Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 57
Barnaþing / RADDIR
Barnaþingið kemur
til með að verða
afar nýstárleg og
spennandi leið sem
hefur það að mark-
miði að virkja börn til
þátttöku í málefnum
sem snerta þau og
þjálfa fullorðið fólk til
samræðu við börn.
um að sambærilegt þing hafi verið haldið annars staðar þó
ýmsar leiðir hafi verið farnar til að virkja þátttöku barna víða
um heim. Þann 22. nóvember, verður jafnframt hliðardagskrá
á neðri hæðum Hörpu með börnum á ólíkum aldri þar sem
lögð verður áhersla á barnamenningu, sköpun og samræður.
Það er von umboðsmanns barna að barnaþingið verði til
þess að styrkja þátttöku barna í samfélaginu öllu, í sveitar-
stjórnum, á stjórnsýslustigi en ekki síst skólakerfinu og verði
til þess fallið að hvetja enn frekar skóla til leita fjölbreyttra
leiða til að efla lýðræðisþátttöku barna. Með því móti verði
þingið ekki aðeins mikilvægt fyrir þau börn sem það sækja
heldur muni börn um allt land fá tækfæri til lýðræðislegrar og
virkrar þátttöku, enda er það í takt við grundvallarsjónarmið
Barnasáttmálans um aðkomu barna að stefnumótun og
þátttöku þeirra í ákvörðunartöku í málum sem þau varða. Til
að undirstrika þennan hluta hefur embættið sent grunnskól-
um landins og skólastjórafélaginu bréf þess efnis að skólarnir
nýti tækifærið og haldi lýðræðisþing meðal barna í skólum
í tengslum við barnaþingið, til dæmis á alþjóðlegum degi
barna þann 20. nóvember, n.k. Vel má hugsa sér að tillögur
barna frá slíkum lýðræðisþingum væru kynntar sérstaklega
á barnaþinginu eða væru teknar saman með það fyrir augum
að þær verði innlegg í umræðu þingsins eða við stefnumótun í
málaflokknum að þingi loknu.
Víða um land hafa skólar unnið afar merkilegt starf
við að auka þátttöku barna í skólastarfi. Í tengslum við
barnaþingið væri fengur að því að nýta ólíkar aðferðir við
framkvæmd lýðræðisþinga í skólum og auka þátttöku barna
í daglegu starfi. Með því móti væri hægt að miðla milli skóla
reynslunni af aðferðum sem vel hafa tekist og geta þar með
orðið öðrum hvatning. Á síðasta ári hafði embætti umboðs-
manns barna frumkvæði að tilraunaverkefni með tveimur
skólum í Reykjavík, Landakotsskóla og Laugarnesskóla,
þar sem haldin voru barnaþing sem þóttu takast mjög vel. Í
þeim tilraunum fengu eldri nemendur það hlutverk að stýra
umræðum yngri barna en börnin völdu málefnin sem rædd
voru. Einnig mætti auka verulega rannsóknir innan fræða-
samfélagsins um lýðræðisþátttöku barna og hefur embættið
meðal annars verið í samræðu við háskólasamfélagið um að
sérstaklega verði hugað að þessum þáttum á barnaþinginu í
haust.
Skipulag barnaþingsins þann 21.-22. nóvember er í mót-
un en til að svo stór atburður megi takast sem best skiptir öllu
máli að víðtækt samráð og samstarf eigi sér stað við þá sem
vinna með börnum. Embættið hefur
því sett á fót samráðshóp til að tryggja
aðkomu sem flestra að skipulagningu
þingsins. Í hópnum eru meðal annars
fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands,
Skólastjórafélagi Íslands, Félagi
stjórnenda leikskóla, Menntavísinda-
sviði Háskóla Íslands og Kennarardeild
Háskólans á Akureyrar. Hópurinn mun
hittast nokkrum sinnum á árinu og vera
skipuleggjendum til ráðleggingar um
fyrirkomulag og útfærslur.
Embættið hefur alla tíð lagt áherslu
á að eiga gott samstarf við skólafólk og
börn á öllum skólastigum meðal annars
með heimsóknum í skóla og samræðu
við skólafólk. Ég hef mikinn áhuga á
að heimsækja sem flesta skóla á næstu
árum ekki síst ef slíkar heimsóknir geta
stutt við mikilvægt starf innan skólanna
í að fræða börn um Barnasáttmálann
eða virkja börn til lýðræðislegrar þátt-
töku. Einnig hefði embættið áhuga á að
heyra frá skólafólki og börnum um þær
leiðir sem hafa reynst vænlegastar til
að virkja börn til samstarfs og hvernig
barnaþingið geti sem best þjónað því
markmiði að efla börn, skóla og nær-
samfélag til samtals um málefni sem
brenna á börnum. Með því móti getum
við skapað saman viðburð sem mun
hafa mikilvæg áhrif á börn landsins ekki
aðeins í ár heldur til framtíðar.
Úr lögum um
umboðsmann barna
Umboðsmaður barna boðar til þings um málefni barna
annað hvert ár og skulu niðurstöður og ályktanir
þingsins kynntar ríkisstjórn.
Á þinginu skal fjalla um málefni barna og við
upphaf þess leggur umboðsmaður fram skýrslu um
stöðu þeirra. Í skýrslunni skal m.a. fjallað um stöðu og
þróun í málefnum barna á helstu sviðum samfélags-
ins, þar á meðal um samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi barnsins. Önnur verkefni þingsins ákveður
umboðsmaður barna.
Þingið er öllum opið en umboðsmaður barna skal
bjóða fjölbreyttum hópi barna til þingsins, alþingis-
mönnum, fulltrúum stofnana ríkis og sveitarfélaga,
auk fulltrúa aðila vinnumarkaðarins og frjálsra
félagasamtaka sem koma að málefnum barna.
Seta á þinginu er ólaunuð.
Kennaraferðir
Fararsnið hefur langa reynslu í að skipuleggja
ferðir fyrir kennarahópa, bæði á sýningar og ekki
síður skólaheimsóknir.
Þar er blandað saman áhugaverðum
skólastefnum og sælkeralífi, ásamt léttum
gönguferðum í sveit og borg.
Fararsnið ehf. - Lundur 17, 200 Kópavogi
jonkarl@fararsnid.is