Stefnir - 01.05.1962, Blaðsíða 7

Stefnir - 01.05.1962, Blaðsíða 7
ALFREÐ GÍSLASON, ulþingismaöur: SVEITARFÉLÖGIN OG STJÓRNMÁLIN Efni það: „Sveitarfélögin og stjórnmálin“, sem mér hefur verið valið sem erindi á þessu námskeiði, er of margþætt og yfirgripsmikið til þess að hægt sé að gera því nokkur skil að ráði í stuttu erindi. Samkvæmt stjórnskipunarlögum okkar eru sveitar- sýslu- og bæjarfélög einn aðal hrningar- steinn hins íslenzka þjóðskipulags og ráða þau í flestum efnum málum sínum sjálf, en eru þó háð eftirliti og umsjón ríkisstjórnarinnar. í stjórnarskránni segir í 76. gr., að rétti sveitar- sveitarfélaganna til að ráða sjálf málefnum sínum með umsjón stjórnarinnar skuli skipuð með lögum. Löggjafarvaldið hefur því sett fjöl- mörg lög, sem ákveða um stjórnir sveitarfélaga og framkvæmdir á málefnum þeirra. Auk þess má segja, að nær öll önnur löggjöf snertir að meira eða minna leyti sveitar- og bæjarfélögin og íbúa þeirra. Samkvæmt stjórnarskrá okkar er fram- kvæmdavaldið í höndum forseta Islands og ann- arra stjórnarvalda, þ. e. ríkisstjórnarinnar og þeirra annarra stjórnavalda, sem hún hefur falið famkvæmd ýmsra mála s.s. sveitar- og bæjar- félögum, samkvæmt almennum lögum. Bæjar- og sveitarstjórnir fara því í umboði ríkisvaldsins með nokkurn hluta framkvæmda- valds hins íslenzka ríkis. Það hvílir því einnig að því leyti mikil skylda og ábyrgð á höndum þeirra, sem þar fara með stjórn, auk ábyrgðar þeirra á framkvæmd málefna síns eigin sveitar- félags. Það eru ekki síður skiptar skoðanir í kaupstöð- um og hreppum á því hvernig beri að stjórna eigin málefnum heima fyrir, en er á milli lands- manna um það, hvernig stjórna eigi málefnum þjóðarinnar eða hvernig þeirra stjórn er farið. Það er því óhjákvæmilegt, að menn skiptist í flokka um sveitarstjórnarmálin eins og um lands- málin, og það, að framkvæmdavald ríkisins og héraðsstjórna er nátengt samkvæmt stjórnskipun- arlögum og héraðsstjórnarlögum, er ekki óeðli- legt, að aðalreglan sé sú, að menn haldi sér alment í sveitarstjórnarmálum við sinn lands- málaflokk. Þetta er þó hvergi einhlít regla. Mjög margir eru þeir, sem greiða atkvæði sitt einum flokki til Alþingis, en öðrum til sveitarstjórnar. Ræð- ur þar oftast að nokkru persónulegt viðhorf til þeirra manna, sem í framboði eru, einkum til sveitarstjórnar. Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar 1958 gefa góða hugmynd um innbyrðis afstöði stjórnmála- flnkkanna og viðhorf kjósendanna til þeirra í hinum ýmsu sveitar- og bæjarfélögum. Mætti vinna úr kosningaskýrslum mikinn fróðleik í þessum efnum, sem mér hefur ekki unnizt tími til, en ég mun þó reyna að gefa stutt yfirlit, sem hvergi nærri er eins úr garði gert og ég vildi, en ætti þó að veita nokkurn fróðleik. í landinu eru 228 sveitarfélög, þar af 14 kaupstaðir, 18 kauptúnahreppar (með yfir 300 íbúa þar sem % þeirra búa í kauptúni) og 196 STEFNIR ö

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.