Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 15

Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 15
u innan 13 ÞRJÚ STÉTTASAMBÖND STOFNUÐ Verkamannasamband íslands — Sam- band byggingamanna — Málmiðnaðar- og skipasmiðasamband íslands I. Þörf breyttra skipulagshátta Árum saman hafa forustumenn Al- þýðusambandsins gert sér ljóst, að þörf væri orðin skipulagsbreytingar á sambandinu. Samgöngumálum er nú háttað á allt annan veg, en 1916, þeg- ar skipulag Alþýðusambandsins var mótað .Þá var vart um annað að ræða, en að hver staður eða byggðarlag væri félagssvæði út af fyrir sig. Þess vegna urðu hin einstöku félög strax beinir aðilar að Alþýðusambandi ís- lands. Um þær mundir var iðnþróun næsta skammt á veg komin. Uppistaðan í verkalýðssamtökunum varð því félög ófaglærðra verkamanna og kvenna, svo og sjómannafélögin. Greining í fagsambönd var þá allsendis ótíma- bær. Síðan 1916 hefur mikil og marg- þætt iðnþróun átt sér stað hér á landi. Sveinafélög iðnaðarmanna eru því nú orðin mjög öflugur þáttur ís- lenzkra verkalýðssamtaka. Verksmiðjurekstur mátti heita ó- þekkt fyrirbæri 1916. Um ófaglært verksmiðjuverkafólk var því ekki að ræða. Nú er þetta fólk, sem starfar að hverskonar iðju og verksmiðjuiðnaði, orðin fjölmenn og vaxandi stétt. Um 1916 litu fáir á búðarmanninn eða verzlunardömuna, hvað þá á skrif- stofumanninn, „kontóristann“, sem al- þýðufólk eða verkafólk. Þá var slíkt fólk miklu fremur talið til yfirstétt- arinnar. lága kaupið og þar af leiðandi erfið- ari efnahagur hér nokkru um. í launajafnaðarmálum kvenna á brezk verkalýðshreyfing mikið verk ó- unnið. Ef til vill er launamálum kvenna í Bretlandi svo illa komið, sök- um þess, að konurnar hafa tekið mun minni virkan þátt í verkalýðsbarátt- unni, en karlmennirnir. Hefur komið í ljós, að í Bretlandi er aðeins fimmta hver kona, sem vinnur utan heimilis, í nokkru verkalýðsfélagi. En jafn ótvírætt hefur reynslan sýnt það og sannað, að þær konur, sem á annað borð hafa gengið undir merki verkalýðssamtakanna og út í baráttuna, standa karlmönnum síður en svo að baki. Er þar sama hvort borið er saman hugrekki þeirra eða úthald og þolgæði. Stéttarfélögin halda óbreyttri skipulagsaðstöðu innan Alþýðusambands fsSands Nú er verzlunarfólkið komið inn í raðir verkalýðssamtakanna, og sótti það með óvenjulegri hörku að komast þangað. Þannig nær Alþýðusamband íslands nú yfir miklu víðara svið, en upphaf- lega var til ætlazt af stofnendum þess, auk þess sem þróun atvinnulífs og samgöngumála á seinustu 50 árum, nálgast byltingu. Af þessu leiðir, að það skipulag, sem bezt hentaði um 1916 og þótti þá raunar sjálfgefið miðað við allar að- stæður, er nú að mörgu leyti úrelt orðið og þyrfti að breytast, jafnvel í grundvallaratriðum. En skipulagsbreyting mótaðra og gróinna fjöldasamtaka, hefur ávallt og allsstaðar reynzt þung í vöfum. Menn vita, hvað þeir hafa, en ekki, hvað þeir hreppa. Sérhverri breytinga- tillögu er því mætt með varfærni, jafn- vel tortryggni, stundum með blindum fordómum. En hvað sem öllu öðru líður, er það víst, að aðeins einn aðili getur rétt hlut brezkra verkakvenna. Og þaff er brezk verkalýðshreyfing. Atvinnuleysi það, sem stjórnarstefna brezku íhaldsstjórnarinnar hefur leitt yfir land og þjóð, hefur orsakað eina nýja hættu, sem nú beinist sérstaklega að brezkum verkakonum. Þessi hætta birtist í þeirri „taktik" atvinnurekenda, að mæta öllum kröf- um kvenna um hækkað kaup með hót- unum um uppsagnir. Til er líka, að verkamenn líti á hið smánarlega lága kvennakaup sem 'undirboff á vinnu- markaðnum, og beri því að láta þær víkja fyrst. Brezku verkakonunnar bíður því nú hörð barátta — baráttan fyrir launajafnrétti og baráttan fyrir jöfnum rétti til vinnunnar. Þannig hefur farið hér. Fyrir mörgum árum var á alþýðu- sambandsþingi kosin milliþinganefnd í skipulagsmál Alþýðusambandsins. Hún fékk hingað til lands þann mann- inn í norskri verkalýðshreyfingu, sem mesta reynslu hefur í skipulagsmálum norska Alþýðusambandsins. Hann vann hér um skeið með milliþinga- nefnd Alþýðusambands íslands í skipulagsmálum. Upp úr þessu samráði og samstarfi komu ákveðnar tillögur um gerbreytt skipulag Alþýðusam- bands íslands. Hin einstöku verkalýðsfélög skyldu hætta að vera beinir aðilar að Alþýðu- sambandinu. Níu fagsambönd skyldu stofnuð og þau eiga beina aðild að heildarsamtökunum. Vinnustaðurinn skyldi vera grunneining samtakanna. Félag vinnustaðarins skyldi eiga samn- ingsaðild fyrir alla, sem þar ynnu, karla og konur, faglært fólk og ófag- Bolli Ólafsson.

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.