Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 55
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 55
Samstarf / RADDIR
baka eftir baðferðina. Enn ein skúrin
var skollin á en gæðastundin í læknum
yljaði okkur. Hugurinn fór á flug, við
köstuðum fram hugmyndum og leyfð-
um okkur jafnvel að gerast skáldleg.
Verkefnið fékk heitið „Flöskuskeytið“
með vísun til þess að nemendur myndu
senda hver öðrum skilaboð þar sem
fjallað væri um mikilvægi vatns í hverju
landi fyrir sig.
Áherslan á sjálfstæð og skapandi
vinnubrögð
Undirritaður er kennari við Vogaskóla
en skólahald verður þar alþjóðlegra
með hverju árinu sem líður. Sífellt
fleiri nemendur og starfsmenn eru af
erlendu bergi brotnir og alþjóðasam-
starf skólans hefur færst mjög í vöxt.
Evrópskt samstarf er snar þáttur í
starfi skólans og verður hér sagt frá
„Erasmus+“ verkefni sem nýlega var
hleypt af stokkunum en það er kostað af
Evrópusambandinu. Auk Íslands eiga
Litháen, Portúgal og Tékkland hlut að
máli.
Verkefnið byggir á nemendavinnu
en þátttakendur velja áfangann í
frjálsu vali. Nemendur vinna að
mestu saman í litlum hópum auk þess
sem þeir eru í rafrænu sambandi við
félaga sína erlendis. Áhersla er lögð
á sjálfstæð skapandi vinnubrögð þar
sem nemendur sýna frumkvæði og
sveigjanleika í samstarfi við aðra. Snar
þáttur verkefnisins eru skólaheimsóknir
þar sem nemendur kynna afurðir sínar
í samstarfslöndunum. Móttökuskólinn
skipuleggur einnig verkefnavinnu þá
viku sem skólaheimsóknirnar standa
yfir. Lögð er áhersla á að nemendur
kynnist vel erlendum félögum sínum.
Ekki er nóg með að þeir séu í daglegu
samstarfi heldur gista þeir einnig á
heimilum gestgjafanna. Enn fremur fá
ferðalangarnir tækifæri til að skoða sig
um og kynnast menningu hvers lands
fyrir sig.
Auk nemendaferða eru
kennaraferðir til hvers samstarfslands
þar sem verkefnið er þróað og metið.
Ekki er minna um vert að með þeim
ferðum gefst frekara tækifæri til að
skoða aðstæður í hverjum skóla fyrir
sig, styrkja tengslin og kynnast betur
landi og þjóð. Eitt helsta markmið
Evrópusambandsins er að efla skilning
á milli þjóða og má líta á Erasmusá-
ætlunina sem mikilvægan lið í þeirri
viðleitni. Kennurunum sem hingað
komu í haust fannst áhugavert að kynna
sér tækjakost skólans og sjá hversu
mikið skapandi starf ætti sér stað innan
hans. Vöktu sérgreinastofurnar ekki
hvað síst athygli en íslenskir skólar
virðast standa vel að vígi í þeim efnum.
Krakkarnir ófeimnir við hina er-
lendu gesti
Sú hugmyndafræði sem Vogaskóli er
að innleiða um þessar mundir til að
efla áhuga og ábyrgðarkennd nemenda
(uppeldi til ábyrgðar) þótti einnig eftir-
tektarverð sem og frjálslegt fas þeirra og
tungumálakunnátta. Voru krakkarnir
ófeimnir við að ræða við hina erlendu
gesti sem höfðu á orði að það væri ekki
á færi unglinga í þeirra löndum að tjá
sig jafn lipurlega á ensku.
Dagarnir voru vel nýttir þá
viku sem gestirnir dvöldu hér.
Auk vinnufundanna var farið í
skoðunarferðir og heimsóknir. Við
fórum á söfn, skoðuðum Elliðaárvirkj-
un, brugðum okkur í sund, lögðumst
í útivist og fórum hinn skyldubundna
gullna hring. Viðfangsefnið „vatn“
var skammt undan hvert sem farið
var enda var það sem rauður þráður í
samræðum okkar – í gamni og alvöru.
Má í því sambandi nefna friðsæld
Þingvallavatns, ólgandi hverina við
Geysi, kyngimagnaðan kraft Gullfoss og
styrkjandi veigar við Laugarvatn. Allan
tímann skiptust á skin og skúrir en það
var ánægður hópur sem yfirgaf landið
þó veðurbarinn væri.
Kennarar frá
fjórum þjóðlönd-
um komu saman
á fundi hérlendis
síðasta haust.
Tilgangurinn var
að ræða sam-
starfsverkefni
þar sem vatn er í
brennidepli.
Voru krakkarnir
ófeimnir við að ræða
við hina erlendu
gesti sem höfðu á
orði að það væri ekki
á færi unglinga í
þeirra löndum að tjá
sig jafn lipurlega á
ensku.