Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Side 13

Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Side 13
Fjarðarfréttir 13 Þeir feðgar Arngrímur Guðjónsson og Þórir í vinnusalnum. TREBORG Á ferð okkur um bæinn nú fyrir skömmu vakti athygli okkar reisuleg bygging við Bæjarhraun í nýja iðnaðar- og versiunarhverfinu handan Reykjanesbrautar. Þarna ræður ríkjum Arngrímur Guðjóns- son, eigandi að Tréborg við Reykja- víkurveg. Við tókum Arngrím tali og spurðum hann hvenær hann hefði byrjað byggingafram- kvæmdir. „Ég byrjaði á sökklinum í júní sl. og fyrstu vélarnar setti ég í húsið 15. október. Framleiðslan hófst strax í byrjun nóvember svo það má segja að þetta hafi gengið nokkuð vel.“ Hve stór er þessi bygging? „Hún er um 700 m2 að grunnfleti. Þetta hús er fyrsti áfangi því ég hef hugsað mér að reisa verslunarhús- næði hér fyrir framan og stefni að því að ljúka því innan tveggja ára.“ Hvað er svo framleitt? „Fyrst og fremst húsgögn í barna og unglingaherbergi. Framleiðslan hefur nánast öll miðast við það“. Þú ert þá óhræddur við innflutt húsgögn? byggir stórt „Já, það er ég. Ég hef einnig flutt inn húsgögn en það fer mjög minnk- andi. Ég tel að eitt stærsta vandamál hjá okkur íslendingum sé þessi mikli innflutningur á hinum ólíklegustu vörum sem við hæglega getum verið sjálfum okkur nóg um. Ég er alveg ósmeykur við samkeppni og er bjartsýnn á framtíðina í þessum efnum“ Hversu margir vinna við fyrirtækið? „Eins og er vinna 7 manns hérna hjá okkur. Þetta er ekki komið í fullan gang enn og við eigum von á mjög fullkomnum vélasamstæðum innan skamms.“ Það er ekki til setunnar boðið og í mörg horn að líta hjá þeim feðgum Arngrimi og Þóri. Við kveðjum þá með óskum um gott gengi og það er ekki laust við að við höfum smitast af þeirri bjartsýni sem við höfum orðið vitni að, mitt í ölium þeim drunga og dróma sem virðist ein- kenna svo þessa siðustu og verstu tíma. egi 64J 1HOS/Ð f Reykjavíkurv iafnarfirði, sími 54499 \Ov Gleðileg jól Farsælt komandi ár þökkum viðskiptin. lllll HAFNARBORG ■■■■■ Hafnarborg. Strandgötu 34 Sími: 50080 SHARP örbylgj'uofnar Rafbúðin Álfaskeiði 31 - S. 53020

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.