Vinnan - 01.07.1964, Page 22
Ragnar Jónsson.
hefur, en að bók — mikið ritverk —
hafi komið út í dag. Slíkt er ekki
nýlunda á íslandi. Hið einstæða, sem
ég vil leyfa mér að biðja viðstadda
fréttamenn að gefa gaum, og vík nú að
nokkrum orðum, er þetta:
Hugmynd Ragnars Jónssonar, að
láta bók um íslenzka myndlist reisa
fyrsta listasafn á Islandi, er það, sem
Ibsen kallar „Kongstanke“. Það er í
senn fögur hugmynd, snjöll og stór-
brotin.
Nú verður svo reynslan að sýna,
hvort menningaráhugi vinnandi fólks
er slíkur, að hann nægi til að færa
----------- uinnan ----------------
hugmyndina út í veruleikann, þannig
að hér rísi fyrsta og einasta listasafn
í alþýðueign, sem til muni vera í ná-
lægum löndum — e. t v. í allri
Evrópu.
Það er nú hlutverk fólksins í verka-
lýðssamtökunum að innleysa þessa
stórbrotnu og höfðinglegu gjöf með
menningarlegum áhuga sínum. — Það
er kjarni málsins. Og það er sannfær-
ing mín, að þá prófraun muni íslenzk
alþýðumenning standast með sæmd.
Ég hef trú á því, að þessi bók verði
alls ekki fáanleg á íslenzkum bóka-
markaði marga mánuði eftir útkomu
síðara bindis. Og í þeirri fullvissu mun
stjórn listasafns Alþýðusambandsins
nú hefjast handa um að ákveða lista-
safni Alþýðusambandsins stað og hefja
undirbúning að byggingu safnhúss, er
hæfi þeim listaverðmætum, sem því
er ætlað að varðveita.
Ég vil svo leyfa mér að óska Birni
Th. Björnssyni til hamingju með það
glæsilega yfirlitsverk um íslenzka
myndlist, hið fyrsta, sem þjóðin eign-
ast — verk, sem auk síns bókmennta-
lega hlutverks á nú að holdi klæða
hugsjón þá, sem hér hefur verið um
rætt. — Framhalds verksins bíðum við
með óþreyju og eftirvæntingu.
Kæri Tómas!
Ég bið þig að lokum að færa Ragn-
ari Jónssyni alúðarþakkir mínar, lista-
safnsstjórnar og Alþýðusambandsins,
fyrir gjöf þá hina kærkomnu og stór-
brotnu, sem þú hefur afhent okkur
fyrir hans hönd í dag. Okkur er vel
Ijós sú ábyrgð, sem við höfum tekizt
á herðar með því að hafa þegið þess-
ar gjafir. Við erum skyldug til að gera
okkar bezta til að koma menningar-
verðmætum íslenzkrar myndlistar á
framfæri við íslenzkar alþýðustéttir.
Því trausti viljum við reyna að svara
með því að koma sem fyrst upp smekk-
legum og hagfelldum byggingum yfir
listasafn Alþýðusambands lslands.“
Þegar Hannibal hafði lokið máli
sínu, beindu fréttamenn ýmsum
spurningum að Birni Th. Björnssyni
varðandi hið glæsilega verk hans, og
leysti Björn greiðlega úr öllum spurn-
ingum þeirra.
Síðan þetta gerðist, hefur verið unn-
ið að sölu og útsendingu bókarinn-
ar, „íslenzk myndlist á 19. og 20. öld.“
Eigi verður annað sagt, en að fyrsti
árangur er góður. Hin tölusettu, árit-
uðu 1000 eintök upplagsins eru þegar
uppseld og almenna salan er í fullum
gangi. — Bókin er ekki seld í umboðs-
sölu. — Sum verkalýðsfélög hafa náð
frábærum árangri við söfnun áskrif-
enda, en hlutur annara liggur mjög
eftir. Ættu verkalýðsfélögin að herða
róðurinn við sölu bókarinnar fyrir 1.
nóvember, en þá verður ekki hjá því
komizt að hækka verðið. Setjum okk-
ur það takmark, að hafa selt allt upp-
lagið, þegar seinna bindið kemur á
markaðinn. Takist það, verður hægt
að byrja að byggja þegar á þessu ári.
Mánaðar orlof í Noregi
Tillögur eru fram komnar í Noregi
um að lengja orlofstímann þar í landi
úr þremur vikum í fjórar vikur.
Tillagan er fram borin af opinberri
nefnd, skipaðri tveimur fulltrúum frá
norsku ríkisstjórninni, og tveimur frá
hvorum aðila á vinnumarkaðnum, al-
þýðusambandinu og Vinnuveitenda-
sambandinu.
Nefndin er sammála um lengingu
orlofstímans, þó þannig að fulltrúar
ríkisstjórnarinnar og alþýðusambands-
ins leggja til, að hið lengda orlof komi
í fulla framkvæmd árið 1965, en full-
trúar vinnuveitendasambandsins
leggja til, að það gerist í áföngum og
komist í fulla framkvæmd á árinu
1966.
Fulltrúar alþýðusambandsins leggja
til, að orlofsfé 9,5% greiðist frá 1. maí
1964. Fulltrúar atvinnurekenda leggja
til, að orlofsféð verði 8% fyrsta árið og
8,5% næsta ár. Formaður nefndarinnar
leggur til, að orlofsféð verði 9% af
launum.
Tómas Guðmundsson skáld afhendir forseta Alþýðusambands-
ins upplagið að bók Björns Th. Björnssonar: Islenzk myndlist
á 19. og 20. öld