Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Page 38

Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Page 38
38 Fjarðarfréttir Félag aldraðra LAUNIN MÆLD í ÞAKKLÆTI, EN EKKI KRÓNUM íHafnarfirði eru starfandi mörg félög. Þau eru auðvitað misjafn- lega virk og hafa hin margbreytilegustu markmið. Sum þeirra eru oft í sviðsljósinu en önnur láta minna yfir sér. Þátttaka ímörgum þessara félaga miðast við einhver inntökuskilyrði eða einhverja hœfni og í nokkur þessara félaga er enginn hœgðar- leikur að verða þátttakandi. Styrktarfélag aldraðra í Hafnarfirði hefur nokkra sérstöðu í þessum efnum. Það er því œtlunin að skyggnast dálítið að tjaldabaki og frœðast um þennan merka félgsskap, sem hefur starfað að málefnum aldraðra í nœr 15 ár hér í Hafnarfirði. Við hittum að máli frú Láru Jónsdóttur, formann félagsins og Sverri Magnússon, lyfsala, varafor- mann og í fylgd með þeim rifjum við upp eitt og annað úr sögu félags- ins og hvernig starfinu er nú háttað. Einnig er stuðst við bækling sem Eiríkur Pálsson hefur tekið saman um stofnun félagsins og starfsemina undanfarin ár. JÓHANN ÞORSTEINSSON FRUMKVÖÐULL AÐ STOFNUN FÉLAGSINS. Jóhann Þorsteinsson var forstjóri Sólvangs um árabil. Hann lét af störfum 1966 og fór þegar að undir- búa stofnun styrktarfélgas aldraðra. Hann ræddi þessi mál m.a. við þá Sverri Magnússon, lyfsala og Gísla Kristjánsson, fyrrum útgerðarmann og brátt myndaðist góður kjarni fólks sem hafði áhuga á félagsstofn- un um þetta mikilvæga málefni. Stofndagur félagsins var 26. mars 1968. Félagið verður því 15 ára í mars nk. SJÁLFBOÐASTARF Við innum þau Láru og Sverri eftir því hvort einhver skilyrði væru til félgasþátttöku. „Alls engin“ segir Lára. ,,í lögum félagsins segir að einstakl- ingar- félög og stofnanir í Hafnar- firði og nágrenni geti orðið félagar. Það er útbreiddur misskilningur að fólk þurfi að vera orðið ellilífeyris- þegar til þess að geta gengið í félag- ið.“ Og Sverrir bætir við: „Við þurfum mjög nauðsynlega á yngra fólki til aðstoðar í starfinu. Því miður hefur það orðið svo að mikil vinna hefur lent á fáum herðum. Það er ótrúlegt hve tiltölulega fáar konur hafa áorkað í félagsstarfinu. Ég vil því skora á sem flesta að leggja hönd á plóginn og vinna að þessu starfi með okkur. Launin eru rikuleg, ekki mæld í krónum, heldur því þakklæti sem við finnum svo vel hjá þeim sem njóta þess sem gert er.“ „Já“ segir Lára, „ég hef stund- um verið spurð að því hvort við séum ekki á launum við þessi störf. Því er fljótsvarað að aldrei hafa verið greidd laun í þessu skyni, hvorki til þeirra sem annast skipulag starfseminnar eða til þeirra sem koma fram og skemmta, oft mætir listamenn. En það tek ég hjartan- lega undir með Sverri að launin eru þó ríkuleg þegar við finnum fyrir þeirri ánægju sem gamla fólkið hefur af því sem fyrir það er gert.