Vinnan - 01.05.1984, Page 26
resept út á afmæli (þó það væri tvisvar á
ári), töðugildi og fleiri tilefni.
Það var síður en svo vínlaust þrátt
fyrir bannið. Landinn var útbreiddur.
En hann þótti vondur. Þegar áfengis-
banninu var aflétt var mun meira
drukkið bæði í og utan vinnutíma.
Eitt ber að nefna í sambandi við
áfengisneyslu og það var notkun þess
við kosningar. Reynt var af hinum
ýmsu stjórnmálaflokksaðilum að lokka
á kosningadaginn óvissa kjósendur
með áfengi. Attu þeir að greiða þeim
flokki atkvæði er vel bauð með vín-
anda. Það er vafasamt hvort þessir
náungar hafi kosið í anda gjafarans.
Þetta var upp úr 1930.“
Meira Iagt upp úr
manninum
„Skrýtin pólitík í þá daga, þegar 2
menn úr hverjum flokki voru kosnir.
Fólk lagði meira upp úr manninum
heldur en pólitíkinni. Á fjölda mörgum
seðlum var kosið svona sitt á hvað fólk
úr andstæðum flokkum. Sterkasti
flokkurinn var Sjálfstæðisflokkurinn.
Samt var Einar Olgeirsson kosinn og
það var ekki allt pólitík. Bæði var það,
að Einar var alinn upp hér í bænum og
vel þekktur. Reglusamur og átti ákaf-
lega létt með að hafa áhrif á fólk. Hafði
þannig framkomu. Glaðlegur og talaði
við hvern sem hann hitti og fólki fannst
til um það. Þeir voru ekki vanir því
sjálfstæðismennirnir hérna, að fara að
ávarpa einhvern ræfil úti á götu eða
eitthvað svoleiðis. Eða heilsa honum
nema kosningar væru í nánd. Einar
vann upp ótrúlegt fylgi strax og hann
fór fram.“
Gert at í fólki
Almenn viðhorf til þeirrasem tóku þátt
í kjarabaráttu voru neikvæð í byrjun.
Kvenfólk tók síður þátt í hörðum að-
gerðum, slík afskipti voru látin bitna
harðar á þeim en karlmönnum.
„Það var nokkuð snemma í tíðinni
sem 1. maí göngur hófust. Það var mik-
ill kraftur í þeim og þær fóru víða um
bæinn. Þær voru miklu meira áberandi
þá en þær eru núna.
Það var gert mikið at í því fólki sem
tók þátt í 1. maí göngunum. Sérstak-
lega til að byrja með. Það voru and-
stæðingar þeirra sem stóðu fyrir því.
Þeir sem ekki tóku þátt í þessum göng-
um, voru ekki fylgjandi þeim, leiddist
þær og sættu sig ekki við þær. Það átti
bæði við um kröfurnar og þær baráttu
aðferðir sem notaðar voru. Ég var á
móti þessu vegna þess að þetta var ekki
líklegt til að bera árangur. Andspyrnan
var of mikil til þess.“
Greinin er byggð á útdráttum úr við-
tölum við Ásgeir Kristjánsson, Baldínu
Elínu Sigurbjörnsdóttur, Ingólf Árna-
son, Ólaf Aðalsteinsson og Sóleyju
Tryggvadóttur.
Kveðjur I tilefni
1. maí
Launamálaráð ríkis-
starfsmanna innan BHM
Samband íslenskra
bankamanna
Samband almennra
lífeyrissjóða
Hið íslenska
kennarafélag
Bókabúð Máls
ImI og menningar
26 VINNAN