Vinnan - 01.05.1984, Page 21

Vinnan - 01.05.1984, Page 21
eftirfarandi skýringar að fylgja með skattframtali: — Um hvaða útgjöld er að ræða um- fram venjulegan kostnað. — Hver eru helstu málsatvik, sé um veikindi eða slys að ræða og hversu lengi má ætla að afleiðingarnar vari. — Greina þarf frá áætluðum tekjum, bótum og styrkjum á yfirstandandi ári. — Með þessum skýringum þarf að fylgja læknisvottorð. — Ef um lát maka er að ræða þarf að fylgja með nafn og nafnnúmer hins Iátna og tilgreina þarf dánardag. Til athugunar við Iát maka Ef maki hefur látist á árinu, þ. e. fyrir gerð þjóðskrár 1. desember, fær eft- irlifandi maki áritað skattframtal sem einstaklingur og telur fram sam- eiginlegar tekjur fyrir allt árið. Ef þess er óskað sérstaklega er hægt að telja fram sameiginlegar tekjur fram að andláti maka og telja síðan fram sem einstaklingur þær tekjur sem um er að ræða eftir andlát maka. Til athugunar almennt Pegar um er að ræða beiðni um ívilnun er nauðsynlegt að greina mjög skýrt frá öllum málsatvikum. Sérstök eyðublöð eru til í þeim tilgangi hjá skattyfirvöld- um á hverjum stað, en einnig er hægt að skrá upplýsingarnar á blað sem síðan er látið fylgja skattskýrslu. Síðan ber að geta þess í dálkinum fyrir athugasemdir að slíkt blað fylgi með skattskýrslu. Gæta þarf strax að þegar álagning er kunn hvort orðið hefur verið við beiðni um ívilnun og kæra til skattstjóra innan 30 daga ef fólk telur sig órétti beitt. Eldra fólk getpr ætíð fengið aðstoð hjá skattstjórum eða umboðsmönnum þeirra við gerð framtals ef þess er óskað. Landinu er skipt í 9 skattumdæmi og að auki eru umboðsmenn utan aðseturs skattstjóra. Ríkisskattstjóri Skúlagötu 57 101 Reykjavík Sími91-17490. Veistu... að sveitarstjórnir geta, og hafa raunar gert, veitt frekari ívilnanir eftir að skattstjórar hafa fjallað um málið, en til þess þarf sérstaka beiðni. Sími Ársfjórðungsgjald fellt niður Póst- og símamálastofnuninni ber að fella niður fast ársfjórðungsgjald af venjulegum síma hjá ellilífeyrisþegum með eftirtöldum skilyrðum samkvæmt reglugerð: — Að ellilífeyrisþegi njóti óskertrar tekjutryggingar. — Að ellilífeyrisþegi búi einn í íbúð en sé hann í hjónabandi eða öðru sam- býli þá uppfyili hver einstaklingur kröfur reglugerðarinnar. — Umsækjandi telst þó uppfylla skil- yrðin ef sambýlismaður nýtur maka- VINNAN 21

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.