Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Qupperneq 42

Skólavarðan - 2019, Qupperneq 42
42 SKÓLAVARÐAN VOR 2019 PISTILL tarfsumhverfi Mikill ávinningur gæti orðið fyrir skólastarf af því að skilgreina sérstakt hlutverk leiðsagnar- kennara sem myndi leiða til öflugra lærdóms samfélags inni í skólunum. E ftir því sem skólaganga almennings á Íslandi hefur lengst hefur verið hugað sífellt meira að menntun kennara. Upphaf formlegrar kennara-menntunar hér á landi má rekja næstum 150 ár aftur í tímann og tengist beint baráttu fyrir almenningsmenntun í landinu. Fyrst voru stofnaðir barnaskólar í bæjum og þorpum og jafnframt komið á formlegri kennaramenntun. Að auki þróuðust farskólar um landið og höfðu þeir sem í þeim kenndu hlotið styttri menntun. Þegar skóla- gangan lengdist og framhaldsskólinn varð til eins og við þekkjum hann, var farið að huga sérstaklega að menntun framhaldsskólakennara. Sömu sögu má segja um fjölgun leikskóla og breytt viðhorf til þeirra. Þegar leikskóli var formlega skilgreindur sem fyrsta skólastigið og leikskólaganga ungra barna varð almenn, jókst menntun leikskólakennara einnig. Yfirgripsmikil viðfangsefni Með þessum breytingum koma fram auknar kröfur til kennara og viðfangsefnin sem þeim er ætlað að leysa verða sífellt yfirgripsmeiri og margþættari. Kennaramenntun þarf hvort tveggja að vera alþjóðleg og þjóðleg. Við viljum að hún taki mið af fræðilegum og alþjóðlegum viðmiðum og tengist um leið sögu, menningu, tungumáli og þjóðfélags- breytingum. Kennarar þurfa að hafa mikla kunnáttu í sinni kennslugrein og á sínum kennslusviðum auk annarrar margs konar kunnáttu sem tengist mismunandi aldri og þroska nemenda. Þeir eiga að geta brugðist við fjölbreyttum áskorunum, alltaf með hag nemandans að leiðarljósi. Þeir eiga að stuðla að frjórri hugsun nemenda, efla sjálfstæð vinnubrögð og samstarf við aðra. Einnig þurfa þeir að geta beitt ólíkum kennsluaðferðum, mismun- andi kennslutækni og vinna að námsefnisgerð að ógleymdu námsmati og endurgjöf til nemenda. Stuðningur við kennara Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ Leiðsagnarkennarinn, lykill að velfarnaði Starfsumhverfi sem mætir kennaranemum og nýútskrifuðum kennurum í skólunum um þessar mundir er krefjandi. Því miður hefur nýliðun ekki verið sem skyldi og næstum einn þriðji hluti þeirra sem hefja kennslu hætta því á fyrstu tveimur árum í starfi. Helstu ástæður eru lág laun og álag í starfi og sú er staðan nú að um fjögur þúsund menntaðir kennarar sinna öðrum störfum í samfélaginu. Aðgerðir til að fjölga kennurum Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð rík áhersla á að efla menntun í landinu. Í byrjun mars 2019 kynnti mennta- og menningarmálaráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir aðgerðir sínar í menntamál- um sem eru til þess ætlaðar að fjölga kennurum en megintillagan snýr að launuðu starfsnámi á síðasta ári náms fyrir leik- og grunnskólakennara. Þessum kennaranemum er svo ætlað að njóta leiðsagnar reynds kennara á vettvangi. Til þess að sem best verði tekið á móti kennaranemum á einnig að fjölga kennurum sem hafa sérhæft sig í leiðsögn í íslensk- um skólum. Með þessum tillögum standa vonir til að fækka þeim kennurum sem hverfa til annarra starfa á fyrstu árum í kennslu verulega og fjölga kennur- um sem hafa sérhæfingu í starfstengdri leiðsögn. Tillögurnar miða að því að fjölga leiðsagnarkennur- um um 30 á ári á næstu fimm árum. Ljóst er þó að þess verður nokkuð langt að bíða að allir leik- og grunnskólar státi af einum slíkum því samtals eru skólar á þessu skólastigi vel á fjórða hundrað. Fjármunir og reglufesta Allt eru þetta skref í góða átt en ekki nægilega stór skref þó. Til þess að nýtt starfsnámsár kennara verði til framfara þarf að tryggja skólum fjármuni og markvissan stuðning til að skipuleggja leiðsögn nýliða og stuðning við annað fagfólk. Þá er ekki síður mikilvægt að skilgreina starfsnám þeirra í lögum eða reglugerð og sömuleiðis starf leiðsagnarkennara. Sú

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.