Vinnan - 01.05.1984, Side 15
HRINGBORÐIÐ
S AMNIN G ARNIR
OG STAÐA
HREYFINGARINNAR
Á 3ju önn Félagsmálaskólans, sem haldin var 25. mars til
7. apríl, var að sjálfsögðu mikið rætt um nýgerða kjara-
samninga og stöðu verkalýðshreyfingarinnar. Nemendur
skrifuðu m. a. greinar um samningana og stöðuna, þar sem
margt athyglisvert kom fram. Við fengum síðan eftirtalda í
hringborðsumræður um þetta efni: Kjartan Guðmunds-
son, formann Sveinafélags málmiðnaðarmanna á Akra-
nesi, Jón Guðmundsson, varaformann Verkamannafé-
lagsins Fram á Seyðisfirði, Svavar Guðbrandsson, gjald-
kera Félags íslenskra rafvirkja, Sigmund Benediktsson,
gjaldkera Sveinafélags málmiðnaðarmanna á Akranesi,
og Óla S. Runólfsson, meðstjórnanda í Félagi járniðnaðar-
manna í Reykjavík.
Við hófum umræðurnar með spurningu um samningana
og samningsstöðuna.
Kjartan: Ég sat báðar formannaráð-
stefnurnar sem haldnar voru rétt fyrir
samningsgerðina. Það kom berlega í
ljós á ráðstefnunum, að flestir, sem
tóku til máls, lýstu því yfir að félög
þeirra væru ekki tilbúin til aðgerða og
fólu þar af leiðandi stjórn ASÍ að reyna
að ná eins langt og mögulegt væri.
Jón: Það virðist koma í ljós að mat
formannanna var ekki að öllu leyti rétt,
og fólk virtist sums staðar tilbúið að taka
upp baráttu eftir að samningstilboðið
kom og búið var að reifa það svolítið.
Niðurstaðan virðist vera sú, að fólk úti i
félögunum álítur að Alþýðusambandið
hafi brugðist. Það er skekkja, sem er
mjög vond að því leyti að þessi ákvörð-
un var tekin á tiltölulega stórum fundi.
Ákvarðanatakan var miklu dreifðari
en fólk virðist gera sér grein fyrir.
Sigmundur: Ég kom nú ekkert ná-
lægt þessum formannaráðstefnum, en
mér finnst að ákvörðunin um samning-
ana hafi síast út og atvinnurekendur
vitað hvað þeir gátu pressað. Hjá því
fyrirtæki sem ég vinn hjá, Sements-
verksmiðju ríkisins, kom nei við flest-
um kröfum sem þar voru settar fram.
Mín skoðun er sú að flokkspólitískar
línur innan verkalýðshreyfingarinnar
limi hreyfinguna í sundur og það eru
alltaf til menn sem eru tilbúnir að koma
boðum til atvinnurekenda um hvað er
að gerast hjá hreyfingunni.
Oli: Ég tel að samtakamáttur félag-
anna hafi ekki verið athugaður nógu
vel og vil rökstyðja það með því að
samningarnir voru víða samþykktir
með naumum meirihluta og sums stað-
ar voru þeir felldir, og í sumum félög-
um tekin upp barátta sem sýnir að í
þeim félögum hefur þó verið baráttu-
kraftur. Hefðu félögin verið virkjuð
betur í heild hefði kannski fengist betri
útkoma. ASÍ hefði átt að beita meiri
áróðri til stuðnings sínum málefnum.
og til að virkja almenningsálitið til liðs
við sig. Þegar svo kom fram í fjölmiðl-
um skoðanakönnun um afstöðu fólks-
ins til ríkisstjórnarinnar (hér er átt við
skoðanakönnun DV, innskot Vinnan)
þá var niðurstöðu könnunarinnar ekki
mótmælt, eða reynt að sýna fram á að
framkvæmd könnunarinnar hafi verið
ábótavant. Svarið við þessu hefði átt að
vera skoðanakönnun á vegum ASÍ,
meðal fólks innan hreyfingarinnar.
Sigurjón: Þú meinar að ASÍ hefði átt
að beita skoðanakönnunartækni í sam-
bandi við samningana?
- Já, ég átti nú sérstaklega við síð-
ustu samninga, en þetta gæti gilt um
framtíðina einnig. En áróður ASÍ var
bókstaflega alveg í molum. Það hefði
mátt virkja fólk miklu betur. Mér
fannst einum of langt gengið þegar for-
ystumenn sumra félaga notuðu skoðana-
könnunina sem vörn, og hún sýndi rétt-
mæti þess að samþykkja samningana.
VINNAN 15