Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 28

Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 28
26 u innan þess í pakkhús og samfelld vinna við afhendingu úr pakkhúsi og mæling í hrærivél), uppskipun á saltfiski, lönd- un síldar og ísun síldar í skip, vinna við kalk, krít og leir í sömu tilfellum og sementsvinna, kolavinna í lest og sekkjun á kolunr við úthlaup úr síló- um, uppskipun á fiski úr bátum og vinna við út- og uppskipun á tjöru- og karbólbornum staurum, fullgildir dixelmenn, vinna á smurstöðvum, véiavinna á steypuverkstæðum. 8. taxti: Dagvinna pr. klst........... kr. 40,51 Eftirvinna pr. klst........... — 60,77 Nætur- og helgidv..............— 77,90 Öll vinna við afgreiðslu á togurum, þar með talin öll víravinna í landi, stjórn á ýtum, vélskóflum, kranabíl- um, enda stjórni bifreiðarstjúri bæði bifreið og krana, bílum með tengi- vagni og stórvirkum flutningatækjum, svo sem í sand- og grjótnámi, vega- gerð o. fi. (sbr. þó 6. taxta um verk- stæðisvinnu), ryðhreinsun með raf- magnstækjum, botnhreinsun skipa innanborðs og málun skipa með loft- þrýstisprautum, hreinsun með vitis- sóda, vinna með sandblásturstækjum, málmhúðun, hreinsun benzín- og olíu- geyma að innan, ef farið er inn í geymana, múrbrot á veggjum með lofthömrum og allt múrbrot innan húss, þó ekki, ef um „forskallaða“ fleti er að ræða, holræsahreinsun. 9. taxti: Dagvinna pr. klst............kr. 45.29 Eftirvinna pr. klst............— 67,94 Nætur- og helgidv..............— 87,10 Boxa- og katlavinna. 10. taxti: Dagvinna pr. klst........... kr. 30,90 Eftirvinna pr. kist............— 46,35 Nætur- og helgidv..............— 59,20 Vinna við pökkun, snyrtingu og vigt- un í hraðfrystihúsum. 11. taxti: Dagvinna pr. klst............kr. 32,03 Eftirvinna pr. klst .......... — 48,05 Nætur- og helgidv..............— 61,90 Vinna í sláturhúsum, önnur en gor- vinna, svíðing, kjötþvottur og vinna í blóðklefa. Á þeim stöðum, sem samizt hefur um hærra kaup skv. 11. taxta skal það haldast. 12. taxti: Kaup unglinga skal vera: 14 ára 75% af viðkomandi taxta verka- fólks. 15 ára 85%, af viðkomandi taxta verka- fólks. Öll fiskvinna unglinga flokkast þó undir aimenna vinnu. Vinni unglingar 14 og 15 ára slipp- vinnu, kola-, salt- og sementsvinnu, steypuvinnu og skipavinnu, skal sú vinna greidd á tilheyrandi taxta. Unglingavinna skal þó gilda um eftir- talda skipavinnu: Stöflun á tómum tunnum og við að velta tunnum að og frá flutningatækjum, svo og losun á timbri. Ákvæðisvinna við ræstingu: Öli ræstingarvinna, sem unnin er reglulega, skal framkvæmd í ákvæð- isvinnu, sé þess óskað af ræstingar- konu, og greiðast þannig: Gólfræsting kr. 20,34 pr. m2 á mán. Fimleikahús og áhaldaherb. — 17,29 pr. m-’ á mán. Salerni...... — 23,39 pr. m2 á mán. Sé ræsting framkvæmd alla 7 daga vikunnar, skal ræsting á sunnudög- um greidd í tímavinnu, og skal klukku- stundafjöldinn í þeim tilfellum ákveð- inn með samkomuiagi aðilja. Ákvæði þessi um ræstingu skulu falla úr gildi jafnskjótt og samningar hafa tekizt milli Vinnuveitendasambands íslands og verkakvenna