Skólavarðan - 2019, Page 54
54 SKÓLAVARÐAN VOR 2019
RADDIR / Samstarf
Þ að var veðurbarinn hópur sem hætti sér út í heita lækinn í Reykjadal ofan Hveragerðis einn haustdag síðastliðið
ár. Fljótlega færðist sælubros yfir hvert
andlit og vindur, kuldi og skúraveður
gleymdust um stund. Einhver hafði á
orði að Ísland væri engu líkt. Veðrið
skipti sífellt um ham, gæfi lítil grið, lífs-
háski virtist á næsta leyti, en svo dytti
skyndilega á dúnalogn og til að kóróna
undrið mætti láta fara vel um sig í læk
uppi í óbyggðum, gleyma stað og stund
– og finna unaðinn hríslast um sig.
Við vorum saman komin, lítill
kennarahópur frá fjórum þjóðlöndum,
til að ræða samstarfsverkefni næstu
missera. Öllum fannst viðeigandi að
þessi fyrsti fundur ætti sér stað á Íslandi
því við vorum að leggja drög að vinnu
þar sem vatn var í brennidepli. „Hér er
bókstaflega vatn alls staðar – stundum
til óþurftar, stundum til gleði,“ varð
einum að orði þegar við gengum til
Flöskuskeyti
Vogaskóla
Aðsend grein
Leifur Reynisson
kennari við Vogaskóla