Vinnan - 01.07.1964, Page 29
Heimilt er, ef um stöðugar vökur er
að ræða, að ráða vaktmenn fyrir hlut-
fallslega sama kaup á vökum, sem eru
8—12 klst. Sé um skemmri vökur að
ræða, greiðist tímakaup. Það sem
fram yfir vökuna er, greiðist með hlut-
fallslegum tíma úr vökunni.
Um mánaðarkaup:
Á Siglufirði, í Hrísey og á Raufarhöfn
skal mánaðarkaup reiknast fyrir
hverja 26 daga og brot úr mánuði í
26 pörtum.
Um tryggingu verkafólks:
Atvinnurekendur tryggja fastráðnu
verkafóiki yfir síldartímann tveggja
mánaða fasta vinnu, eða ákveðna fjár-
hæð. Karlmönnum skal tryggð sam-
felld vinna í 2 mánuði og söltunar-
fólki kr. 5607,00 fyrir 2ja mánaða tíma-
bil. Tímatakmörk skulu nánar tiltekin
á viðkomandi stað. Vinna við fryst-
ingu síldar og vinna hjá öðruni at-
vinnurekendum, er óviðkomandi síld-
artryggingunni.
Pastráðið síldarvinnufólk skuldbindur
sig til að mæta til vinnu, þegar verk-
stjóri kaliar, svo fremi að veikindi ekki
hamli.
Þó getur söltunarfólk krafizt 6 klst.
hvíldar hvern sólarhring, og aldrei
skal hvíldartími vera skemmri á
3 sólarhringum en ákveðið er í 28. gr.
laga nr. 23, 1. febr. 1952.*).
Hætti söltunarfólk vinnu sökum veik-
inda eða af öðrum frambærilegum á-
stæðum, ber að greiða því fyrir liðið
tímabil.
Fastráðið verkafólk hefur ekki leyfi til
að fara á aðra vinnustaði, nema með
leyfi verkstjóra. Skylt er vinnuveit-
endum og verkafólki að gera með sér
ráðningarsamning á þar til gerð
eyðublöð.
Um ákvæöisvinnu ýmiskonar
Ákvæðisvinna við síldarsöltun:
Fyrir að hausskera og slóg-
draga í heiltunnu ..... kr. 44,00
Fyrir að hausskera og slóg-
draga í hálftunnu ....... — 24,20
Fyrir að hausskera og slóg-
draga 400—500 síldar í
tunnu ............. — 51,00
Fyrir að hausskera og slóg-
draga og flokka ........ — 56,00
Fyrir að hausskera og slóg-
draga ef síldin gengur sam-
an (rýrnar) um 40—50% að
tunnutölu frá uppmælingu
til uppsöltunar ........ — 51,00
Fyrir að hausskera og slóg-
draga, ef síldin rýrnar
----------- i ituian ---------------
(gengur saman) meira en
50%, frá uppmælingu til
uppsöltunar ............. — 60,00
Ákvæðisvinna við fiskþvott:
Himnudr. Ó.h.dr.
Fyrir að þvo 100 stk.
þorsk 25“ og stærri kr. 70,48
Fyrir að þvo 100 stk.
þorsk 20-25“ og löngu — 59,15
Fyrir að þvo 100 stk.
ýsu og smáufsa .... — 31,13
Fyrir að þvo 100 stk.
stórufsa .......... — 43,92
Fyrir að þvo 100 stk.
labra undir 18“ .... — 33,52 14,60
Fyrir að þvo 100 stk.
labra 18—20“ ...... — 43,59 25,11
Fyrir að þvo 100 stk.
labra 20“ og yfir .. — 49,29 29,57
Losun og lestun skipa, ákvæðisvinna:
Lestun D.v. E.v. N-h.v.
