Skólavarðan - 2019, Qupperneq 50
50 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
NÁMSEFNI / Menntamálastofnun
Myndir vekja
upp nýjar hugsanir
Málþingið Mál í myndum var
haldið í febrúar sl. en að því stóðu
Menntamálastofnun og Kennara-
samband Íslands. Flutt voru áhuga-
verð erindi og er hér gripið niður
í eitt þeirra sem Ingimar Ólafsson
Waage, aðjúnkt við Listaháskóla Íslands,
flutti. Það bar heitið Myndskreytingar í
skólabókum: Samræða um gildi?
„En myndir eru ekki aðeins lýsandi,
þær eru einnig vitnisburður um tíðaranda.
Myndirnar í elstu skólabókunum sem sýndar
eru hér, sýna þrá þjóðarinnar til að móta sína
eigin sjálfsmynd, öðlast eignarhald á landinu
og setja landið sjálft, sögu þjóðarinnar
og menningararfinn í forgrunn. Hlutverk
myndskreytinga í skólabókum snýst því
öðrum þræði um að miðla sameiginlegum
gildum þjóðarinnar, því sem talið væri
einhvers virði – þrátt fyrir að raunveruleiki
barnanna sem lásu bækurnar væri gerólíkur
þeirri gullaldarveröld sem blasti við þeim á
síðum skólabókanna. Ævintýrin eiga sér stað
í sveitinni en barnið sem skoðar myndirnar
situr á svampdýnu á fjórðu hæð í blokk sem
er í byggingu, það er rigning úti og djúpir
pollar á bílastæðinu – og gott ef það er ekki
próf á morgun úr bókinni. Það gætir vissra
mótsagna í þessu samhengi; spyrja má hvort
fortíðarþráin muni reynast okkur gagnleg
í glímunni við veruleikann á mölinni. Þótt
segja megi að afturhvarf til sveitalífsins sé
hvorki líklegt né æskilegt þá má benda á að
við höfðum kannski ekkert annað til að miðla
þeim gildum sem við trúðum á.
Máttur mynda er mikill. Þær höfða til
þeirra sviða hugsunarinnar og skynjunarinn-
ar sem eru handan við fótfestu tungumálsins.
Myndir birta hugsun sem í senn er meitluð
og mótuð annars vegar en óræð og opin
hins vegar. Þannig vekja myndir upp nýjar
hugsanir og ný allsendis ófyrirséð viðbrögð.
Hrint hefur verið af stað keðjuverkun
sköpunar og upplifana. Aristóteles benti á það
að listaverk opni fyrir skilning okkar á hinni
sammannlegu reynslu ekki síst fyrir sakir
eftirlíkingarinnar eða jafnvel eftirhermunnar
og geti þannig lagt orð í belg um hugsanir
okkar um hvernig lífinu skuli best háttað.
Myndir eru fóður fyrir gagnrýna hugsun, þær
bjóða stóru spurningunum heim.“
Myndir birta hugsun
sem í senn er meitluð og
mótuð annars vegar en
óræð og opin hins vegar.
E in mynd getur sagt meira en 1000 orð er frasi sem margir þekkja. Í honum felst að mynd ein og sér
getur sagt merkingarbæra sögu án þess
að henni fylgi orð. Myndir, hvort sem
það eru myndskreytingar, ljósmyndir,
skýringamyndir eða önnur myndræn
framsetning, skipa stóran sess í náms-
efni Menntamálastofnunar og er þeim
ætlað að varpa ljósi á textann og gefa
skýrar upplýsingar. Myndirnar eiga ekki
síður að vekja áhuga og forvitni, virkja
bakgrunnsþekkingu á efninu, styðja
efnislega við textann og bæta jafnvel
ýmsu við hann. Þær geta líka verið
uppspretta samræðna og því vel þess
virði að kennarar staldri við myndir í
námsefni og hvetji til umræðna.
Mikil áskorun felst í því að gera
bók þannig úr garði að hún veki áhuga
lesenda og viðhaldi áhuganum, að
nemendur langi að fletta á næstu síðu
og jafnvel afla sér frekari vitneskju
út fyrir bókina. Til að skapa jákvætt
viðhorf gagnvart námsefni verður
það að vera forvitnilegt, áhugavert og
aðlaðandi.
Áhugi er einn þeirra þátta sem ýtir
undir lesskilning og það er því til mikils
að vinna að glæða áhuga nemenda. Þar
gegna myndir mikilvægu hlutverki og
má nýta þær á fjölbreyttan hátt. Stund-
um er farin sú leið að láta myndirnar
segja ákveðna sögu, annaðhvort í beinu
framhaldi við textann eða sem viðbót
við hann, nokkurs konar hliðarsögu.
Slíkar myndir geta verið í formi
teiknimyndasagna en þær höfða til
margra barna og því er áhugahvetjandi
fyrir þau að sjá þess háttar myndefni
bregða fyrir í lestrarbók. Stundum er
texti í talblöðrum en oft er líka enginn
texti og þá er upplagt að láta nemendur
semja sinn eigin texta sem passar við
teiknimyndasöguna.
Námsefni
Mál í myndum
Elín Lilja Jónasdóttir og Harpa Pálmadóttir
ritstjórar hjá Menntamálastofnun
Í bókinni Hrafninn, í flokknum Milli
himins og jarðar, er m.a. fjallað um
orð og orðatiltæki sem gera má ráð fyrir
að séu börnum framandi. Myndræn útfærsla
teiknarans auðveldar nemendum að tileinka sér orðin
og skilja þau. Þegar þeir rekast síðan aftur á orðin í öðru
lesefni geta þeir hugsanlega kallað fram myndina og tengt
hana við merkinguna.
Hrafninn – námsefni í íslensku eftir Hörpu Jónsdóttur. Sigmund-
ur Breiðfjörð Þorgeirsson teiknaði.
Hrafninn