Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Blaðsíða 36
36
Fjarðarfréttir
Lífsreynda konu, á besta aldri, dreymdi eitt sinn
að hún væri stödd í frumskógi, fáklædd mjög.
Skyndilega birtist stór svertingi í skógarþykkninu,
kviknakinn og ákaflega vel vaxinn. Konan tók á rás
og svertinginn á eftir og upphófst nú mikill eltingar-
leikur sem barst víða um skóginn. Svo fór þó að
lokum, að svertinginn náði konunni og hún spurði
með titrandi röddu: Hvað ætlarðu að gera við mig?
-,,Hvað ég ætla að gera við þig“, - svaraði surtur
hryssingslega,
- Hvernig í ósköpunum á ég að vita það. Þetta
er þinn draumur en ekki minn...“
*
Svo var það Hafnfirðingurinn sem ákvað að fara
í sumarleyfinu til Rómar. ,,Þú verður aldeilis að
gæta að þér,“ sagði vinur hans, „Það er allt að 40
stiga hiti í forsælu í Rom.“
„Hver segir að ég ætli að vera í forsælunni," sagði
Hafnfirðingurinn.
*
Þrír brekkusniglar komu á bar og pöntuðu sér
þrjú glös. Þegar þeir ætluðu að borga kom í Ijós,
að þeir voru ekki með peninga með sér. Varð úr
að einn færi heim til að sækja peninga og bað hann
hina að bíða og hreyfa ekki við glasinu sínu á með-
an. Þeir lofuðu því og hinn lagði af stað. Þegar
sniglamir tveir á barnum höfðu beðið í þrjár vikur
ákváðu þeir sín á milii að bíða ekki lengur eftir
hinum heldur drekka úr glasinu hans til að drepa
tímann. Þá heyrðist reiðileg rödd við hinn enda bar-
borðsins: Ef þið snertið glasið, sný ég við og hætti
við að sækja peningana..."
Einn góðviðrisdag síðastliðið sumar var lögreglan
að gera könnun á notkun öryggisbelta. Hún stöð-
vaði 3 unga Garðbæinga, reyrða í örygginsbelti,
tók í hönd bílstjórans og óskaði hónum til ham-
ingju með að vera fimmtugasti bíllinn sem stöðvað-
ur væri þar sem allir væru með öryggisbeltin
spennt. „Fyrir þetta færðu fimm þúsund krónur í
verðlaun. Hvernig geturðu best varið þessum pen-
ingum? spurði lögreglan.
Bílstjórinn svaraði án umhugsunar: „Ætli það sé
ekki best að drífa sig í bílprófið."
Þá gellur við í vininum í framsætinu: „Blessaður
taktu ekki mark á honum, hann lætur alltaf svona
þegar hann er fullur."
Þá sagði óróiegur farþegi í aftursætinu: „Eg vissi
alltaf að við kæmumst aldrei á Selfoss í stolnum
bíl.“
*
Kona ein lagði mikla áherslu á það við umboðs-
mann happdrættisins að fá mið nr. 21. (Jmboðs-
maðurinn lagði hart að sér og tókst að ná númerinu
sem konan óskaði eftir.
Þegar dregið var í happdrættinu kom stærsti vinn-
ingurinn á miða nr. 21. „Þú hlýtur a hafa fundið
þetta á þér kona góð,“ sagði umboðsmaðurinn við
konuna.
„Já, ekki get ég neitað því“, sagði konan. „í sjö
nætur í röð dreymdi mig töluna sjö og eins og allir
vita er 7x7 = 21“.
*
Annars er hann alltaf góður þessi með son Mafíu-
foringjans sem svaraði þegar faðir hans spurði
hvernig hefði gengið í prófinu: - „Það gekk mjög
vel. Þeir yfirheyrðu mig í tvo tíma en ég sagði ekki
orð..“
GAFLARAGRÍN
Maður einn spurði lögregluna
hvernig hann gæti komist inn í
miðborgina.
Taktu strætisvagn númer 52
sagði lögreglan.
Mörgum klukkustundum síðar
gekk lögreglan fram á manninn
sem spurt hafði og var hann
ennþá á strætisvagnastöðinni.
Hvað er ekki vagn númer 52
kominn ennþá, spurði lögreglan.
Nei, en hann hlýtur að fara að
koma, svaraði maðurinn. Það
eru nú þegar komnir 50.
í hundaverslun.
Heyrið þér góði maður. Haldið
þér að ég muni borga 400 kr.
fyrir hund sem lýgur.
Lýgur! Hvað eigið þér við?
Hundur getur auðvitað ekki
logið.
Ja, ég heid því nú samt fram að
þessi hundur er uppfullur af lýgi.
Ja, ef þér getir sannað það, þá
skulu þér fá hundinn ókeypis.
Komdu hérna, hvutti minn.
Geturðu sagt mér hvað kisa
segir?
Voff, voff.
