Vinnan - 01.05.1984, Qupperneq 39
114 nýir áskrifendur
frá BRYNJU
Þingeyri
Hvert verkalýðsfélagið á fætur öðru
bætist nú í hóp þeirra, sem hafa
ákveðið að senda öllum félags-
mönnum sínum VINNUNA á
heimilisfang. Nú í maíbyrjun kom
áskrifendalisti með 114 nöfnum frá
BRYNJU á Þingeyri.
Við hljótum að þakka hinn stór-
aukna áhuga, sem félagsmenn innan
ASÍ hafa sýnt VINNUNNI að und-
anförnu, og heitum því að mæta
þessum velvilja og áhuga með stöð-
ugt betra og frísklegra blaði.
Mikil aðsókn
að félagsmála-
skólanum
Mjög mikil aðsókn hefur verið að Fé-
lagsmálaskóla alþýðu eftir áramótin.
Haldnar voru þrjár annir, 1., 2. og 3.
önn, og var mjög góð þátttaka í þeim
öllum.
Kennslan fór fram í Ölfusborgum, en
þátttakendur voru víðsvegar að af
landinu.
Næstu annir verða haldnar í október
og nóvember í haust.
Nú stendur yfir í Listasafni alþýðu sýn-
ing á verkum 23 félagsmanna innan
raða byggingariðnaðarmanna og málm-
iðnaðarmanna. Á sýningunni, sem lýk-
ur 27. maí, eru sýndir smíðisgripir og
verk sem erfiðisvinnufólk hefur unnið
að í sínum takmörkuðu frístundum.
Ber að fagna þessu framtaki Listasafns
alþýðu. Myndin sýnir hluta þeirra sem
verk eiga á sýningunni.
Eftirmenntunarnefnd rafiðnar ásamt framkvæmdastjórum dönsku og íslensku eftirmenntunar-
nefndanna, talið frá vinstri: Hannes Vigfússon, formaður FLRR, Gunnar Bachmann, kennari,
Arne Nielsen, framkvæmdastjóri EFU, Árni Brynjólfsson framkvæmdastjóri LÍR, Magnús Geirs-
son, formaður RSI og Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri ER.
Endurmenntun rafiðna
á 10 ára starf að baki
Eftirmenntun rafiðna hefur
starfað af miklum þrótti á und-
anförnum árum. í tilefni af 10
ára starfi ER var um miðjan
apríl efnt til sýningar á kennslu-
tækjum og starfsemin kynnt í fé-
lagsmiðstöð rafiðnaðarmanna
að Háaleitisbraut 68.
Sýningin er haldin í tilefni þess að 10 ár
eru liðin frá því að Eftirmenntun raf-
iðna var formlega sett á laggirnar í
kjölfar samninga Landssambands ís-
lenskra rafvirkja og Rafiðnaðarsam-
bands íslands í febrúar 1974. Ríkis-
sjóður styrkti þessa starfsemi fyrstu
fjögur árin, en frá og með árinu 1979
var starfsemin rekin með stóru fram-
lagi frá rafverktökum, auk þess sem
samtök rafvirkja hafa styrkt starfsem-
ina með verulegum fjárhæðum. í fyrra
skiptist kostnaðurinn þannig að Eftir-
menntunarsjóður greiddi 70% kostn-
aðar, Samtök rafvirkja 10% og nám-
skeiðsgjöld námu 20% kostnaðar.
Námskeiðin hafa verið 18-24 talsins ár
hvert og þátttaka starfandi rafvirkja
verið á bilinu 19-25% miðað við heild-
arfjölda þeirra. Þátttaka hefur alltaf
farið fram úr björtustu vonum, og flest
námskeiðin verið fullbókuð langt fram
í tímann.
VINNAN 39