“ FRÆÐILEG A THUGUNÁ MÁL- EFNUM ALDRAÐRA. Árið 1969 var slík athugun gerð í Hafnarfirði. Var Hafnfirðingum 67 ára og eldri sendur spurningalisti um nokkur atriði er vörðuðu hag aldraðra. Var síðan unnið greinargott yfirlit úr þeim svörum er bárust um hús- næði og aðra þætti er snertu aldraða. Skóp þetta grundvöll að markvissara starfi að málefnum aldraðra en ella hefði verið. Sam- starf er mjög gott við Félagsmálaráð og fer það vaxandi. í viðræðum sem fram fóru milli félagsmálaráðs og fulltrúa stjórnar félgasins kom fram að verið væri að vinna að bæklingi þar sem kynnt væri sú þjónusta sem stæði öldruðum Hafnfirðingum - „OPIÐ HÚS“ til boða. „Þessi þáttur hefur verið hjá okkur allar götur frá árinu 1969“ - segir Lára. „Þessi starfsemi fer fram yfir vetrarmánuðina annan hvern fimmtudag frá kl. 14-17. Lengst af vorum við í „Gúttó“ og þátttakan var alltaf mikil, oft svo mikil að húsið rúmaði vart alla þá sem komu. Segja má að nú verði þáttaskil í starfinu, því við höfum fengið nýja fundarsalinn í íþróttahúsinu við Strandgötu til umráða í þessu skyni. Bærinn hefur látið okkur hann í té endurgjaldslaust og erum við afar þakklát fyrir það“. Sverrir Magnússon lyfsali. Sverrir heldur áfram: „Já, þessir fundir hafa alltaf verið mjög vel sóttir. Við tókum fljótt upp þá stefnu að leita til ýmissa félaga og klúbba í bænum og þessi samtök hafa síðan séð um dagskrá í „opnu húsi“. Þetta er auðvitað ákaflega vel gert og léttir okkur starfið. Sem dæmi um hug manna til þessa starfs get ég nefnt að það er orðinn fastur liður árlega, að Níels Árnason hefur boðið til kvikmyndasýningar og síðan hafa þátttakendur þegið veit- ingar á heimili hans eftir sýningu. Því miður hafa karlmenn ekki verið nógu duglegir að koma á fundina okkar og er þeirra auðvitað sárt saknað. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að hvetja þá sem allra flesta til þess að koma og skemmta sér með okkur.“ Og Lára heldur áfram: „Við erum nú ákveðin í að hafa opið hús á hverjum fimmtudegi. Annan fimmtudaginn verður dagskrá með sama hætti og verið hefur og munu hin ýmsu félagssamtök sjá um hana. Hinn fimmtudaginn sjá þátttak- endur sjálfur um að stytta sér stund- ir, spjalla saman, grípa í spil eða eitthvað annað sem því dettur í hug. Við vonum að þetta gefist vel og verði vinsælt hjá fólkinu. Eftir áramót munum við vera með föndurnámskeið sem við í fél- aginu ætlum að annast. Við byggj- um þau námskeið þannig upp að bæði karlar og konur hafi gagn og gaman af því að vera með.“ ORLOF ALDRAÐRA. Frá árinu 1976 hefur félagið stað- ið fyrir orlofsferðum fyrir aldraða. Hefur verið dvalist að Bifröst í Borgarfiði, viku i senn. Hin síðari ár haf verið farnar tvær viku-ferðir. Þátttökugjaldi hefur mjög verið stillt í hóf, því styrkur sá sem frá Hafnarfjarðarbæ kemur fer allur í þessar orlofsferðir. Þessar ferðir hafa allar heppnast mjög vel og eru ávallt tilhlökkunarefni þeim sem fara. JÓLAFUNDURINN 9. DESEMBER. Við höldum alltaf veglegan jóla- fund reynum að hafa hann sem vandaðastan í alla staði,“ segir Sverrir: „Þar kennir oft margra grasa og margt til skemmtunar. Fél- agið sér þá til þess að allir fá jóla- gjöf, lesnar eru sögur, flutt jólahug- vekja og mikið sungið. Ávallt hefur verið húsfylli á jólafundinum og þröngt setinn bekkurinn. Rótaryfél- agar annast dagskrárátriði nú eins og áður. Jólafundurinn i ár verður 9. des- ember og við vonum að sem allra flestir láti sjá sig því nú er húsrýmið loksins nægjanlega stórt.