Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Side 49

Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Side 49
Fjarðarfréttir 49 Berglind Bjarnadóttir. inni sjálfri, heldur tvinnast þar sam- an, píanónám, kórstjórn, kennslu- fræði, líkamleg virkni og tjáning (kroppssprák) og tal. Mér hefur verið mjög vel tekið af skólafélögum mínum, sem eina út- lendingum í hópnum. Við vinnum mjög náið saman og höldum uppi jákvæðri gagnrýni á hvert annað, sem er okkur mjög mikilsvert. Ég finn ekki fyrir neinni samkeppni okkar á milli, við erum fremur eins og ein fjölskylda.“ HVAD MEÐ HLJÓMLEIKA, ÓPERUR OG ÞESS HÁTTAR? ER ÞAÐ EINHVER HLUTI AF NÁMINU? „Jú það er náttúrulega stór hluti af námi hvers tónlistarmanns að vera duglegur að sækja konserta, og Stokkhólmur hefur uppá mjög mik- ið að bjóða i þeim efnum. Hér er t.d. Konunglega Óperan ásamt mörgum minni óperufélögum, sem halda uppi reglubundnum sýning- um. Eitt þeirra stendur t.d. núna að nýstárlegri uppfærslu óperunnar ,,Carmen“. Sjálf tók ég einmitt þátt í flutningi Þjóðleikhússins á ,,Carmen“ árið '75. Og þaðan á ég góðar endurminningar því þar kynntumst við Rúnar fyrst á mjög rómantískan hátt, en hann tók líka þátt í sýningunni. Hér eru líka tvær stórar sinfóníu- hljómsveitir, annars vegar Fíl- harmóníuhljómsveitin með Konsert- húsið sem aðsetur. Og hins vegar Útvarpshljómsveitin í Berwald- hallen, sem er nýstárlegt og afskap- lega fallegt hljómleikahús, þar sem húsnæði og dagvistun fyrir börnin um lengri eða skemmri tíma. íslend- ingar sem hér búa hafa jafnan verið hjálpsamir í svona tilvikum, en það er varla hægt að mæla með þess- konar ævintýramennsku. Og margir hafa þurft að hrökklast heim fyrr en ella af þessum sökum, og ekki feng- ið það út úr dvölinni sem það ætlaði sér. LÍKAR YKKUR VEL AÐ BÚA HÉR EFTIR ÞENNAN AÐ- LÖGUNARTÍMA? Já því er ekki að neita. Þó ekki væri nema vegna veðursins. Hér er veðurfar til muna stöðugra en á ís- landi. Sumarið í sumar var alveg sérstaklega gott, og ólýsanlega þægilegt að hafa ströndina hér beint fyrir neðan og geta fengið sér sund- sprett í sjónum eftir vinnu ef svo býður við að horfa. En það er sama hvort heitt er í veðri eða kalt, það er mikill munur að vera laus (í bili) við næðinginn eilífa og þessi tiðu umskipti í veðurfari sem ríkir á fsl. allavega suð-vesturhorninu. Stokkhólmur er falleg borg, gróðurrík, áberandi hreinleg og þægileg til búsetu. Hvað varðar fólkið sjálft, þá virðist mér að grundvallar mismunur sé á mann- gerðum Svía og íslendinga. Svíar eru allir á yfirborðinu, eru ræðnir, jákvæðir og þægilegir í allri um- gengni, en hleypa í rauninni engum nálægt sér, halda alltaf vissri fjar- lægð. Hins vegar getur tekið lengri tíma að kynnast íslendingum en þá kemt líka oft á náinn og innilegur vinskapur. Feta í fótspor barna sinna Jóhannes Jónsson og Guðrún Þórhallsdóttir. hljómburðurinn er sérstaklega góður. Þar þýðir ekki að hósta, hnerra og ræskja sig eins og algengt er á hljómleikum sinfóníuhljóm- sveitarinnar heima í Háskólabíói, því hávaðinn sem af því skapaðist myndi nánast yfirgnæfa hljómsveit- ina! Hér eins og heima eru Guðshúsin mikið notuð til hljómleikahalds, og hefur mér gefist kostur á að syngja í nokkrum þeirra. Að sjálfsögðu koma svo hingað þekktir tónlista- menn hvaðanæva að úr heiminum alltaf annað slagið. Hér er því mikið og fjölbreytt tónlistarlíf.