Stefnir - 01.05.1962, Page 5
VÍÐSJÁ
Laugardag og sunnudag þriðja og fjórða
marz s.l. efndi Samband ungra Sjálfstæðismanna
til námskeiðs í Borgarnesi um sveitarstjórnarmál
og voru ræðumenn valdir úr hópi þeirra
manna, sem eru í forystuliði flokksins í nokkrum
bæjar- og sveitarstjórnum, en þeir eru: borgar-
stjórinn í Reykjavík, Geir Hallgrímsson, bæjar-
stjórinn í Keflavík, Alfreð Gíslason, bæjar-
stjórinn í Vestmannaeyjum, Guðlaugur Gísla-
son, Jónas G. Rafnar, bæjarfulltrúi á Akur-
eyri og Ásgeir Pérursson, sýslumaður Mýra-
sýslu. Eftir lok þessarar ráðstefnu, sem þótti
takast með miklum ágætum og var þátttak-
endum til mikils gagns og ánægju þótti stjórn
S.U.S. og ritstjóra Stefnis rík ástæða til
að gefa lesendum ritsins kost á að kynnast þeim
margþættu viðfangsefnum, sem ráðstefnan fjall-
aði um ekki sízt vegna þess, að það er meðferð
þessara margþættu mála, sem í hönd farandi
bæjar og sveitarstjórnarkosningar, hljóta að veru-
legu leyti að snúast um.
Grundvallarskilyrði þess, að einu bæjar- eða
sveitarfélagi geti verið vel stjórnað og starf-
semi þess sé öllum íbúunum til farsældar, er
Otgel.: Samband ungra Sjálístæðismanna
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
JÓHANN J. RAGNARSSON
B0R6ARPRENT U F. - REYKJAVIK
að stjórnendurnir hafi til að bera haldgóða
þekkingu á þeim viðfangsefnum, sem leysa
þarf.
Erindin, sem flutt voru á ráðstefnunni í Borg-
arnesi og hér birtast eru eftir nokkra forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins, sem allir eru gjör-
kunnugir þessum málum af reynslu, sem þeir
hafa aflað sér í löngu starfi að sveitarstjórnar-
málum, og eru þessi erindi því sérstaklega vel til
þess fallin að verða þeim æskumönnum, sem
nú verða kosnir til að starfa að málefnum sveit-
arfélaganna og öðrum þeim, sem fræðast vilja
um þessi mál, gagnleg ábending um hin þýð-
ingarmestu þeirra.
Æskan og SjálfstœMsjlokkurinn.
Það, sem telja má, að sé hvað athyglisverðast
við framboð til væntanlegra bæjarstjórnarkosn-
inga er hinn mikli fjöldi æskumanna, sem nú
skipar framboðslista Sjálfstæðismanna víðsvegar
um landið, þar á meðal í efstu sætum listanna.
Þetta þarf að vísu ekki að koma neinum á
óvart, sem þekkir til starfsemi Sjálfstæðisflokks-
STEFNIR 3