“ Frú Lára Jónsdóttir. MARGIR LAGT FÉLAGINU LIÐ. Félaginu hafa borist góðar gjafir á liðnum árum. Þegar Húsmæðraskólafélag Hafnarfjarðar hætti störfum 1971 afhenti það styrktarfélagi aldraðra það fé sem það hafði í sínum fórum. Var það veruleg upphæð þá og hefur komið sér ákaflega vel. Þá hefur Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Grundar, verið félaginu afar rausnarlegur. Hann hefur margoft fært félaginu peninga- og bókagjafir og einnig hefur hann látið í té endurgjaldslaust, vikudvöl fyrir tvo að vistheimilinu að Ási í Hveragerði. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur veitt félaginu styrk sem hefur gert félaginu kleift að standa fyrir orlofs- ferðunum og húsnæðið í íþróttahús- inu er mikil lyftistöng fyrir starfsem- ina. Þá ber þess að geta að Prent- smiðja Hafnarfjarðar hefur alltaf prentað fyrir félagið þegar þörf er á og aldrei tekið neitt gjald fyrir. í fjölda ára hafa félagar úr Kiwanisklúbbnum í Hafnar firði staðið fyrir dagsferð með aldraða. Sjá þeir félagar bæði um akstur og veglegar veitingar. Með Kiwanis félögum í sumarferð „Margfalt fleiri mætti nefna og fyrir allt þetta er stjórn félagsins ákaflega þakklát“, segir Lára. - Hjálp sem þessi gerir okkur kleift að halda starfinu gangandi og er okkur mikils virði.“ I'BÚÐIR FYRIR ALDRAÐA Segja má að Styrktarfélag aldraðra í Hafnarfirði hafi átt stór- an þátt i því að íbúðir fyrir aldraða voru byggðar við Sólvang. Forsvars- menn félagsins ræddu við ráðamenn bæjarins á sínum tíma og lögðu þá mikla áherslu á að hafist yrði handa með byggingu slíkra íbúða. Nú eru 30 íbúðir á þessu svæði. „Ég tel mjög brýnt verkefni að byggja fleiri íbúðir sem henta vel fyrir aldraða“, segir Sverrir. „Það á jafnvel að gefa öldruðu fólki kost á að eignast slíkar íbúðir. Margt aldrað fólk býr í óhentugu húsnæði, jafnvel of stóru og miklir erfiðleikar á nauðsynlegu viðhaldi húsanna. Þvi þarf fólk að geta skipt án mikils tilkostnaðar“. ALLIR VELKOMNIR í FÉLAGIÐ. „Já, ég vil eindregið hvetja fólk til þess að ganga í félagið,“ segir Lára að lokum. „Við þurfum á fólki á öllum aldri að halda og það get ég fullvissað alla um að þeir sem lagt hafa fram sinn skerf til aðstoð- ar sjá ekki eftir þeim tíma sem í það fer. Þakklæti og blessunarorð eru meira virði en allt annað“. Við látum spjallinu lokið. Hér er greinilega unnið gott starf í þágu allra bœjarbúa. Ekki aðeins þeirra sem nú njóta þess sem félagið stendur fyrir og beitir sér að, heldur einnig hinna sem eru að feta sig þá leið sem við öll förum. Því fleiri sem taka þátt í starfinu með einum eða öðrum hœtti, því léttara verður að koma í verk mörg- um þeirrra hugmynda sem Styrktar- félag aldraðra í Hafnarfirði hefur á stefnuskrá sinni. Því ekki að leggja hönd á plóginn? gP*.■■ ...... Gleðileg jól! Farsælt nýár! Þökkum viðskiptin.

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.