Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 23

Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 23
----------------- Winnan--------------” FÁNAR BLÖKTU YFIR NÝRRI BYGGÐ Þann 15. apríl s.l. var lokið við að reisa seinustu sperruna á orlofshúsun- um undir Reykjafjalli. Þótti þá tilhlýði- legt samkvæmt viðtekinni þjóðlegri venju, að fánar væru dregnir að hún á húsunum og atburðarins minnst í góð- um fagnaði með smiðum og verka- mönnum. Af þessu tilefni fóru miðstjórnar- menn austur yfir heiði þennan dag og efndu til smá fagnaðar með verka- mönnum í hinum vistlega íveruskála, sem verktaki hefur reist á bygginga- svæðinu. Með í þessari för var einnig Sigurð- ur Thoroddsen verkfræðingur, sem annazt hefur um allan verkfræðilegan undirbúning verksins. Ætlunin var, að Sigvaldi Thordarson arkitekt, sem gert hafði uppdrætti alla að skipulagi og húsum orlofsheimilahverfisins, væri einnig með í förinni. En af því gat því miður ekki orðið, þar eð hann var þá þegar altekinn af sjúkdómi þeim, er hann hafði lengi barizt við, og leiddi hann skömmu síðar til bana. Formaður bygginganefndar, Snorri Jónsson og forseti sambandsins ávörp- uðu verkamenn undir borðum og þökk- uðu þeim mikið og gott starf. Varð þarna glatt á hjalla, mikið sungið og eitthvað ort. Einn af smið- unum, Árni Jónsson, lék á gítar við mikinn orðstír, og lyfti leikur hans söngnum og „stemningunni" á enn hærra stig. Voru allir sammála um, að margt handtakið hefði verið unnið, og mik- il umbreyting orðin á þessum stað, síðan fyrir 10 mánuðum, er verkið var hafið. Sigvaldi Thordarson arkitekt. Að vísu er mikið eftir, þar til sein- asta handtaki við hinn umsamda á- fanga er lokið. — En nú sígur þó á seinni hluta verks, og sá tími nálgast, að verkafólk haldi austur um heiði til hvíldar og hressingar eftir erfiði og amstur dagsins í orlofsheimilabyggð Alþýðusambandsins undir Reykjafjalli. Síðan þetta gerðist, er nokkuð um- liðið. Húsin hafa nú verið klædd ut- an með alúmíníum, tvöfalt gler sett í glugga, gengið frá raflögn og hita- lögn í húsunum og unnið að einöngr- un og innréttingum. Á orlofslandinu hefur nú verið geng- ið frá rafveitu, vatnsveitu og skólp- veitu og vönduð rotþró byggð. Þá er nú hafin vinna við hitaveitulögn um landið. Borað var eftir heitu vatni í suðvest- urhorni landsins, og var útlit gott um, að árangur fengist. En þrátt fyrir sí- vaxandi hita í holunni fór svo, að vatn fékkst ekki, og varð sú borun því ár- angurslaus, a. m. k. í bráð. Þessi bor- hola var 500 metra djúp, og orkaði borinn ekki að ná upp þyngri bora- samstæðu. Næst ráðlagði dr. Gunnar Böðvars- son að bora miklu nær Hveragerði í landi Reykja skammt frá sundlaug Hvergerðinga. Ekki hafði verið lengi borað, er þar varð mikils hita vart, en er dýpra kom, reyndust berglög erfið og mis- hörð og brotnaði borinn einusinni eða tvisvar. Tóku viðgerðir nokkurn tíma og varð af þessu öllu almikil tímatöf. En er borholan var komin í 480 metra dýpt, varð mikið gos, og olli fyrst erf- iðleikum að hemja orkuna. Er hér um að ræða kraftmestu borholu í Hvera- gerði, þegar frá eru teknar hinar stóru borholur, er gerðar voru með raforku- virkjun fyrir augum eða til þunga- vatnsframleiðslu. Með þessari síðari borholu er því vel séð fyrir heitu vatni til allrar or- lofsbyggðarinnar og til fyrirhugaðrar sundlaugar þar á staðnum. Hefur þessi borun tafið verkið og einnig kostað mikið fé, en nú er líka mikil orka tryggð, og jafngildir hún eldsneyti fyrir langa framtíð. Niðri við Suðurlandsbraut hefur ver- ið byggð brú yfir kvísl af Varmá. Verður nú bráðum fyllt að henni og gengið frá ofaníburði í veginn upp að landinu og vegunum um það. Þá verð- ur líka, strax og gengið hefur verið frá hitaveitukerfinu, hægt að loka öll- Þegar seinasta sperran var reist, voru risgjöld höfð undir Reykjafjalli að viðteknum íslenzkum sið.

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.