Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 47

Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 47
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 47 Ferðasaga / RADDIR Heimsreisa og heimanám – fer það saman? V ið fjölskyldan erum í skemmtilegu ferðalagi um Blue Zone svæði heimsins, en það eru þau svæði sem rannsóknir hafa sýnt að skari fram úr varðandi langlífi og góða heilsu. Þessi svæði eru fimm. Í Bandaríkjunum er það bærinn Loma Linda og umhverfi, í Costa Rica er það Nicoya skaginn, í Japan er það eyjan Okinawa, í Grikklandi eyjan Ikaria og á Ítalíu er það fjallasvæði á Sardiníu. Við stefnum á að vera mánuð í hverju landi, stundum á miklu flakki, stundum minna. Í ferðinni eru með okkur tveir synir okkar, Patrekur Orri nemandi á fyrsta ári í Verslunarskóla Íslands og Snorri Valur, nemandi í öðrum bekk í Varmárskóla. Auk þeirra eigum við tvo eldri drengi, Viktor Gauta, 22 ára nemanda í Copenhagen Business School og Arnór Ingimund 20 ára, sem varð stúdent frá MS síðastliðið vor og stefnir á nám við Háskóla Íslands næsta haust. Þegar eldri drengirnir voru 10 og 12 ára og Patrekur Orri 5 ára fórum við í svipað ferðalag í heilt ár og náminu sinntu þeir í heimaskóla sem ég aðstoðaði þá við. Ástæðan fyrir því ferðalagi var löngunin til að upplifa heiminn í náinni samveru með börnunum okkar. Þetta ár var okkur dýrmætt og mikil lífsreynsla og enn í dag búa drengirn- ir að því nána sambandi sem myndaðist þeirra á milli. Við ræðum oft þá ferð og höfum því ósjaldan fengið spurninguna „hvenær fæ ég að fara í ferðalag?“ frá Snorra Val. Leysa þarf vandamálin eitt í einu Löngunin til að fara í aðra langa ferð blundaði því í okkur, en hvernig ferðalag og hvert skyldi fara var óljóst. Þegar Guðjón fór á ráðstefnu hjá VIRK í maí 2018 hlustaði hann á hollensk- an lækni tala um hvernig hún vildi breyta nálguninni í heim- ilislækningum í heimalandinu og byggði þar meðal annars á rannsóknum um Blue Zone svæðin. Við höfðum aldrei heyrt um þau svæði, en þarna kviknaði hugmyndin að þessari ferð. Við ræddum þennan fyrirlestur þegar Guðjón kom heim af ráðstefnunni og undirbúningurinn að því ferðalagi sem við erum í núna hófst sama kvöld! Við ákváðum að fara af stað strax eftir áramót 2018/19 en ekki fyrr því í fjölskyldunni eru mikil jólabörn. En með ákvörðuninni var erfiðasti hluti undirbúningsins búinn. Að ákveða að fara og festa dagsetningu. Þegar ákvörðunin er tekin, er næsta skref að leysa vanda- málin sem koma upp, eitt í einu. Það verða alltaf hindranir á leiðinni en málið er að láta þær ekki stoppa sig. Ein algeng- asta spurningin sem við fengum þegar við sögðum fólki frá ferðalaginu sneri að drengjunum og skólunum þeirra. Hvað með námið, er þetta hægt? Þegar hér er komið við sögu höf- um við verið á ferðalagi í 8 vikur, vorum mánuð í Loma Linda og erum þegar þetta er skrifað að klára mánaðarferðalag um Costa Rica. Svo já, þetta er hægt :) Gott viðmót Versló Patrekur Orri var að klára tíunda bekk þegar ákvörðunin um ferðina var tekin og það voru miklar vangaveltur hjá honum um hvaða menntaskóla hann vildi fara í. Hann hefur gaman af ferðalögum og er óhræddur við að prófa nýja hluti, svo það var aldrei spurning um hvort hann kæmi með. Val hans á mennta- skóla stýrðist því aðeins af fjarnámsmöguleika, því honum fannst mikilvægt að dragast ekki aftur úr jafnöldrunum. Vala Mörk iðjuþjálfi og Guðjón Svansson ráðgjafi ásamt tveimur af sonum sínum eru í fimm mánaða ferðalagi í kringum hnöttinn. Báðir drengirnir eru í skóla, annar á fyrsta ári í menntaskóla og hinn á öðru ári í grunn- skóla. Á ferðalaginu sinnir fjölskyldan vinnu og skóla, í bland við að upplifa heiminn og læra af stöðunum sem þau ferðast um. Fjölskyldan fór í zipline-ferð í La Fortuna og þrátt fyrir vansvefta nætur af áhyggjum yfir því að Snorri væri of ungur þá var þetta einn af hans uppáhalds- dögum í ferðinni. Mögnuð upplifun að skoða regn- skóginn ofan frá. Vala Mörk skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.