Stefnir - 01.05.1962, Qupperneq 27

Stefnir - 01.05.1962, Qupperneq 27
sveitarfélögin hins vegar öruggar tekjur, sem hægt er ákveðið að reikna með. Með lagafrumvarpi því, sem nú er verið að undirbúa, er í fyrsta sinn samin heildarlöggjöf um tekjustofna sveitarfélaganna og fastar beild- arreglur um álagningu útsvara, sem gilda eiga fyrir landið allt. Eru tekjustofnarnir þessir: 1. Fasteignaskattur. 2. Aðstöðugjald. 3; Landsútsvör. 4. Framlag úr Jöfnunarsjóði. 5. Utsvör. F asteignaskattur. I lögum nr. 67 frá 1945 er sveitarfélögunum veitt heimild til að gera tímabundnar samþykktir til fimm ára í senn um álagningu fasteignaskatts. Hafa allar bæjarstjórnir notað sér þessa heim- ild, þó með mismunandi hætti. Sumstaðar með sama hundraðshluta af fasteignamati lóða og bygginga. Annars staðar með misháum hundraðs- hluta eftir notagildi eignarinnar. * I frumvarpi þessu er gert ráð fyrir fast- ákveðnum fasteignaskatti 2% af fasteignamats- verði byggingarlóða, 1% af fasteignamatsverði húsa og annarra mannvirkja og %% af fast- eignamatsverði túna, erfðafestulanda og annarra lóða. Þó að hér sé ekki um neina hækkun á hessum skatti að ræða miðað við gildandi lagaheimild, ef hún er notuð að fullu, verður það að teljast eðlileg og sjálfsögð þróun, að sami fasteigna- skattur sé lögleiddur hvar sem er á landinu, og losar það fyrirsvarsmenn sveitarfélaganna úr þeim vanda, að verða að meta það hverju sinni, hvað eðlilegt sé og rétt á hverjum tíma. Aðstöfiugjald. Gert er ráð fyrir í frumvarpinu, að heimildin til álagningar veltuútsvara verði felld niður, og í stað þess tekin upp svonefnd aðstöðugjöld. Veltuútsvörin, sem tekjustofn fyrir sveitarfé- lögin, hafa verið mjög umdeild og hafa sveitar- félögin átt í vök að verjast að halda þeirri heim- ild, sem lögfest hefur verið í sambandi við þau. Má með rökum benda á tvennt, sem óeðlilegt er í sambandi við álagningu veltuútsvaranna. I fyrsta lagi að um tvísköttun er að ræða í mörgum tilfellum, þar sem veltuútsvörin eru lögð á brúttótekjur og því, ef um tekjuafgang er að ræða, bæði greitt veltu- og tekjuútsvar af sömu upphæðinni. Hefur mjög verið á þetta bennt af mörgum, sem eru andvígir þessari tekjuöflunarleið sveitarfélaganna. I öðru lagi eru veltuútsvörin ekki viðurkennd, sem rekstrar- útgjöld og því ekki frádráttarbær við álagn- ingu tekjuskatts til ríkissjóðs og voru heldur ekki fyrr en með bráðabirgðabreytingunni á útsvarslögunum 1960 viðurkennd sem frádrátt- arbær við álagningu útsvars. Með hugmyndinni um aðstöðugjald eru báðir þessir agnúar afnumdir. Verður það ekki reikn- að af brúttótekjum, heldur samanlögðum út- gjöldum næstliðins árs, þar með talin efnis og vörukaup, og því í engu tilfelli lagt á tekjuaf- gang. Einnig er gert ráð fyrir í frumvarpinu að það verði talið til rekstursútgjalda og því frádráttarbært bæði við álagningu tekjuskatts og útsvars. i Má vel vera, að við þessa breytingu, ef að lög- um verður, þ.e. að leggja niður veltuútsvörin og taka aðstöðugjald upp í staðinn, sé um einhvern tekjumissi að ræða fyrir sveitarfélögin, en sá tekjumissir mun nást upp og meira til með auknu framlagi úr Jöfnunarsjóði. I Landsútsvör. Hugmyndin um landsútsvör er ekki ný. Hún hefur árum saman verið á dagskrá hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga, og einkum beinst að ýmsum einkasölum ríkisins, sölusamböndum, peninga- STEFNIR 25

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.