Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 17

Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 17
komið því við í vertíðarannríkinu að halda félagsfundi fyrir stofnþing. í stjórn Verkamannasambandsins voru kosin: Eðvarð Sigurðsson formaður, Björn Jónsson varaformaður, Hermann Guð- mundsson ritari og Björgvin Sigurðs- son gjaldkeri. — Meðstjórnendur eru: Guðmunda Gunnarsdóttir, Vest- mannaeyjum, Sigfinnur Karlsson, Nes- kaupstað og Óskar Garibaldason Siglu- firði. Næsta þing Verkamannasambands- ins skal halda að ári liðnu, og teijast þau félög, sem í sambandið ganga fram til þess tíma, stofnfélög. Að þinglokum afgreiddi stofnþing Verkamannasambandsins svohljóð- andi ályktun um kjaramálin: „Stofnþing Verkamannasambands íslands haldið í Reykjavík 9.—10. maí 1964 telur, að stefna sambandsins í kjaramálum verkamanna og verka- kvenna nú og í næstu framtíð hljóti mjög að markast af þeirri þróun, sem í þeim efnum hefur orðið á síðari tím- um. Megindrættir þessarar þróunar verða ljósir af þeim staðreyndum, að frá lokum síðari heimsstyrjaldar hef- ur ekki, þegar á heildina er litið, verið um að ræða neinar hækkanir raun- tekna miðað við vinnuframlag og vinnutíma hjá verkamannastéttinni og hvað lægstu laun þeirra snertir, hefur verið um verulegar launaskerð- ingar að ræða. Mismunur milli launa verkamanna og annarra stétta, eink- um hinna hæst launuðu, hefur farið vaxandi og alveg sérstaklega síðustu 4—5 árin. Vinnutími hefur lengzt langt úr hófi fram, svo að vinnuþreki, heilsu og eðlilegum lífsháttum er ógnað. Þessu hefur farið fram þrátt fyrir mjög auknar þjóðartekjur og þar með vaxandi getu þjóðfélagsins, til þess að bæta hag vinnustéttanna, sem að réttu hefði átt að nýta til þess að bæta hag hinna lægst launuðu verkamanna og verkakvenna, sem flestum fremur hafa staðið undir aukinni framleiðslu þjóðarinnar og þar með bættum hag hennar sem heildar. Þessi þróun á sér því ekki stoð í neinu réttlæti og er auk þess andstæð þjóðarhagsmunum þar sem hún hrekur vaxandi fjölda dugmikilla starfskrafta frá undir- stöðuatvinnuvegunum. Verkamannasamband fslands mun skoða það sem meginverkefni sitt að einbeita kröftum félaganna, sem að því standa og samtakamætti þeirra, til þess að hér verði gerbreyting á: ---------- l/innan -------------- Að sem jafnastar og öruggastar kjarabætur til handa verkamanna- stéttinni komi árlega til framkvæmda, vinnutími verði styttur í áföngum og án skerðingar heildartekna, fullkomnu Iaunajafnrétti kvenna og karla verði komið á, á sem allra skemmstum tíma, orlofsréttindi aukin, og hlutur verka- mannastéttarinnar, miðað við aðrar Iaunastéttir, verði bættur. Nú um sinn telur Verkamannasam- band íslands, að megináherzlu beri að leggja á stöðvun verðbólgu og sívax- andi dýrtíðar jafnhliða raunhæfum aðgerðum í framangreinda átt. Stofn- þing sambandsins lýsir því fyilsta stuðningi sínum við nýlega gerða álykt- un ASI um kjaramál og við þann grundvöll, sem þar er lagður að sam- komulagi og samstarfi við ríkisvaldið um stöðvun verðbólgunnar samhliða aðgerðum til raunhæfra kjarabóta. Vill þingið lýsa ánægju sinni yfir því, að alvarlegar viðræður eru nú hafnar um þessi mál milli fulltrúa ASÍ og ríkisstjórnarinnar og telur brýna nauðsyn á, að þeim viðræðum verði lokið hið fyrsta með jákvæðum ár- angri. Þá vill þingið ennfremur lýsa fyllsta stuðningi við þau verkalýðs- félög á Norður- og Austurlandi, 23 að tölu, sem nú eiga í sameiginiegum samningum við atvinnurekendur og telur málstað þeirra sinn málstað, sem það vill styðja af fremsta megni. Fari svo, mót von þingsins, að ekki reynist sá vilji til samstarfs og óhjá- kvæmilegra aðgerða fyrir hendi hjá ríkisvaldinu og samtökum atvinnu- rekenda, er einsætt, að eins og nú er komið málum er þá sá einn kostur fyrir hendi, að verkalýðshreyfingin beiti öllum mætti samtaka sinna, til þess að fá hlut umbjóðenda sinna rétt- an. f því sambandi varar þingið ríkis- valdið af fullkomnum alvöruþunga við öllum hugsanlegum tilhneigingum eða tilraunum til valdbeitingar gegn frjáls um samnings- og samtakarétti verka- lýðssamtakanna og iýsir yfir því, að slíkt verður ekki þolað af hálfu Verka- mannasambandsins hvorki í lengd né bráð. í samræmi við framangreinda stefnu Verkamannasambandsins í kjaramál- um og henni til stuðnings, felur stofn- þingið væntanlegri stjórn sambands- ins að gæta sameiginlegra hagsmuna sambandsfélaganna með sem nánustu samráði við Alþýðusamband íslands og við þau verkalýðsfélög, sem nú eiga í samningum, eða undirbúa nú samn- ingsgerð við samtök atvinnurekenda.“ 15 Snorri Jónsson. IV. Málmiðnaðar- og skipasmiða sam- band íslands Undirbúning allan að stofnun málmiðnaðarmannasambandsins ann- aðist Félag járniðnaðarmanna í Reykjavík. Stofnþingið hófst laugardaginn 30. maí á efstu hæð í húsi Dagsbrúnar og Sjómannafélagsins við Lindargötu. Snorri Jónsson setti þingið með ræðu. Forsetar þingsins voru kosnir: Kristinn Ágúst Eiríksson, Sigurgestur Guðjónsson og Hreinn Ófeigsson, en ritarar Helgi Arnlaugsson og Hannes Alfonsson. Þingið sóttu 37 fulltrúar frá 7 fé- lögum með um 900 félagsmenn. Lög voru samþykkt og almennar um- ræður urðu um helztu félags- og hags- munamál málmiðnaðarmanna og skipasmiða. Ríkti alger einhugur með- al þingfulltrúa um þau mái, og voru menn einnig sammála um brína nauð- syn þess að stofna landssamband til að gæta hagsmuna málmiðnaðar- manna og skipasmiða, hvar sem þeir starfa á landinu. Þingið lýsti yfir fylgi sínu við álykt- un miðstjórnar Alþýðusambandsins um kjaramálin og lagði áherzlu á stöðvun verðbólgunnar, aukinn kaup- mátt launa, verðtryggingu kaupsins, styttingu vinnudagsins í áföngum, svo og aukin oriofsréttindi. Þá samþykkti þingið einnig einróma ýtarlega álykt- un um iðnfræðslu og tæknimenntun.

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.