Vinnan - 01.05.1984, Page 35

Vinnan - 01.05.1984, Page 35
f ölfusborgum hefur verið tekid í notkun vandað og skemmtilegt badhús, sem eykur mjög gildi staðarins sem hvíldarstaðar. Fyrir utan baðhúsið er þægileg setulaug og allur frágangur í kringum húsið og laugina til fyrirmyndar. 1800 kr. á viku í orlofshúsunum Sígur á ógæfuhlið í atvinnumálum í mars í fyrra var um 1.3% atvinnu- leysi, eða sem svarar að 1400 manns væru atvinnulausir að jafnaði dag hvern. Þegar við ræddum við Óskar Hallgrímsson, forstöðumann Vinnu- máladeildar félagsmálaráðuneytisins, nú í maíbyrjun voru ekki komnar tölur fyrir apríl, en samkvæmt tölum mars- mánaðar hafði atvinnuleysið aukist nokkuð, eða úr 1.3% í 1.6%, en það þýðir að um 1800 manns hafi verið at- vinnulausir að jafnaði. — Astandið er því heldur lakara en í fyrra, sagði Óskar, en gera má ráð fyrir að erfiðara verði með sumarvinnu en í fyrra því nú er mun meira aðhald í framkvæmdum, ekki síst hjá hinu opin- bera. Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart í atvinnuþróuninni? - Nei, ástandið á Akureyri er eins, og þar eru engin batamerki sjáanleg. Það þarf engum að koma á óvart, því það er þróun sem hefur átt sér langan aðdraganda. Aftur á móti hefur ástandið í Reykjavík heldur lagast. Óskar sagði að það yrði ekki fvrr en apríltölur lægju fyrir að farið yrði að funda um hugsanlegar aðgerðir vegna sumarvinnu skólafólks, en það væri þegar farið að skrá sig hjá ráðningar- stofum. Eingöngu konur í stjórn Versl.m.f. Arnessýslu I tilefni samantektar okkar í 2. hefti VINNUNNAR um áhrif kvenna í verkalýðshreyfingunni hafði Sigríður Ólafsdóttir, formaður Verslunar- mannafélags Árnessýslu samband við okkur. Hún benti á að í stjórn félagsins væru nú eingöngu konur, en í félaginu voru 255 fullgildir félagsmenn um sl. áramót. Milli 80-85% félagsmanna eru konur en þetta er í fyrsta skipti sem kona tekur við formannsstöðu í félag- inu. Nú er rétti tíminn til þess að panta sér viku í orlofshúsi í sumar. Orlofshús að- ildarfélaga ASÍ eru víðsvegar um land- ið. Helstu staðirnir eru Ölfusborg- ir, Hraunborgir (Sjómannasamtökin o. fl.), Orlofsbyggðin Einarsstöðum í Suður-Múlasýslu (Verkalýðsfélög á Austfjörðum o. fl.), Orlofsbyggð múr- ara (Öndverðarnesi, Grímsnesi), Or- lofsbyggðin Húsafelli (Sókn, Fram- sókn, VR o. fl.), Orlofsbyggðin Svignaskarði (Iðja, Félag starfsfólks í veitingahúsum, Sókn, Dagsbrún o. fl.), Orlofsbyggðin Vatnsfirði (VR, Fram- sókn, Eining, Dagsbrún o. fl.), Orlofs- byggðin Illugastöðum í Fnjóskadal (Iðja Akureyri, VR, Aldan Sauðár- króki, Baldur ísafirði o. fl.). Leigugjald á orlofshúsunum er nokkuð misjafnt eftir stöðum og aldri og útbúnaði húsa, en 1800 kr. á viku er algengasta gjaldið. 1800 kr. á viku kosta bústaðirnir á eftirtöldum stöð- um: Ölfusborgum, Húsafelli, Svigna- skarði, Vatnsfirði, Illugastöðum og Einarsstöðum. f Hraunborgum er gjaldið 2.000 kr. á viku. Á þeim stöðum sem hús eru leigð um helgar er gjaldið 1.000 kr. yfir helgina og 500 kr., ef um einn sólarhring er að ræða. Öll leiga orlofshúsa fer gegnum stéttarfélögin. G.R. Kveðjur í tilefni 1. maí OIOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis VINNAN 35

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.