Skólavarðan - 2019, Page 52
52 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
KENNARINN / Mælistikan
Steinunn Inga mælir með
Hjartahrein list, falsfréttir
og ódýr föt
Hvað á kennari að bralla þegar loksins sér til lands í ritgerðavinnunni,
skýrslurnar eru gátaðar og dæmin reiknuð? Hríðin lemur gluggarúðurnar,
það er ekkert spennandi í sjónvarpinu og ryksugan er biluð.
Follow this
(Netflix)
Áhugaverðir þættir þar sem ungir rann-
sóknarblaðamenn hjá BuzzFeed fara á
stúfana og leita sannleikans. Kafað er m.a.
í djúp netsins, fjallað um falsfréttir og
aðskiljanlegustu hluti eins og dóp, lífsstíl,
hjólabretti og kynlífsdúkkur. Hvergi komið
að tómum kofum og fullt af námsefni.
Þórarinn Eldjárn
Vammfirring (Forlagið)
Yndisleg ljóðabók sem dregur nafn sitt af
frægri kenningu Egils Skalla-Grímssonar um
skáldskapinn sem íþrótt vammi firrða, þ.e.
hina hjartahreinu list. Þórarinn Eldjárn er í
uppáhaldi hjá okkur í KÍ, hann mælir af visku
og yfirvegun um stöðu tungunnar og sitthvað
fleira sem gerir okkur að manneskjum.
Smá pláss
RÚV
Rúmlega 30 þættir á Rúv núll sem finna má
í hlaðvarpi þar sem búið er til smá pláss fyrir
konur. Meðal efnis er femínismi í framhalds-
skólum, konur á skjánum og jólastressið
alræmda. Þáttastjórnendur eru Elín Elísabet
Einarsdóttir og Sunna Axels.
Chef´s Table
(Netflix)
Fimmta sería af
þessum vönduðu
matargerðarþátt-
um. Þetta eru
ekki matreiðslu-
þættir, heldur
er fjallað um
matargerðarlist
og -menningu og sögu frægra kokka. Í fyrsta
þætti seríunnar er sögð saga Christina
Martinez sem flúði frá heimalandi sínu
Mexíkó árið 2009. Hún komst til Banda-
ríkjanna þar sem hún býr og starfar en
litla veitingahúsið hennar var á lista yfir 10
bestu veitingastaði í Bandaríkjunum 2016.
Martinez hefur enn ekki fengið dvalarleyfi í
Trump-landi og berst ötullega fyrir réttind-
um innflytjenda.
Dark Tourist
(Netflix)
Átta rosalegir þættir þar
sem farið er yfir öll mörk
því upplifun ferðamanns-
ins þarf að verða sífellt
æsilegri. David Farrier frá
Nýja-Sjálandi ferðast til
fjarlægra og jafnvel leyndra
staða, hittir furðulegt
fólk og fer í óhugnanlegar
skoðunarferðir. Vissir þú
t.d. að hægt er að þenja spennustigið veru-
lega með því að prófa að skjóta af alvörubys-
su á kunnum aftökustað í Kólumbíu og taka
þátt í blóðugum fórnarathöfnum og vúdú
í Afríku? Ferðaþjónusta í sérflokki fyrir þá
ríku og lífsþreyttu.
Limetown
(Two up Productions)
Fáránlega faglega
skapað amerískt
hlaðvarp um skelfilega
atburði sem gerðust
2004 í Tennessee þegar
óðir vísindamenn
ætluðu að krukka í
mannsheilann og allt
fór úr böndunum. Aðalsöguhetjan er Lia
Haddoc, glúrin rannsóknarblaðakona sem
telur manni auðveldlega trú um að þetta
byggi allt á sannsögulegum atburðum. Hrika-
lega spennandi og sannfærandi ráðgáta, sjö
þættir í hámhlustun og ekki handarvik gert á
bænum þann daginn. Naomi Klein
Þetta breytir öllu (Salka)
Tímabær varnaðarorð
um loftslagsbreytingar
og endalok siðmenn-
ingar ef ekkert verður
að gert. Nýlegar fréttir
af því að Íslendingar
séu Evrópumethafar í
losun kolefnis á mann
eru sláandi áminning
um að við erum ekki
undanskilin vandanum.
Allir geta lagt eitthvað af mörkum, minnkað
plastnotkun eða tínt upp rusl. Við viljum
loftslagsréttlæti öllum heiminum til handa!
Timothy
Schneider
Um harðstjórn
(Forlagið)
„Ef ekkert okkar er tilbúið
að deyja fyrir frelsið, þá
munum við öll deyja undir
harðstjórn“ segir í 20. kafla
bókarinnar sem er með
tuttugu ráðleggingar um hvað megi læra af
tuttugustu öldinni. Önnur ráðlegging snýr
að stofnunum samfélagsins; þær skuli alltaf
njóta verndar og innviðir eigi að vera sterkir,
sama hvort um er að ræða dómstóla, frétta-
miðla eða stéttarfélög. Við í KÍ stöndum vörð
um okkar félagsmenn.
The True Cost
(Netflix)
Mynd um ódýru fötin
og samhengi þeirra við
þrælahald í fataverksmiðj-
um, um fatahaugana sem
hlaðast upp og um meng-
un og markaðshyggju.
Sláandi mynd sem getur
sannarlega nýst sem kennsluefni til að skapa
umræður og vekja áhuga og umhverfisvitund
hjá nemendum.
Steinunn Inga Óttarsdóttir