Heiltunna fuli kr. 3,28 4,92 6,24
Hálftunna full — 2,00 3,00 3,80
Fjórðungst. full — 1,24 1,86 2,36
Áttungur fullur — 0,79 1.19 1.50
Olíutunna full —- 5,07 7,61 9,66
Olíutunna tóm — 2,47 3,71 4,70
Heiltunna tóm — 1,58 2,37 3,00
Heiltunna full kr. 3,28 4,92 6,24
Hálftunna tóm — 1,07 1,61 2,04
Fjórðungur t. . — 1,58 2,37 1,54
Áttungur t. .. — 0,59 0,89 1,10
1 tonn freðfisk-
ur„ kjöt, síld
skreið — 44.45 66,68 84,66
1 tonn ýmisleg
sekkjavara .. — 24,50 36,75 46,66
1 tonn saltfisk. — 25.02 37.53 47.66
Losun:
Heiltunna tóm — 1.11 1.67 2.12
Kálfatunna .. — 1,91 2,87 3,64
Hálftunna tóm — 0,87 1.31 1.66
Fjórðungur t. — 0.65 0.98 1.24
Áttungur tómur — 0,49 0.74 0.94
Hálftunna full — 1,90 2,85 3,62
Heiltunna full — 2,01 3,02 3,83
1 tonn sekkjav. — 24.50 36.75 46.66
1 t. kol og salt — 28.27 42.41 53.84
1 tonn sement — 28.65 42.98 54.58
1 tonn járn .. — 32.58 48.87 62.06
1 standard timb
ur — 104.30 156.45 198.66
1 standard óbúnt-
að tunnuefni — 112.46 168,69 214.20
Olíutunna tóm — 2.24 3.36 4,26
Olíutunna full — 4,75 7.13 9.04
Ákvæðisvinna við línuvinnu.
I. Fyrir að beita hvert bjóð
úr haug .............. kr. 66.38
Fyrir að beita hvert bjóð
úr stokk.............. — 40,26
Fyrir að stokka hvert
bjóð upp ............ — 44,62
Miðað er við 400—450 króka, frían
beituskurð og áhnýtingu.
II. Fyrir að beita hvert bjóð
úr haug (beituskurður
innifalinn) ......... kr. 89,28
Fyrir að stokka hvert bjóð
upp ................. — 72,94
Innifalið í ákvæðinu er flutningur
á bjóðum til og frá bát.
III. Fyrir að hnýta 1000
hamptauma ........... kr. 69,31
Fyrir að hnýta 1000 næ-
lontauma ............. — 90,89
Fyrir að setja upp línu
(100 tauma) .......... — 23,99
Orlofsfé innifalið í ölium línutöxtum.
Ef ákvæðisvinnufólk við síldarsöltun,
sem mætt hefur til vinnu skv. útkalli
(ræsingu), verður að bíða á vinnustað
eftir að vinna hefjist lengur en eina
klst. skal það fá greitt tímakaup fyrir
þann tíma og þar til ákvæðisvinna
hefst.
Verði ekki úr ákvæðisvinnu af ein-
hverjum sökum, fær ákvæðisvinnu-
fólk ekki þóknun fyrir útkall, ef því
er tilkynnt innan einnar klst. frá því
það mætti til vinnunnar, að ekki verði
úr ákvæðisvinnu. Nú mætir einhver af
þeim, sem boðaður hefur verið, ekki á
þeim tíma er mæta skyldi skv. ræs-
ingu, og hefur hann þá tapað rétti
til greiðslu fyrir biðtíma, sem verða
kynni það sinn
Nú hefst ákvæðisvinna við lestun eða
losun ekki, vegna þess, að skip er
ókomið á boðuðum tíma, og skulu á-
kvæðismenn (stúfarar) þá fá greidd-
an biðtímann með tímakaupi skv. 4.
taxta. Sama gildir og, ef vinna stöðv-
ast lengur en 15 mínútur samfellt,
vegna bilunar á tækjum eða búnaði
skips.
í Hrísey skulu þó áfram gilda ákvæði
24. gr. samnings frá 25. júní 1963,
varðandi framkvæmd ákvæðisvinnu
við lestun og losun skipa.
Ákvæðisvinnufólk nýtur allra félags-
legra réttinda skv. samningi þessum.
Um mánaðarkaupsmenn hjá olíufélög'-
um:
Dagvinna mánaðarkaupsmanna svo
sem hún er skilgreind, er sú vinna,
sem mánaðarkaupsmönnum er skylt
að vinna gegn hinu fasta mánaðar-
kaupi. Öll vinna, sem þar er umfram,
greiðist skv. ákvæðum 5. greinar. Um
kaffi- og matartíma fer eftir ákvæð-
um 3. greinar. Undanskilin ákvæðum
þessarar greinar er vinna næturvarð-
manna á olíu- og benzínstöðvum.
Vinnutími þeirra er að jafnaði frá kl.