Vinnan - 01.05.1984, Qupperneq 7
Hver er réttsýni
valdsins og
hugkvæmni?
Björn Þórhallsson, varaforseti
ASÍ, hélt 1. maí ræðu í Borgar-
nesi. Hann hóf ræðu sína á að
líta yfir farinn veg, hvernig
verkalýðshreyfingin hefur verið
í vörn allar götur frá árinu 1977.
„Kjarasamningar, sem gerðir hafa
verið á þessu tímabili, hafa allir verið
þess verða stjórnvöld að breyta um
stefnu. Uppbygging öflugs efnahagslífs
verður að koma í stað kjaraskerðing-
ar.“
Ásmundur kom því næst inn á þær
ráðstafanir sem ríkisstjórnin hyggst
gera til að mæta „fjárlagagatinu“
margumrædda, og benti á, að vegna
mótmæla frá launþegasamtökunum
hefði verið horfið frá hugmyndum á
borð við söluskatt á matvæli, aukið
bensíngjald og sérstakt vegagjald, en
„ríkisstjórnin áformar um margt óskil-
greindan niðurskurð og umfangsmiklar
lántökur. Það er útilokað að sjá allar
afleiðingarnar fyrir.“
Tvær þjóðir
„Við stöndum frammi fyrir því að í
landinu búi tvær þjóðir: Þjóð láglauna-
fólks, þar sem lífvænleg laun fyrir 8
stunda vinnudag virðist fjarlægur
draumur, og þjóð þeirra sem virðist allt
geta. Ríkisstjórnin hefur miðað að-
gerðir sínar við það að efla þá sem
skammta sér sjálfir og leggja oft lítið til
sameiginlegra þarfa.“
Að lokum ræddi Ásmundur um 1.
september og sagði að ákvörðun um
hugsanlega uppsögn samninga yrði
tekin að vandlega athuguðu máli.
„Hvað sem dagsetningu líöur er hins-
vegar ljóst að verkalýðshreyfingin
ætlar launafólki stærri hlut. Það er
brýnt að ná auknum kaupmætti. Það er
brýnt að styrkja stöðu þeirra sem veik-
astir standa.“
taldir hófsamir. Samt hafa stjórnvöld
oftar en nokkru sinni áður talið sér
nauðsynlegt að grípa inn í og ógilda
kjarasamningana að hluta. Þetta er
orðið að föstum lið í öllum efnahags-
aðgerðum stjórnvalda.
Enginn efast um rétt ríkisstjórnar til
þeirra aðgerða, sem hún telur nauðsyn-
legar hverju sinni, en oft hljóta menn
að draga í efa réttsýni valdsins og hug-
kvæmni.
Við þessar aðstæður er ljóst að kjara-
samningar, sem ekki taka mið af stefnu
stjórnvalda, eru gagnslitlir, nema laun-
þegahreyfingin sé öll tilbúin til átaka,
og sannfærð um réttmæti og gagnsemi
gerða sinna.“
Múrar
Björn fjallaði því næst um ýmsa fleti í
samningamálunum: „Svokölluð
launahvetjandi kerfi hafa reist múra á
milli þeirra sem þeirra njóta og hinna.
Á þessum vanda var að nokkru tekið í
síðustu samningum og framkvæmd
samningsákvæðanna verður að verða
myndarleg. Einmitt þessi innbyrðis
vandamál verkalýðshreyfingarinnar
eru að verða hennar Akkilesarhæll. í
stað þess að beina spjótum þekkingar
og reynslu að ríkisvaldi og
atvinnurekendum reyna nú ýmsir að ná
sérárangri, og um leið, af skammsýni,
að efla tortryggni á heildarsamtök
Iaunþega...“ Björn nefndi dæmi þessu
til skýringar og nefndi að framúrstefna
gæti verið góð „ef hún er framkvæmd
af sterkum aðila til þess að aðrir veikari
megi fylgja í kjölfarið. Þetta sönnuðu
Húsvíkingar í síðustu samningum. En
sé framúrstefnan til þess gengin að ná
yfirstöðu eftir landshlutum og aðstöðu
er hún annars og verra eðlis.“
Sjálfstætt afl
Björn lagði áherslu á að stjórnmála-
flokkarnir segðu verkalýðshreyfing-
unni ekki fyrir verkum: „Þó að Al-
þýðuflokkurinn í upphafi væri undir-
staða verkalýðshreyfingarinnar þá er
hann það ekki lengur. Hvorttveggja
hefur breyst. Verkalýðshreyfingin er
nú sjálfstætt afl til mótvægis við ásækni
vinnukaupendanna til lægri fram-
leiðslukostnaðar og gróða.“
Ákvörðun í júh
Björn varaði við oftrú á bónus- og
ákvæðisvinnu og sagðist ekki vera
fylgjandi hugmyndum um nýtt skipulag
ASI heldur „að leggja áherslu á dug-
meiri vinnu í núverandi skipulagi
ASÍ.“ Hann hvatti menn til að fylgjast
vel með hvað ríkisstjórnin geri á næstu
dögum og að taka ákvörðun um hugs-
anlega uppsögn samninga ekki fyrr en í
júlí. Björn endaði ræðu sína á þessa
leið: „Ég vil að lokum þakka sérstak-
lega fyrir að fá að vera í dag með verka-
lýðsfélagi Borgarness, sem er, að öðr-
um ólöstuðum, vökulast þeirra verka-
lýðsfélaga, sem ég þekki til og hefur í
mörgum greinum sýnt fyrirmyndar-
framtak og það í verki án stóryrða-
skrums.“
Myndin er tekin á 1. maí fundinum í Borgarnesi og sýnir Björn í ræöustól og hluta áheyrenda.
VINNAN 7