Vinnan - 01.05.1984, Page 38

Vinnan - 01.05.1984, Page 38
Lífeyrissjóður Austurlands, Neskaupstað Lífeyrissjóður stéttarfélaganna í Skagafirði Verkalýðsfélagið Stjarnan Grundarfirði Verkalýðsfélag Fljótsdalshéraðs Egilsstöðum Sjómannafélagið Jötunn, Vestmannaeyjum Verkalýðsfélag Reyðarfjarðarhrepps, Reyðarfirði Annar fundur um kjaramál 21. maí ASÍ efndi til fundar um kjaramálin í kjölfar fundanna um skipulagsmálin. Boðaðir voru fulltrúar landssamband- anna og svæðasambandanna. Tilgang- ur fundarins var að koma af stað um- ræðu um hvernig standa skuli að kjara- málum á næstunni. Annar fundur er boðaður mánudaginn 21. maí. í milli- tíðinni er fjallað um kjaramálin á vett- vangi sambandanna. Menningardagar í orlofsbúðum I sumar mun menningin formlega halda innreið sína í orlofsbúðirnar, að minnsta kosti tvær þeirra: Ölfusborgir og Illugastaði í Fnjóskadal. Ihverri viku mun MFA ásamt viðkomandi orlofsbúðum standafyrir menningar- dagskrá — úti eða inni — með listafólki og skemmtikröftum ýtniss konar. Ef vel tekst til mun verða boðið upp á slíka dagskrá í fleiri orlofsbúðum næsta sumar. Markmiðið er, segir Tryggvi Þór Aðalsteinsson, framkvœmdastjóri MFA, að bjóða fólki upp á sem fjölbreytilegasta dvöl í orlofsbúðunum og blanda hvíld og afslöppun með skemmtun og menningarstarfseml. Að ferðast og fræðast I októbermánuði í haust munu MFA ásamt Samvinnuferðum/Landsýn standa fyrir kynnisferð til Bretlands. Tilgangurinn er að gefa fólki úr verkalýðsfélögunum kost á að kynnast bresku þjóðlífi og breskum verkalýðs- félögum. MFA hefur áður staðið að sambæri- legri kynnisferð til Noregs, þá í sam- vinnu við Alþýðuorlof. Einkunnarorð ferðarinnar þá sem nú voru „Að ferðast ogfræðast“. Gert er ráðfyrir því að þátttakendur í Bretlandsferðinni geti _ svo dvalist nokkra daga á eigin vegum. Ferðin, sem enn er á undirbúnings- stigi, mun trúlega taka 7-10 daga. Félagsmálaskólinn endurskoðaður MFA vinnur nú að endurskoðun Fé- lagsmálaskóla alþýðu. — Það er bæði nauðsynlegur og sjálf- sagður liður í starfsemi og þróun skól- ans, segir Tryggvi Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri MFA. - Nám af þessu tagi þarf að vera í sífelldri endur- skoðun. Við munum taka til athugunar markmið skólans, skipulag, námsefni. kennsiu, kennslufyrirkomulag og fleira. Viðræður um þessi mál munu fara fram núna í vor með öllum þeim sem að skólanum standa. Einnig stendur til að gefa út bækling um Félagsmálaskólann í haust, þegar þessari endurskoðun og skipulagningu erlokið. G.R. Kveðjur í tilefni 1. maí 38 VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.