Stefnir - 01.05.1962, Qupperneq 19

Stefnir - 01.05.1962, Qupperneq 19
Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga fer alveg cftir landslögum, og hefur rikisvaldið því óneit- anlega sterkari aðstöðu en sveitarfélögin að kveða á um, hver mörkin milli þessara tveggja aðila skuli vera. Um verkaskiptingu gagnvart einstaklingunum hins vegar segja landslög að vísu nokkuð, en í því efni fer að öðru leyti eftir stjórnmálastefnu á hverjum stað. I iögum eru ákveðin verkefni fengin sveitar- félögunum í hendur, og má þar sérstaklega nefna upptalninguna í 10. gr. sveitarstjórnarlaganna frá 1961 eins og síðar verður vikið að. II. Alþjóðaorðið fyrir sveitarfélag er kommune, dregið af latneska orðinu sameiginlegur og merkir raunverulega þá, sem innan sömu víg- girðingar eru. Það er líka svo, að fræðimenn telja, að fyrsta hlutverk sveitarfélaga hafi verið að annast varnir gegn sameiginlegum óvini. Má segja, að þar sé að finna vísi að lögreglu, sem ætlað er raunar að tryggja almannafrið innan samfélagsins og hegna þeim, sem hann rjúfa. Þetta á að vísu fyrst og fremst við um hæjar- félög. Á íslandi stendur nokkuð öðruvísi á, því að hér hafa menn búið í dreifbýli allt fram á þessa öld. Því eru hrepparnir elztu ís- lenzku sveitarfélögin. Það er fyrst 1786, að kaup- staðir koma til. En viðfangsefni hreppsfélaga í dreifbýli hljcta að verða nokkuð önnur en kaup- staða. j n~v'" Svo er talið, iað þegar á 10. öld hafi myndazt hér vísir að sveitarfélögum. Þessi sveitarfélög, hrepparnir, höfðu fyrst og fremst það verk- efni að sjá um framfærslu jrurfamanna og hefur það haldizt æ síðan, þótt í öðru formi sé nú. Þetta sýnir sérstöðu íslenzkrar stjórnskipun- ar, því >að í nágrannalöndunum mun kirkjan yfirleitt hafa farið með slík mál. Auk framfærslumálanna höfðu hrepparnir með höndum eins konar vátryggingarstarfsemi, hreppsmenn höfðu gagnkvæma ábyrgð á bruna- tjóni í hreppnum og tjóni af tilteknum búfjár- sjúkdómum. Þá höfðu hrepparnir tiltekin verk- efni í sambandi við upprekstur fjár og fjall- göngur, svo og grenjavinnslu. Hefur það einnig haldizt fram á þennan dag, jafnvel Reykjavík þarf að inna af hendi ýmsar skyldur í þessum efnum. Ef litið er til kaupstaða hér á landi, þá er þess að geta, að jafnvel áður en Reykjavík fær kaupstaðarréttindi 1786 er komin hér á lög- gæzla. Jafnframt hefst lítill vísir að gatnagerð. Eldhræðsla var mjög mikil, enda urðu í Reykjavík stórbrunar mjög snemma. 1 auglýs- ingu, er bæjarfógeti gaf út 1806, voru ákveðnar varúðarráðstafanir og ýmis bönn sett til að hamla gegn eldhættu, t.d. var mönnum bannað að reykja pípu, nema höfð væri hetta yfir pípunni! En annars konar tóbaksreykingar þekktust þá tæpast. j Af verklegum framkvæmdum, sem svo mjög ber á nú, var næsta lítið fyrstu áratugi og jafn- vel fyrstu öldina í Reykjavík. Meðal þess fyrsta, sem finna má í bæjarreikningunum um þau efni, er vinna við vatnsbólið eða póstinn í Aðalstræti, sem svo var tíðast kallaður. 28. september 1803 er í bók bæjargjaldkera að finna þennan útgjaldalið: „Nedsat en ny Vandpost, som ifölge kiöbmand Petræus’s ved- lagt Quittering No. 1 har kostet Rbd. 20.0“. Það þurfti ekki aðeins að kaupa efni, heldur líka vinnu, því að skömmu síðar er bókað um viðhald á vatnsbólinu: „For 4 Tuugthuuslemmer til at rense Brönden m.v. Rbd. 1.0“. I / III. En hver eru verkefnin í dag? Það mun ekki ofmælt, að verkefni þess sveit- arfélags, þar sem ég þekki bezt til, sé margs STEFNIR 17

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.