Skólavarðan - 2019, Page 38
38 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
VIÐTAL / Baldvin Ringsted
Þ að er enginn barlómur í Verk-menntaskólanum á Akureyri. Aðsókn í skólann er góð og nemendur í vetur
eru nær eitt þúsund talsins. Grunn-
deildir skólans eru fullskipaðar og vísa
hefur þurft nemendum frá.
Þetta er ekki alveg í takt við
almenna umræðu um að iðn- og
verknám sé á fallanda fæti hér á landi.
Skólavarðan heimsótti Verkmennta-
skólann á Akureyri (VMA) og hitti fyrir
Baldvin Ringsted, sviðsstjóra verk- og
fjarnáms.
Baldvin var fyrst spurður almennt
um stöðu iðn- og verknáms í skólan-
um.
„Staðan hér er góð. Ég hef lengi
barist fyrir því að við hættum að tala
niður verknámið. Það er alltof algengt
að talað sé um iðn- og verknám eins
og það sé fatlaður bróðir sem allir eigi
að vera góðir við. Við þurfum að hætta
þessu vorkunnarhjali strax en við þetta
má svo sem bæta að það hefur enginn
áhuga á jákvæðri umfjöllun um þetta
nám. Ég hef reynt ýmislegt til að vekja
athygli fjölmiðla á því sem vel gengur
hér – en áhuginn er ekki fyrir hendi,
því miður,“ segir Baldvin.
VMA var stofnaður árið 1984 en
þá voru Iðnskólinn, Húsmæðraskólinn
og framhaldsdeildir Gagnfræðaskólans
sameinaðar. Talið var í fyrstu að
skólinn yrði aldrei stærri en svo að
nemendur væru 700. Nú eru þeir nærri
þúsund og flestir hafa þeir verið um
1.300.
Baldvin hefur verið kennari í
VMA frá árinu 1991. Hann er blikk-
smíðameistari og með BA-próf í ensku.
Kennslugreinar hans eru og hafa verið
enska, grunnteikning, stærðfræði og
vélfræði.
„Við höfum ekki yfir neinu að
kvarta í grunndeildunum; raf- og
rafeindavirkjun, málm- og véltækni og
byggingagreinum. Við erum auk þess
með grunndeild í matvælagreinum
Baldvin Ringsted
hefur kennt í VMA
frá árinu 1991.
Hann segir grunn-
deildirnar fullskip-
aðar og vísa þurfi
nemendum frá.
Eigum að hætta að
tala niður verknám