Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Síða 53

Skólavarðan - 2019, Síða 53
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 53 Dagur leikskólans / UMFJÖLLUN A far góð þátttaka var í ritlistar-samkeppni meðal leikskólabarna sem hleypt var af stokkunum í fyrsta sinn fyrr á þessu ári. Tilefnið var Dagur leikskólans sem er haldinn hátíðlegur 6. febrúar ár hvert. Vel á annað hundrað ljóð, textar og örsögur bárust í keppnina og voru efnistök frjáls. Ritlistarsamkeppnin bar yfirskriftina Að yrkja á íslensku og var liður í vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls sem Kennarasambandið efndi til á Al- þjóðadegi kennara síðasta haust. Bjarkey Sigurðardóttir, nemandi í leikskólanum Jötun- heimum á Selfossi, fékk fyrstu verðlaun fyrir ljóð sitt Sumar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Bjarkeyju verðlaunin á hátíðarathöfn sem fram fór í leik- skólanum Brákarborg að morgni Dags leikskólans. Verðlaunaljóð Bjarkeyjar ber titilinn Sumar. Önnur verðlaun komu í hlut Hersteins Snorra, leikskólanum Ásgarði í Húnaþingi, fyrir ljóðið Skipstjór- inn. Þau Maceij, Indiana Alba, Katla Sól, Helga Katrín og Arnlaug Fanney, leikskólanum Akraseli á Akranesi, fengu þriðju verðlaun fyrir ljóðið Ævintýri. Sólblítt sumar og snakk Efnt var til hátíðarhalda í leikskólanum Brákarborg á Degi leikskólans. Borgarstjóri og menntamálaráðherra voru meðal gesta. Veitt voru verðlaun í ritlistarsamkeppni leikskólabarna. Sumar Sumar er sólblítt, gaman er þá. Að dansa í sumarkjólnum og borða snakk.  Umsögn dómnefndar: Haglega samið ljóð í ætt við ferskeytlu að formi og fjallar um þá tilfinningu þegar sumarið hellist yfir mann af fullum þunga. Orðið „sólblítt“ er ljóðrænt og sérstaklega skemmtilegt og bendir til myndrænnar og skapandi hugsunar ljóðskáldsins.  Skipstjórinn Einu sinni var skipstjóri og lét hann alla gera allt í skipinu en skipstjórinn stýrði bara allan tímann. Skipstjórinn dó og flutti upp í skýin og til Guðs. Maðurinn sem drap skipstjórann var vondur og hann fór til helvítis.  Umsögn dómnefndar: Í ljóðinu Skipstjórinn er sögð saga af lífsbaráttu um borð í skipi, kannski fiskitogara sem aflar þjóðartekna. Illvirki er framið og morðingi fær makleg málagjöld. Mynd af himnaríki og helvíti er raunveruleg í huga ljóðmælanda og munur á réttu og röngu afdráttarlaus, ef allt væri svona skýrt í heimi hér væri gaman að lifa. Ískaldur raunveruleiki úr sjávarþorpi. Ævintýri Það er gaman að fá kakó og kex. Það er gaman að gefa fuglunum og skauta á klaka og finna prik og köngla, finna tyggjó og rusl. Finna eggjaskurn. Finna stór prik. Það er gaman að gefa fuglunum brauð og eiga fugla. Fullt af fuglum. Kannski getum við klifrað í trénu? Umsögn dómnefndar: Mjög glaðlegt og leitandi ljóð með æsispennandi endi sem skilur lesandann eftir hugsi og skapar eftirvæntingu um að enn meira fjör sé í vændum. Dómnefnd var skipuð Haraldi Frey Gíslasyni, rithöfundi og formanni Félags leikskólakennara, Steinunni Ingu Óttarsdóttur, gagnrýnanda og sérfræðingi hjá Félagi framhaldsskólakennara, og Sigrúnu Birnu Björnsdóttur, formanni Samtaka móðurmálskennara og sérfræðingi í jafnréttis- og vinnuumhverfismálum hjá KÍ. Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla veittu leikskólum barnanna sem unnu til verðlauna viðurkenningarvott í formi fjár. Leikskólinn Jötunheimar fékk 40 þúsund krónur og Ásgarður og Akrasel 20 þúsund krónur hvor. Börnin í Brákarborg glöddu gesti með söng og fallegri framkomu. Nokkur þeirra stilltu sér upp með Haraldi Frey Gíslasyni, formanni FL, Lilju Dögg Alfreðs- dóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Ragnari Þór Péturssyni, formanni Kennarasambands Íslands.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.