Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.06.2005, Síða 18

Bæjarins besta - 01.06.2005, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 200518 mannlífið Ábendingar um efni sendist til Thelmu Hjaltadóttur, thelma@bb.is sími 849 8699 ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Í dag er miðvikudagurinn 1. júní, 154. dagur ársins 2005 Þennan dag árið1908 komst skólaskylda 10-14 ára barna á þegar fræðslulögin frá 1907 tóku gildi. Þennan dag árið 1908 fékk Hafnarfjörður kaupstaða- réttindi. Bæjarbúar voru þá um 1.500 talsins. Þennan dag árið 1943 var skömmtun fyrirskipuð á gúmmístígvélum nr. 7 og stærri. Ástæðan var mikill skortur á gúmmíi. Þennan dag árið 1976 laug síðasta Þorskastríðinu með samningum við Breta. Þar með viðurkenndu þeir í reynd fiskveiðilögsöguna sem var færð út í 200 mílur 15. október 1975 Heimild: Dagar Íslands. Jónas Ragnarsson tók saman. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Hvað er að frétta? · Herborg Bernharðsdóttir (Bogga Venna) í Fljótavík Á þessum degi fyrir 32 árum ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Helgarveðrið Horfur á föstudag: Fremur hæg austlæg átt, 8-13 m/s allra syðst. Bjart með köflum og stöku skúrir. Hiti 7-14 stig að deginum. Horfur á laugardag: Hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og síðdegisskúrir. Hiti breytist lítið. Horfur á sunnudag: Hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og síðdegisskúrir. Hiti breytist lítið. Horfur á mánudag: Útlit fyrir stífa austanátt og fer að rigna við sunnanlands. Spurning vikunnar Ertu sátt(ur) við fimm mánaða sumarfrí þingmanna? Alls svöruðu 578. – Já sögðu 80 eða 14% – Nei sögðu 473 eða 82% – Hlutlausir voru 25 eða 4% Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Fljótavíkin er himnaríki „Fljótavík er algjört himna- ríki. Það er búið að vera svo gott veður. Eina sem vantar er rigningin því ekki hefur rignt dropa síðan við komum hérna 1. maí. Ágætt væri að fá smá vætu fyrir gróðurinn. Hér er komið hásumar og sólskin upp á hvern einasta dag. Hvönnin er farin að vaxa og aðeins er farið að grænka en grasið ekk- ert farið að spretta að ráði. Það hefur verið alveg ógur- lega kalt og hiti farið allt niður í núll stig. En við finnum ekkert fyrir því inn í húsinu og klæðum okkur bara vel þegar farið er í göngutúr. Randaflugurnar njóta rigningarleysisins og eru mikið á ferðinni. Og það eru svo miklar hlussur að ætti að kalla þær tröllskessur. Fólk er ekkert farið að koma norður nema svona rétt til þess að kíkja. Ég held það sé ekki fyrr en eftir mánaðamót þegar skólarnir eru búnir að fólk fari að koma. Mér finnst voðalega notalegt að vera hérna þó við séum ein. Við höfum allt til alls auk útvarps og síma. Þetta er búið að vera yndislegur tími. Það er ekki hægt að óska sér lífið betra eða skemmtilegra en það er hér í Fljótavík,“ sagði Bogga Venna. Ekki einhliða fækkun í her Bandaríkanna í Evropu Ísland hefur mikilvægu hlutverki að gegna í nýjum Atlants- hafssáttmála, sagði dr. Henry Kissinger. Talsmenn forseta Bandaríkjanna og Frakklands, Richard M. Nixon og George Pompidous, skýrðu frá í gær, að Pompidou hefði lagt áherslu á nauðsyn þess að hafa áfram bandarískt herlið í Evrópu og varað Bandaríkjastjórn við einhliða ákvörðun um að draga úr herstyrk sínum þar. Bandaríkjaforseti hafði fyrir sitt leyti fullvissað Pompidou um, að hann hefði slíkt ekki í hyggju. Viðræður forsetanna með þátttöku dr. Henry A. Kiss- inger, ráðgjafa Bandaríkjaforseta og fundir utanríkisráðherra og fjármálaráðherra landanna hófust laust eftir kl. 10 í gær- morgun á Kjarvalsstöðum. Flöskuskeytið reyndist vera stutt frásögn fjallaferðar þriggja manna fyrir 60 árum. Sextíu ára gamalt flöskuskeyti á fjöllum Tveir fjallgöngugarpar Stef- án Freyr Baldursson og Rúnar Óli Karlsson komumst að því að margt forvitnilegt má finna á fjöllum er þeir fundu flösku- skeyti í ferð sinni á Erni við Skutulsfjörð. Í flöskunni var bréf dagsett fyrir 60 árum. „Við Rúnar Óli Karlsson vorum í skíðaferð á Erninum í síðustu viku og fundum flösku sem innihélt 60 ára gamla „gestabók“. Flaskan sést að- eins frá einu sjónarhorni og rak ég augun í hana fyrir ein- skæra tilviljun þegar ég var að vega mig upp á fjallsbrúnina. Flaskan er staðsett á enda fjallsins Arnarness megin. Flaskan innihélt upprúllaðan pappír og í miðju rúllunnar var miði sem á stendur: Sunnudagurinn 7. júlí 1945 Lögðum upp frá Arnardal upp eftir fjallshryggnum og ætlum eftir endilöngu fjallinu niður Naustahvilft Garðar Ólafsson Gunnar Hjartarson Ólafur Hjartarson Ég athugaði dagsetninguna og var 7. júlí 1945 reyndar laugardagur en göngumönnum gæti hafa skjátlast um mánað- ardaginn, ég sé a.m.k. ekki betur en að það standi sunnu- dagurinn á miðanum. Ef þetta var virkilega skrifað fyrir 60 árum þá er miðinn í ótrúlega góðu ástandi. Flaskan var ekki lokuð þannig að það hefur loft- að vel um innihaldið og sneri hún þannig að það gæti ekki rignt ofan í hana. Pappírinn, sem fyllti vel út í stútinn var morkinn í endann en alveg heill inni í flöskunni. Ég rannsakaði málið aðeins og kom í ljós að Gunnar (f. 1919) og Ólafur (f. 1920) voru bræður Helga Hjartarsonar í Grundargötunni og Garðar Ólafsson var frændi þeirra. Ég hafði samband við son Gunn- ars, Gunnar Þór, vélstjóra hjá Orkubúinu, og staðfesti hann þetta. Við Rúnar Óli sóttum flöskuna á miðvikudag og komum henni til Gunnars Þórs“, sagði Stefán Freyr. Flaskan og bréfið sem fannst á Erninum. 22.PM5 6.4.2017, 09:3718

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.