“ HVAÐ TEKUR SVO VIÐ HJÁ ÞÉR AÐ NÁMI LOKNU OG ÞEGAR HEIM ER KOMIÐ? „Hinu eiginlega söngnámi lýkur í rauninni aldrei, þó skólavist sé lokið í bili. Ég vonast að sjálfsögðu að mín verði þörf heima og kem lík- lega til með að fást við tónlistar- kennslu i mismunandi formi. Ég mun halda áfram að þjálfa mína rödd, og auðvitað væri gaman að geta blómstrað sjálf sem söngkona. Núna þann 9. janúar næstkomandi ætla ég að stíga eitt skref á þeim ferli með því að halda einsöngstón- leika Norræna húsinu ásamt Guðrúnu Kristinsdóttur, píanó- leikara. Þar mun ég bjóða upp á norrænt lagaval. Ástæðan fyrir þessum tónleikum er fyrst og fremst sú að láta vita af mér og að ég sé enn að fást við tónlist. Að sjálfsögðu býð ég alla Hafnfirðinga innilega velkomna.“ NÚ HAFIÐ ÞIÐ LIFAÐ EIN JÓL HÉR í SVÍÞJÓÐ, ER MIKILL MUNUR Á JÓLUNUM HÉR OG HEIMA? Sennilega halda Sviar að ein- hverju leyti annars konar jól en við, t.d. hvað varðar mat og ýmsan hefðbundinn undirbúning, ég þekki það bara ekki nógu vel. Við höldum hins vegar alltaf okkar ísl. jól sama hver staðsetningin er. En hérna vantar náttúrulega stóran þátt í jóla- haldi þar sem flestir ættingjar og vinir eru heima. En fyrir börnunum eru jólin alltaf jafnmikið tilhlökk- unarefni og maður reynir alltaf að skapa hina réttu jólastemningu með einhverjum ráðum. HVERNIG ER SAMSKIPTUM HÁTTAD MEÐAL ÍSL. ÍSTOKK- HÓLMI? Þau eru að mörgu leyti hverfis- bundin. íslendingarnir eru dreifðir um hin ýmsu stúdentahverfi hér í borginni, og eðlilega hafa þeir sem búa á sama stað mestu daglegu sam- skiptin. En íslendingahúsið er venjulega opið á hverjum laugar- degi, og þar er hægt að hitta fólk, lesa blöðin, fá sér kaffi og pönnu- kökur og rabba saman, hafi menn áhuga. Þar fyrir utan stendur ís- lendingafélagið fyrir árvissum sam- komum í ísl.húsinu, eins og t.d. Þorrablóti, 17. júní hátíð, 1. des., jólaskemmtun ofl. Þess á milli hafa svo komið ýmsir ísl. listamenn á vegum félagsins t.d. hljóm- og myndlsitarmenn. Það þykir jafnan nokkuð ný- næmi að því þegar fjölskyldur taka sig upp og flytja til annarra ianda. Oftast er það ungt fólk sem fer er- lendis til að Ijúka sínu námi, áður en það sest að heima til frambúðar. Sjaldgæfara er að fólk á miðjum aldri, sem búið er að vinna í mörg ár og koma upp sínum börnum, taki sig upp og fari erlendis til frekara náms. Þó eru til dæmi um það. Jó- hannes Jónsson handmenntakenn- ari við Öldutúnsskóla og kona hans Guðrún Þórhallsdóttir mynd- menntakennari við sama skóla eru eitt slíkt dæmi. Þau dvelja nú í Osló og stunda þar nám við Statens lærerhogskole í Forming Blaker. En þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem þau flytjast milli staða. Jóhannes er fæddur og uppalinn á Siglufirði en Guðrún er frá Akur- eyri. Þau hófu sinn búskap á Siglu- firði og bjuggu þar í 13 ár og þar fæddust öll þeirra börn, sem eru sjö að tölu. Þeim varð það fljótlega ljóst að erfitt yrði að styðja allan barnahópinn til mennta frá Siglu- firði, og ef ætti að gefa öllum börnunum kost á framhaldsnámi var ekki um annað að ræða en að flytjast brott af staðnum á höfuð- borgarsvæðið, þannig að þau gætu búið í foreldrahúsum meðan á nám- inu stæði. Og er það ein aðalástæð- an fyrir því að þau fluttu til Hafnar- fjarðar á sínum tíma, þar sem þau hafa nú búið í rúmlega 20 ár. Nú eru börnin öll vaxin úr grasi og farin að heiman, og Jóhannes og Guðrún komin á þann aldur, þegar flestir fara að setjast í helgan stein og njóta hvildarinnar eftir langan og strangan vinnudag. En í stað þess feta þau í fótspor barna sinna, ef svo má að orði komast, rífa sig upp og fara erlendis til framhaldsnáms, sem teljast verður frekar óvenjulegt fyrir fólk á þeirra aldri. HVORT VAR NÚ ERFIÐARA AÐ FLYTJAST TIL HAFNAR- FJARÐAR Á SÍNUM TÍMA, EÐA TIL OSLÓAR NÚNA ? „Það var að sjálfsögðu miklu erfiðara að rífa sig upp frá Siglufirði með allan barnahópinn, bæði fjár- hagslega og eins vegna þess hversu margir áttu þá undir því að vel tæk- ist til með breytinguna. Það sem nú er erfiðast, er að fara í skóla sem nemandi eftir svo langt hlé frá námi, sérstaklega þar sem hér er talað allt annað tungumál. En það má kannski segja að jákvæð reynsla okkar af flutningunum frá Siglufirði hafi gert okkur óhræddari við að taka áhættuna á ný, þegar við fengum nú ársleyfi frá störfum. Við höfum reyndar átt kost á þessu fyrr, en það er ekki fyrr en nú að aðstæður leyfa að við notum okkur þetta tækifæri.