Vinnan


Vinnan - 01.03.1995, Side 7

Vinnan - 01.03.1995, Side 7
Formenn landssambanda innan ASI áfundi með Davíð Oddssyni forsœtisráðherra um sameiginlegar kröfur verkalýðshreyfingarinnar á hendur stjórnvöldum. Frá vinstri: Grétar Þorsteinsson,formaður Samiðnar, Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Islands, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna og fyrsti varaforseti ASI, Benedikt Davíðsson.forseti ASI, og Davíð Oddsson forsœtisráðherra. finna leiðir til að lækka vöru- verð á landsbyggðinni. Verk- og starfsmennt- un, húsnæðismál ASÍ krafðist þess af stjórn- völdum að fé yrði lagt í nýjar verk- og starfsmenntabrautir i framhaldsskólastigi. Ríkis- stjórnin lofaði að beita sér fyr- ir því að framhaldsskólafrum- varp yrði samþykkt á Alþingi fyrir þinglok og samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar ættu þau lög að skapa nýjar forsendur til margvíslegra breytinga á verk- og starfs- menntun. Einnig er lofað að unnið verði að úrbótum í málum fólks í atvinnuleit með virkum aðgerðum á sviði verkmennt- unar og starfsþjálfunar. A þessu ári verður 15 milljónum króna viðbótarframlagi ráð- stafað sérstaklega til þessara mála. í yfirlýsingu um húsnæðis- mál kemur fram að á næstunni verður lokið við að kanna um- fang á greiðsluvanda heimil- anna. Einnig að stefnt sé að því að fjölga greiðsludögum vaxtabóta og að greiðslur geti jafnvel gengið upp í afborgan- ir lána hjá Húsnæðisstofnun. Þá ætlar ríkisstjórnin að beita sér fyrir því að bankastofnanir og lífeyrissjóðir taki á við að skuldbreyta lánum, að ráðgjaf- arþjónusta Húsnæðisstofnunar verði aukin og frumkvæði hennar að ráðgjöf gagnvart einstaklingum verði eflt. Fallið er frá því að taka fulltrúa verkalýðshreyfingar- innar úr húsnæðisnefndum sveitarfélaga eins og áformað var í frumvarpi sem þegar hef- ur verið lagt fyrir Alþingi. Á- kveðið hefur verið að lækka afskriftir í félagslega íbúða- kerfinu úr 1,5% í eitt prósent, auk þess sem félagsmálaráð- herra hefur tilkynnt áform um að þrengja verulega skilyrði fyrir því að vextir geti hækk- að. Ríkisstjórnin hyggst undir- búa í samráði við aðila vinnu- markaðarins aðgerðir sem tak- marki svonefnda gerviverk- töku og tryggi réttindi laun- þega. Allt að þremur milljón- um króna verður varið til að tryggja að fram- hald verði á verkefnum sem ætlað er að gera tillögur um aðgerðir til að draga úr launamun karla og kvenna. Að kröfu atvinnurekenda verður búin til sérdeild í Árbyrgðarsjóði launa fyrir fyrirtæki innan VSÍ og VMS. Loks lofar ríkis- stjórnin því, að tengslum við fastráðn- ingarsamninga fisk- vinnslufólks verði lög- um um atvinnuleysistrygging- ar breytt í því skyni að fast- ráðning þess verði möguleg. Um þetta var einnig gefin yf- irlýsing með samkomulagi Verkamannasambands Islands og samtaka atvinnurekenda um fastráðningarsamninga. Opið alla daga nema sunnudaga Bón- og þvottastöðin ? Sigtúni 3, sími 551 4820 y

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.