Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Síða 33
Fjarðarfréttir
33
Tai“. í þessu sambandi er ástæða
til að taka fram að Kínverjar virð-
ast kunna öðrum mönnum betur
að umgangast görótta drykki án
þess að vandræði hljótist af. Af
öllum þeim aragrúa fólks er við
hittum við margvísleg tækifæri á
ferðum okkar sáum við aldrei
ölvaðan mann. Gætum við margt
af þeim lært í þeim efnum eins og
svo mörgum öðrum. Kínverjar
eru meistarakokkar og Peking-
öndin er eitt mesta lostæti sem
ég hef smakkað. Peir eru líka
snillingar í að skreyta réttina. Clr
radísum og rófum skera þeir
hinar fínlegustu rósir og krúsin-
dúllur, og úr grænmeti og
eggjum búa þeir til furðulegustu
fugla og fiska og aðrar fígúrur svo
hrein unun er á að horfa hvað þá
að borða.
í HITABYLGJU Á FÖGRUM
STAÐ
í Canton héldum við tvenna
tónleika við ágæta aðsókn og
undirtektir. Og við fengum tæki-
færi til að heimsækja marga
merka og fagra staði, t.d. suð-
ræna garða með unaðslegum
blómum og öðrum gróðri. Postu-
línsverksmiðju, þar sem stúlkur
mótuðu með eldings hraða fagrar
styttur af miklum hagleik, Budda-
og Taó- pagóður, stórkostlega
fimleikasýningu sáum við og
heimsóknin í barnahöllina var
eftirminnileg. Loftslagið í Canton
er mjög heitt á þessum árstíma
eða 36-38° daglega og það er
mikill raki í loftinu. Það kom sér
því sannarlega vel hve hótelið og
bílarnir voru vel loftkældir. Síð-
ustu dagana okkar í Canton frétt-
um við að von væri á „Tai Fang“
þ.e. hvirfilbil og þegar svo
stendur á hitnar og hitnar í veðri
og loftið verður algerlega stillt og
mjög molllulegt. Hvirfilbylurinn
kom ekki fyrr en við vorum farin
frá borginni, en seinna sáum við
strókinn úr flugvélinni og sumir
náðu ágætum myndum af þessu
náttúrufyrirbæri.
PEKING HÁPNKTUR ÓGLEYM-
ANLEGRAR FERÐAR
30. júlí komum við svo til Pek-
ing, höfuðborgar þessa fjöl-
mennasta ríkis veraldarinnar.
Nokkur blæmunur fannst mér
vera á Canton og Peking. Fólkið
í Peking virtist heldur hávaxnara
og alvörugefnara og e.t.v. ekki
eins fljóttekið, en merkileg saga
borgarinnar og hinar stórkost-
legu byggingar bæði nýjar og
gamlar setja sérstakan virðuleika
og menningarblæ á staðinn, og í
mínum huga er dvölin í Peking
ásamt ferðinni á Kínamúrinn
mikla hápunkturinn á þessari
annars ógleymanlegu ferð. Það
rigndi er við komum til Peking,
og raunar rigndi mestan tímann
sem við vorum þar, sem kom sér
mjög vel, því við það snarlækkaði
hitastigið eða úr 36° niður í 26°,
sem gerði okkur lífið mun bæri-
legra en ella. í Peking héldum við
þrenna tónleika í ágætum kon-
sertsal og lokatónleikunum var
sjónvarpað um allt Kínaveldi.
Sjálfsagt höfum við aldrei haft
jafn marga áheyrendur og í það
skiptið, því við urðum vör við að
mikið er horft á sjónvarp í Kína
eins og raunar annarstaðar í
heiminum. Auk þess komum við
einnig fram í Radio Peking með
kórnum þar og var það ánægju-
leg stund. Fyrsta kvöld okkar í
Peking var efnt til stórkostlegrar
veislu í hinni geysistóru alþýðu-
höll er stendur við torg hins
himneska friðar í hjarta borgar-
innar. Mér verður það alltaf
minnistætt að er við komum inn
í stóran fagurlega skreyttan sal-
inn þar sem hófið fór fram, sást
þar ekki einn einasti maður. En
brátt vorum við leidd bak við eins
konar skerm í hinum enda salar-
ins, og þar biðu okkar ýmsir fyrir-
menn staðarins og buðu okkur
velkomin. Var síðan sest að
snæðingi og skeiðað í gegnum
14-15 rétta máltíð með tilheyr-
andi skálaglamri og ræðuhöld-
um.
KÍNAMÚRINN — EITT AF
FtlRÐUVERKGM VERALDAR-
INNAR
í Peking er margt að sjá og
skoða m.a. hinn fagra Beihai-
garð, torg hins himneska friðar,
keisarahallirnar fornu (forboðnu
borgina og sumarhöllina), Ming
grafhýsin, Pekingóperuna,, en
sjálfsagt verður okkur öllum
ógleymanlegt að standa á Kína-
múrnum mikla, sem er eitt af
furðuverkum veraldarinnar og
eina mannvirkið á jörðinni, sem
sést frá tunglinu. Bygging múrs-
ins var lokið fyrir 2200 árum og
tók verkið um tvær aldir. Hann er
6350 km. langur, sem þýðir að
hann næði rúmlega fjórum sinn-
um kringum hringveginn hjá
okkur. Mao formaður lét eitt sinn
svo um mælt að enginn væri
hetja, sem ekki hefði staðið á
múrnum mikla, og hefur nú
Hafnarfirði bæst mörg góð hetjan
eftir þessa ferð, a.m.k. ef taka má
mark á orðum Maos formanns.
Hér eru Hafnfirðingarnir á siglingu á vatninu við hina fornu Sumarhöll
keisarans.
Egill ræðir við ,,kollega“ sína hjá útvarpsstöðinni í Peking.
r r -- 1 f A i %’ 1
A 1 + v Æ á }y 1
......
HAFNFIRÐINGAR!
Leitið ekki langt yfir skammt.
Leikföng í fjölbreyttu úrvali.
LEIKBÆR
Reykjavíkurvegi 50, sími 54430
Með lögum skal land byggja!
Hljómplötur og kasettur í úrvali.
Filmuframköllun (samdægurs, sé
komið með filmuna fyrir kl. 11°°)
Verið velkomin!
Hljómplötuverslunin
MARS/steinar hf.
Strandgötu 37, Sími 53762
*
ATHUGIÐ:
Verið tímanlega
fyrir jólin með
permanent, klipp-
ingar og strýpur.
Einnig andlits-
snyrtingu, litanir
og fótsnyrtingu.
ATH.: Við höfum opið á
laugardögum frá 9°° - 1°°
Óskum viðskiptavinum okkar
GLEÐILEGRA JÓLA
HÁRGREIÐSLCI— OG SNYRTI-
STOFAN
Reykjavíkurvegi 62
sími 51938
Við kínverska múrinn.