*
Ég verð að biðja þig að flytja úr
íbúðinni strax. Þú skuldar mér
núna sex mánaða húsaleigu.
Flytja án þess að borga? Hvers
konar maður heldurðu að ég sé
eiginlega?
Ákafur golfáhugamaður, sem
nokkuð var kominn til ára sinna
fór til spákonu og vildi fá að vita
hvort golfvellir væru á himna-
ríki.
Spákonan lofaði að komast eftir
því að bað hann að líta við hjá sér
daginn eftir. Þegar hann kom
sagðist spákonan hafa bæði
góðar og slæmar fréttir.
Leyfðu mér fyrst að heyra þær
góðu.
Já, það eru margir góðir golf-
vellir í himnaríki, sléttar iðja-
grænar brautir í dýrlegu um-
hverfi. Engin völlur er þar undir
18 holum og klúbbhúsin eru
alveg stórkostleg.
Bravó, sagði maðurinn. Og
slæmu fréttirnar?
Ja, ég tók eftir því, að það er
búið að skrá þig í keppnina sem
hefst næstkomandi miðvikudag.
Byggingarmeistarinn.
Karl múrarameistari var sjúkur
og fór til læknis.
Ég er svo aumur í hnjáliðunum,
sagði hann við lækninn.
Vatn, vatn, það er vatn, sagði
læknirinn.
Svo er ég slæmur í mjó-
hryggnum, sagði karl.
Það eru steinar, steinar, sagði
læknirinn.
Og svo á ég í mjög miklum erfið-
leikum með minnið, sagði Karl.
Það er kalt, það er kalk, sagði
læknirinn.
Nú jæja, þá vantar nú ekkert
nema stillansinn, sagði Karl.
*
Sigga var alltaf lægst í öllum
fögum í sínum bekk. Dag einn
hélt kennslukonan langa ræðu
yfir henni og sagði meðal
annars:
Þegar Vigdís Finnboga var á
þínum aldri var hún hæst í
sínum bekk.
Og þegar hún var á þínum aldri
varð hún forseti íslands, svaraði
Sigga.
Úr fjölskyldulífinu.
Ég er ekki sú einasta sem viil
vita hvað þú varst aö gera í gær-
kvöldi það bíða blaðamenn og
lögreglumenn eftir þér frammi í
forstofu.
Gæti yðar, góði maður, að detta
ekki út af svölunum. En ef þér
skylduð detta þá horfið til
vinstri. Útsýnið er alveg stór-
kostlegt.
Óli minn, hvaða hávaði er þetta
inni í stofunni?
Hafðu engar áhyggjur, mamma
mín, afi er bara að hjálpa pabba
með heimadæmin mín.
*
Ég heyrði að veiðiferðin hjá þér
hefði endað með ósköpum.
Fórstu ekki úr axlarliðnum? Var
fiskurinn virkilega svona
þungur?
Nei, nei, Óhappið gerðist nú
þegar ég var að segja frá hversu
stór hann var.
*
Eins og allir vita er nautakjöt oft
bragðbest þegar það hefur
hangið nokkurn tíma. Maðurinn
kom í kjötverslun.
Ég ætla að fá nautakjöt sem
hefur hangið lengi. Hafið þér
það?
Já, já, hvað segið þér til dæmis
um uxahala.
*
Ég fór með konuna á útsölu í
gær.
Jæja, og hvað fékkstu fyrir
hana?
Ég hitti manninn þinn í bænum
í gær. Hann sá mig ekki.
Nei, hann sagði mér það.
*
Sveitamaður einn kom í heim-
sókn til Hafnarfjarðar og greindi
frá lífinu í heiðardalnum.
Er ekki kalt þar? spurði Hafn-
firðingurinn.
Jú, hvort það er. í fyrra var svo
kalt að ef hitamælirinn hefði
verið tommu lengri hefði öll
sveitin frosið í hel.
*
Hann sótti um starf hjá sirkus-
stjóranum og var að segja
honum frá því atriði sem hann
gæti framkvæmt.
Ég get stokkið úr þrjátíu metra
hæð og niður í tóma flösku.
Það er nú alveg útilokað, sagði
sirkusstjórinn.
Ja, reyndar og til þess að vera
alveg heiðarlegur þá eru brögð í
tafli Ég nota nefnilega trekt.
*
Frómur starfskraftur bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar mun einhverju
sinni hafa viðhaft sérstakar
merkingar á bæjarbúum á þar til
gerðum eyðublöðum, sem
einkum voru fyrir hann sjálfan til
hægðarauka og aðgreiningar.
Sumir voru merktir hinum og
þessum bókstöfum, en lang-
flestir bókstöfunum AA. Lengi
vel fékkst ekki uppgefið hvað
þetta átti að merkja. Eftir þrá-
látar beiðnir og fortölur var
gátan leyst þegar viðkomandi
starfsmaður svaraði: „Æ, það
þýðir bara Aðfluttur Andskoti."