim hætti að allir geti skilið og stuðst við. Góðar viðtökur Skemmst er frá því að segja að bókin hlaut góðar viðtökur. Um hana var fjall- að í tímaritum kennara og sömuleiðis í dönskum dagblöðum og tímaritum um uppeldismál. Höfundunum hafa borist ótal bréf frá kennurum þar sem þeir lýsa ánægju sinni með bókina og viðbrögðum nemenda. Dagblaðið Politiken fjallaði ítarlega um bókina sl. haust og ræddi meðal annars við Dorthe Kastberg sem kennir 12 ára börnum í Stepping skólanum á Suður-Jótlandi. Hún hafði lesið bókina strax eftir að hún kom út í byrjun ágúst í fyrra og las fyrsta kaflann, um stúlkuna Simone fyrir bekkinn. Að lestri loknum spurði hún hvort einhver í bekknum kannaðist við lýsingarnar og gæti kannski séð sjálfan eða sjálfa sig í sögunni. Tveir af hverjum þremur nem- endum réttu upp höndina. Helmingur bekkjarins vildi svo gjarna búa til sína eigin ófreskjuhandbók. „Greinilegt var að börnin gátu samsamað sig Simone í sögunni og sum sögðu þegar rætt var um bókina: „ég hélt að engum nema mér liði svona.““ Í viðtalinu við Politiken segir Dorthe Kastberg að nemendum fjölgi sem þurfi, og fái, meðferð vegna kvíða og þunglyndis. Jafnframt fjölgi þeim nemendum sem séu með skerta skóla- sókn vegna þess að þeir ráði ekki við fullt nám. Þegar spurt var um ástæður stóð ekki á svarinu: sparnaður í grunn- og leikskólum og síauknar kröfur um árangur og frammistöðu. Dorthe Kastberg sagði Ófreskjuhandbókina gott og gagnlegt verkfæri fyrir börn, foreldra og kennara. FIMMAN (DAILY 5): • kennsluskipulag sem er þróað af systrunum Gail Boushey og Joan Moser og víða notað í Bandaríkjunum • þjálfar alla þætti lesturs og er auðvelt að laga skipulagið að öðrum námsgreinum • hentar vel í fjölbreyttum nemendahópum og er einfalt að sníða lestrarnámið að hverjum og einum • árangursrík leið að bættum námsárangri og eykur sjálfstæði nemenda í vinnu Kelduskóli/Korpu hlaut hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur skólaárið 2018-2109 fyrir Læsisfimmuna. Nánari upplýsingar um dagskrá og gjald berast þátttakendum með tölvupósti. SÍSL mun á næsta skólaári bjóða upp á nýtt og spennandi námskeið í 6+1 vídd ritunar fyrir yngsta stig grunnskólans, námskeið í K-PALS fyrir leikskóla, nýtt námskeið í PALS lestri fyrir 1. bekk, PALS námskeið í lestri fyrir 2.-8. bekk, námskeið í PALS stærðfræði fyrir leikskóla, 1. bekk og 2.-6. bekk og nýtt PALS leiðtoganámskeið. PALS leiðtoganámskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar veitir Hulda Karen Daníelsdóttir, hulda.karen.danielsdottir@gmail.com SÍSL vinnustofur og námskeið SÍSL – Sérfræðingateymi í samfélagi sem lærir og Kelduskóli/Korpu bjóða upp á kynningu og leiða þátttakendur í gegnum skipulag Læsisfimmunnar (e. Daily 5) þann 12. ágúst kl. 09.00-14.00 í Korpuskóla. facebook.com/KennarasambandIslands facebook.com/skolavardan @Kennarasamband @kennarasamband 172 Við höfum póstað 172 sinnum á Instagram og erum rétt að byrja. Við hvetjum alla lesendur Skólavörðunnar til að fylgja okkur á Instagram, @kennarasamband 3.228 fylgja KÍ á Facebook og fjölgar jafnt og þétt í þeim hópi. Þið lesið fréttirnar á Facebook- -síðu KÍ. @Kennarasam- bandIslands 32.379 Vinsælasta stöðuupp- færsla KÍ á liðnu ári var vísun í fyrirlestur Þórarins Eldjárn á Skólamálaþingi KÍ í október 2018. Ríflega 32 tvö þúsund manns hafa séð færsluna. 1.020 Fylgja Nótunni – upp- skeruhátíð tónlistarskól- anna á Facebook. Gaman að skoða frásagnir og myndir af hæfileikanem- endum í tónlist. Fylgist með því Nótan verður 20 ára á næsta ári. @Notan2019

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.