Vinnan - 01.07.1964, Blaðsíða 19
u
innan
17
Þá læðist hún til hans, eins létt og
hind.
Hún ljómar af himneskri fegurð —
og synd.
Og brosandi í kyrrðinni hvíslar að
honum:
Á karlmennskan líka táralind?
Svo kyssir hin fegursta af fögrum
konum
hinn fræknasta af rómverskum
sonum.
Hví grætur þú Caesar? Hví gleymdir
þú mér?
Ég gat ekki sofið og leita að þér . . .
Þá hitnar Caesari um hjartarætur
og henni þrýstir að þrjósti sér,
horfir í augu henni, hlær og grætur
í húmi egypzkrar nætur.“
En Davíð orti líka karlmannleg
hvatningarljóð og vísaði kveifarskap
á bug:
Þú, sem eldinn átt í hjarta,
óhikandi og djarfur gengur
út í myrkrið ægisvarta,
eins og hetja og góður drengur.
Alltaf leggur bjarmann bjarta
af brautryðjandans helgu glóð.
Orð þín loga, allt þitt blóð;
á undan ferðu og treður slóð.
Þeir þurfa ekki um kulda að kvarta,
sem kunna öll sín sólarljóð.
Einn þú klifrar upp í móti,
er aðrir hrapa í gljúfrin niður;
flýrð ei, þó að fjendur hóti,
en fram til marksins braut þér ryður.
Þó beint sé að þér banaspjóti,
bliknarðu ei, né lítur við;
biður engan guð um grið;
geislinn sigrar náttmyrkrið.
Lífsins illu öndum móti
einn þú berst — og semur frið.“
Davíð varð að gera hlé á námi
sínu af sjúkdómsástæðum. Á nokkr-
um stöðum í Svörtum fjöðrum bregð-
ur því fyrir, að hann býst ekki, frem-
ur en verkast vill, við langlífi:
Horfi ég út á hafið. —
Til hræðslu ég engrar finn,
þó sjái ég sigla inn fjörðinn
svarta byrðinginn.
En þegar kallið kemur,
þá kem ég glaður um borð.
Ég hef skrifað í sjávarsandinn
mín síðustu kveðjuorð.
Og í öðru kvæði:
Gröfin opnast. Hörpuhljóma
úr húmsins bikar sálin drekkur.
í kirkjuturni klukkur óma.
Kista í moldu sekkur.
Augun horfa í húmið svarta.
Harpan þagnar. Brestur hjarta.
Dauðinn alla elda bjarta
á arni lífsins slekkur."
Þannig kvað Davíð ungur. Þannig
fór hann eldi um landið og heillaði
ungu kynslóðina. Þannig söng hann
sig inn í hug og hjarta þ’óðarinnar og
vék þar aldrei sæti til hinstu stund-
ar. Hann var skáld unaðar og ásta,
ástríðna, gleði og harma. — Og eigi
sízt verða karlmennska og dreng-
skapur honum hjartfólgin yrkisefni.
Og nú hleyp ég, rúmsins vegna, yfir
mikinn og margslunginn rithöfundar-
feril, Ijóða, skáldsagna og leikrita.
Eftir Davíð liggja ljóðabækurnar
„Kvæði“ og kveðjur“, leikritið, Munk-
arnir á Möðruvöllum ■— „Ný kvæði,“
„í byggðum", — „Að norðan.“ Tveggja
binda ‘skáldsagan „Sólon íslandus/
leikritði „Gullna hliðið,“ — „Vopn guð-