í Reykjavík um ákvæðisvinnu við hreingerningar og skulu þá þeir samningar gilda. Sérákvæði: Þrátt fyrir hin almennu ákvæði um kauptaxta þá, sem tilgreindir eru hér að framan, skulu eftirtalin frávik gilda um kaup: a. Pökkun, snyrting og vigtun á fiski á Húsavík kr. 31,27 — 47,91 — 59,90. b. Steypuvinna og gæzla hrærivéla á Siglufirði, Seyðisfirði og Raufar- höfn kr. 35,70 — 53,55 — 68,00. c. Vinna manna á Siglufirði og Rauf- arhöfn, sem unnið hafa að smíð- um í tvö ár og leggja sér ekki til verkfæri kr. 36,28 — 54,42 — 69,10, og menn á Siglufirði við sömu vinnu, sem unnið hafa í tvö ár og leggja sér til verkfæri kr. 37,80 — 56,70 — 72.70. d. Pönnufrysting á síld, þar sem vatni er sprautað á síldina í frystiklefum kr. 39,16 — 58,74 — 75,30. e. Vinna við vindur á skipum í Nes- kaupstað, Fáskrúðsfirði og Vopna- firði kr. 39,16 — 58,74. f. Vinna við áburð á Húsavík og Ak- ureyri kr. 39,16 — 58,74 — 75,30. g. Vinna við frystitæki og í frystiklef- um í Neskaupstað kr. 40,51 — 60,77. h. I þeim stöðum á Austfjörðum, þar sem eftirvinna var áður greidd með 50% álagi, skal nætur- og helgi- dagakaup vera 2% hærra en segir í hinum almennu kauptöxtum hér að framan. Um vikukaup: Nú hefur verkafólk unnið hjá sama vinnuveitanda samfellt 6 mánuði eða lengur, og skal því þá greitt óskert vikukaup þannig, að samningsbundnir frídagaú aðrir en sunnudagar, séu greiddir. Með samfelldri sex mánaða vinnu er átt við, að unnið hafi verið hjá sama vinnuveitanda full dagvinna í sex mánuði, enda jafngildi fjarvistir vegna veikinda, slysa, orlofs, verkfalla eða verkbanna fullri vinnu. Sama gildir um daga, sem falia úr t. d. í fisk- vinnslu, vegna hráefnisskorts eða sam- bærilegra orsaka. Það jafngildir samfelldri vinnu, ef unnið hefur verið í árstíðabundinni vinnu samtals í sex mánuði hjá sama vinnuveitanda á undanförnum tveim- ur árum. Slík árstíðabundin vinna skal þó því aðeins tekin til greina, að unnið hafi verið samfellt yfir heil athafna- tímabil (vertíðir). Þótt verkafólk hafi samkvæmt fram- anskráðum ákvæðum öðlast rétt til óskerts vikukaups, skai ekki skylt að greiða því kaup fyrir þá virka daga, sem vinna fellur niður, sakir skorts á verkefni, en sé unnið hluta úr degi, skal sú vinna greidd samkvæmt á- kvæðum 4. málsgr. 10. gr. 6. gr. Næturvarðmenn: Kaup vökumanna skal reikna þannig: Fyrir 12 klst. vöku skal miða við: 8 klst með dagvinnukaupi, 2!4 klst. með eftirvinnukaupi og 1% klst. með næturvinnukaupi. Næturvarðmenn skulu eiga frí sjö- undu hverja nótt, og greiðist ekkert kaup fyrir hana, sé hún ekki unnin. Sé hún hins vegar unnin, greiðist hún með 100%, álagi. Sama kaup greiðist fyrir næturvörzlu aðfaranótt föstu- dagsins langa, páskadags, hvítasunnu- dags, jóladags og nýársdags. Ákvæði þessi eiga við, ef um stöðuga varðmennsku er að ræða. Vaka yfir helgi, þegar um einstakar vökur er að ræða, greiðist með 40% áiagi á vökukaupið. Fyrir 12 stunda vöku við eft- irlitsstörf í landi .. kr. 495,13 Fyrir 12 st. vöku um borð í bátum.................... — 549,46

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.