Vinnan - 01.07.1964, Page 9
V;
innan
7
Hagfræðingfarnir Jóhannes Nordal og
Jónas Haralz störfuðu með' ráðherr
unum að samningagerðinni.
bannig, að tekjur verði óbreyttar þrátt
fyrir styttingu vinnutímans um stund-
arfjórðung og lækkun eftirvinnuálags.
Ríkisstjórnin mun nú þegar beita
sér fyrir lagasetningu um lengingu or-
lofs verkafólks úr 18 dögum í 21 dag
sem svarar hækkun orlofsfjár úr 6%
í 7%.
Þá mun ríkisstjórnin beita sér fyrir
því, að löggjöf verði sett um vinnu-
vernd, þegar tillögur í því efni liggja
fyrir frá Vinnutímanefnd. Einnig
verði haldið áfram athugunum og und-
irbúningi að frekari styttingu vinnu-
tíma.
IV. Húsnæðismál.
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir
ráðstöfunum til úrlausnar í húsnæðis-
málum, er hafi þann tilgang annars
vegar að létta efnalitlum fjölskyldum
að eignast íbúðir, en hins vegar að
tryggja nægar og stöðugar íbúðabygg-
ingar í landinu. í þessu skyni mun
ríkisstjórnin tryggja eftirfarandi:
1) Aflað verði á þessu ári og á fyrri
hluta næsta árs 250 millj. kr. til
þess að mæta þeim umsóknum, sem
lágu óafgreiddar hjá Húsnæðis-
málastjórn 1. apríl s.l. Húsnæðis-
málastjórn ákveður upphæðir þess-
ara lána og setur reglur um upp-
gjör fyrri skuldbindinga sinna.
2) Frá og með árinu 1965 verði komið
á kerfisbreytingu íbúðalána, þann-
ig að tryggt verði fjármagn til þess
að veita lán til ákveðinnar tölu íbúða
á ári, og verði loforð fyrir lánun-
um veitt fyrirfram. Fyrstu árin
verði þessi lán ekki færri en 750
og lánsfjárhæð út á hverja íbúð
ekki lægri en 280 þús. kr. eða 2/3
kostnaðar, hvort sem lægra er.
(Lánin greiðist að hálfu að hausti,
en að hálfu næsta vor). Þessi tala
sé við það miðuð, að tryggð verði
bygging 1500 íbúða á ári, er síðan
fari smáhækkandi í samræmi við
áætlanir um þörf fyrir nýjar íbúð-
ir. Telji Húsnæðismálastjórn það
æskilegt, getur hún fækkað lánum
á árinu 1965 samkvæmt nýja kerf-
inu, enda bætist þá samsvarandi
upphæð við það fé, sem til ráð-
stöfunar verður samkvæmt lið 1)
hér að framan.
3) Hluta þess fjár, sem Byggingar-
sjóður hefur til umráða, verði varið
til viðbótarlána umfram þær 280
þús. kr. á íbúð, sem að framan get-
ur, til að greiða fyrir íbúðabygg-
ingum efnalítilla meðlima verka-
lýðsfélaga. Húsnæðismálastjórn á-
kveður lán þessi að fengnum til-
lögum frá stjórn þess verkalýðsfé-
lags, sem í hlut á. í þessu skyni
skal varið 15—20 millj. kr. árlega.
4) Jafnframt mun ríkisstjórnin beita
sér fyrir öflun lánsfjár til bygging-
ar verkamannabústaða.
Eftirfarandi atriði eru forsendur
fyrir því, að ríkisstjórnin taki á sig
skuldbindingar þær, sem að ofan get-
ur:
a) Lagður verði á launagreiðendur al-
mennur launaskattur að upphæð
1% af greiddum vinnulaunum og
hvers konar atvinnutekjum öðrum
en tekjum af landbúnaði.
Renni skatturinn til Byggingar-
sjóðs ríkisins sem stofnfjárframlag.
b) Til viðbótar við launaskattinn og
það eigið fé, sem Byggingarsjóður
þegar ræður yfir, mun ríkisstjórnin
tryggja honum 40 millj. kr. nýtt
stofnframlag á ári með framlagi
úr ríkissjóði, álagningu nýs skatts
á fasteignir eða með öðrum hætti.
c) Svo verði frá gengið, að ríkisfram-
lag til Atvinnuleysistryggingasjóðs
gangi árlega til kaupa á íbúðalána-
bréfum hins almenna veðlánakerf-
is.
d) Komið verði á nýju kerfi íbúða-
lána fyrir lífeyrissjóði til samræm-
is við þær reglur, sem gilda um lán
Húsnæðismálastjórnar.
Til þess að þessar aðgerðir nái til-
gangi sínum og hið nýja veðlánakerfi
geti byggt sig upp með öruggum hætti
og hægt verði að lækka vexti og haga
lánskjörum í samræmi við greiðslu-
getu alþýðufjölskyidna, verði tekin upp
vísitölubinding á öllum íbúðalánum.
Er þá gert ráð fyrir því, að lánskjör
á íbúðalánum verði þannig, að lánin
verði afborgunarlaus i eitt ár og greið-
ist síðan á 25 árum með 4% vöxtum og
jöfnum árgreiðslum vaxta og afborg-
ana. Full vísitöluuppbót reiknist síðan
á þessa árgreiðslu.
V. Önnur atriði.
Samkomulagið um þau atriði, sem
að framan greinir, er háð því skilyrði,
að samningar náist milli verkalýðs-
félaga og vinnuveitenda, er gildi til
ekki skemmri tíma en eins árs og feli
ekki í sér neina hækkun grunlauna á
því tímabili.
Reykjavík, 5. júní 1964
F.h. ríkisstjórnar Islands:
Bjarni Benediktsson, Emil Jónsson
F.h. Alþýðusambands íslands:
Hannibal Valdimarsson,
Hermann Guðmundsson,
Markús Stefánsson,
Guðjón Sigurðsson,
Jóna Guðjónsdóttir,
Óskar Hallgrímsson,
Eðvarð Sigurðsson,
Björn Jónsson,
Snorri Jónsson.
F.h. Vinnuveitendasambands íslands:
Kjartan Thors,
Björgvin Sigurðsson,
Jón H. Bergs,
Sveinn Guðmundsson,
Gunnar Guðjónsson.
F.h. Vinnumálasambands samvinnu-
félaga:
Sveinn A. Valdimarsson.
------- t ^ —------------
Að kvöidi hins 5. júní óskaði frétta-
stofa útvarpsins þess, að Bjarni Bene-
diktsson forsætisráðherra, forseti Al-
þýðusambandsins, Hannibal Valdi-
marsson, og formaður Vinnuveitenda-
sambandsins, Kjartan Thors, gerðu
grein fyrir samkomulaginu, hver frá
sínu sjónarmiði, með nokkrum orðum.
Útvarpsávarp Hannibals Valdimars-
sonar við það tækifæri var á þessa
leið:
„Heiðruðu hustendur!
Á miðstjórnarfundum Aiþýðusam-
bandsins dagana 14. og 16. apríl s.l.
voru rædd drög að ályktun um
kjaramál. Á síðari fundinum hlaut á-