Skólavarðan - 2019, Page 48
48 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
RADDIR / Ferðasaga
Við skoðuðum nokkra skóla og
eftir kynningu í Versló, þar sem
fjarnám er einn af valkostunum,
varð sá skóli fyrir valinu. Viðmótið
í skólanum er til fyrirmyndar.
„Engin vandamál, bara lausnir“ var
viðmótið sem við mættum í Versló
gagnvart ósk okkar um eina önn í
fjarnámi og aðrar í staðarnámi.
Orri byrjaði því fyrstu önnina
í staðarnámi, komst vel af stað
í náminu og kynntist skólanum
vel. Það hefur eflaust auðveldað
framhaldið og fjarnámið gengur
mjög vel. Það er skipulega sett upp
og kennarar eru snöggir að svara
spurningum þegar þær vakna. Við
foreldrarnir þurfum sjálf að sinna
vinnu gegnum tölvu, svo hann
hefur fyrirmyndina að vinnu-
stundum í ferðinni og fylgir okkar
vinnurútínu að mestu.
Verandi unglingur örlar
stundum á minni hressleika fyrri
part dags, en það bætir hann
upp með mun meiri hressleika
seinnipartinn. Orri sér alveg
sjálfur um að sinna náminu og það
er lítið sem við þurfum að hjálpa
með enn sem komið er. Hann
er sterkur námsmaður og það
auðveldar að sjálfsögðu margt,
en auðvitað koma upp erfiðleikar
öðru hvoru sem við hjálpumst
við að leysa. Hér í sveitum Costa
Rica er netið óáreiðanlegt og því
hefur skipulagshæfileikinn fengið
góða þjálfun. Hann hefur þurft að
tileinka sér þá list „að vinna sér
í haginn“ – nokkuð sem lítið var
stundað heima á Íslandi, enda
ekki þörf á þar sem gott net er
alltaf til staðar.
Honum hentar vel að taka
rispur í einu fagi, ljúka kannski
tveggja vikna vinnu á tveimur
dögum og vera þá lausari við
næstu daga sem nýtast til upplif-
ana í ókunnu landi og ferðalaga
milli staða.
Samverustundirnar stærsti
kosturinn
Við erum núna í Samara í Costa
Rica, en svo er stefnan tekin á
Japan. Það ferðalag mun taka
fjóra daga og því hefur Orri nýtt
dagana í Samara vel til náms. Í
gær fórum við hin í bæjarferð og
gáfum honum góðan vinnufrið
sem hann nýtti vel – kláraði
verkefni og tók próf. Var svo
hoppandi kátur með útkomuna
þegar við komum tilbaka og eftir
góðan baunarétt (já, við erum
líka að prófa ýmsa nýja rétti
sem innfæddir borða og eru ein
ástæða langlífis hér) þá safnaðist
fjölskyldan saman í óþægilegu
stólunum sem eru hér í húsinu og
horfði saman á mynd. Samveru-
stundirnar eru líklega stærsti
kosturinn við svona ferðalag. Við
höfum bara hvert annað og gæða-
stundirnar eru því mjög margar.
Skólavinna Snorra Vals
Við fengum mjög góð viðbrögð
frá kennurum og stjórnendum
Varmárskóla þegar við komum
með hugmyndina að ferðalaginu
til þeirra. Þau sáu tækifærin í því
að nemandi væri á ferðalagi um
heiminn og við erum dugleg að
hjálpa Snorra við að senda tölvu-
pósta og myndir til bekkjarins.
Snorri er í „heimaskóla“ alla ferðina. Hér er hann í um 34 stiga hita í Playa Grande á gistiheimilinu sem við vorum á. Hann lærði stærðfræði og íslensku
fyrri part dags og seinni partinn var brimbrettakennsla í sjónum.