Vinnan - 01.05.1984, Page 5
Er vinnuafl á íslandi ódýrt og eftirsóknarvert fyrir erlenda aðila? Pað vildu iðnnemar meina er þeir tóku þátt íkröfugöngunni
I. maí í Reykjavík. Pessi hópur, sem situr hér íhlekkjum var boðinn upp á fundinum á Lækjartorgi. Uppboðið var gráttgam-
an og var kvittað rækilega fyrir undarlegar skoðanir ,,landsfeðranna“ á íslensku vinnuafli.
1. maí 1984
Mjög góð þátttaka var í 1. maí hátíða-
höldunum um land allt. Dagurinn virtist
endurspegla kraft og samtakamátt, þrátt
fyrir ýmsa erfiðleika sem launþegar hafa
átt við að glíma síðan núverandi stjórn
tók við völdum. Ýmis smærri samskipta-
vandamál innan hreyfingarinnar féllu í
skuggann fyrir því sem mestu máli skiptir
— að standa saman þegar á reynir. Þeir
útdrættir úr 1. maí ávörpum, sem við
birtum hér, sýna að það er fráleit stjórn-
arstefna að ætla sér að vinna gegn hags-
munum verkalýðshreyfingarinnar þegar
til lengdar lætur. Margt athyglisvert kom
fram í þessum ræðum, ekki síst eindreg-
inn vilji allra launþegasamtaka til frekari
samvinnu og að vinna markvisst að
launajafnrétti kynjanna, sem víða er enn
meira í orði en á borði.
VINNAN 5