“ HVERS VEGNA VARÐ NOR- EGUR FYRIR VALINU? „Ja, það er nú þannig að flest okkar börn hafa farið erlendis til náms, 2 til Sviþjóðar, 2 til Kaupmanna- hafnar og 2 hingað til Noregs. Við höfðum heimsótt þau öll meðan þau dvöldu erlendis og þannig kynnst aðstæðum betur en ella. Við vorum því búin að koma hér áður og leist vel á land og þjóð. Við vissum að við áttum möguleika á að komast hér inn sem íslendingar, og sóttum því um skólavist við háskólann Blaker í framhaldsnám í okkar kennslugreinum, og sjáum ekki eftir því þar sem námið er bæði spenn- andi og skemmtilegt. HVAÐ FINNST YKKUR UM NOREG OG NORÐMENN ÞAÐ SEMAFER? „Það sem við höfum séð af land- inu er stórkostlegt og fólk hefur sýnt okkur mikla alúð og hlýju. Norð- menn virðast finna til tengsla við ís- lendinga og láta þá njóta þess í sam- skiptum við þá. Og það að við skyldum fá pláss í þessum skóla sem er mjög eftirsóttur og þéttsetinn finnst okkur sýna vel velvilja Norð- manna í garð íslendinga. Okkur virðist fólk hér oft að- gengilegra en heima, ef svo má segja. Hér heilsast allir bæði í stiga- göngum og annarsstaðar, hvort sem þeir þekkjast eða ekki. Og t.d. kemur það oft fyrir í verslunum að bráðókunnugt fólk víkur sér að manni og fer að spjalla. Tillitssemi er meiri hér en heima, bæði í dag- lega lífinu og umferðinni, sem hefur komið sér vel fyrir okkur, því við erum á bíl hér og þurfum að aka um 80 km. daglega í og úr skóla. En hér er mikil umferð og það tekur sinn tíma að læra inn á gatnakerfið." HVERNIG GENGUR YKKURAÐ LIFA HÉR, ER VERÐLAG HÉR SVIPAÐ OG HEIMA? „Við erum á einum og hálfum kennaralaunum, og margur gæti haldið að við lifðum góðu lífi af þeim. En því er ekki að heilsa, því þau duga ekki til að halda okkur uppi. Húsaleiga hér er síst lægri en heima og bensín og allar nauðsynja- vörur á svipuðu verði. Enda hefðu endar hjá okkur enganveginn náð saman nema af því að við leigjum út íbúðina okkar heima. En það má líka geta þess að það mun vera einna dýrast að búa hér af öllum Norðurlöndunum (fyrir utan ísland) og öll félagsleg þjón- usta hér er mun minni en t.d. í Sví- þjóð og Danmörku. Okkur sýnist Norðmenn eiga jafnerfitt með að lifa af sínum launum og við íslend- ingar.“ HAFIÐÞIÐ MIKINN SAMGANG VIÐAÐRA ÍSLENDINGA HÉRÍ BORGINNI? „Hér býr nú einn sonur okkar með sína fjölskyldu sem við höfum að sjálfsögðu mikið samband við. En hér er líka fleira gott fólk. T.d. eru hér tveir Hafnfirðingar sem margir munu kannast við, Kjartan Guðmundsson (Steingrímssonar trommuleikara) sem hér stundar nám í félagsráðgjöf, og Gunnar Friðþjófsson sem einnig er hér í námi. En um mikinn samgang er nú ekki að ræða af okkar hálfu þó við hittum íslendingana alltaf annað veifið.“ AÐ LOKUM, HAFIÐ ÞIÐ EIN- HVER RÁÐ AÐ GEFA ÞEIM SEM HUG HAFA Á NÁMI ERLENDIS? „Við ráðleggjum öllum sem fá tækifæri á dvöl erlendis að notfæra sér það, þar sem slík dvöl getur ver- ið bæði skemmtileg og víkkar út sjóndeildarhringinn. En einnig viljum við ráðleggja fólki að ætla sér ekki of mikið í byrjun, hvað tungumálið snertir. Okkur virðist nefnilega að flestir telji það „ekkert mál“ að komast inn í tungumálið, þar sem norðurlandamálin séu svo skyld, og flestir íslendingar geta les- ið eitthvert hrafl í þeim flestum. En í raun er því ekki þannig farið. Það tekur mun meiri tíma en margir álíta að ná það góðu valdi á tungumálinu að hægt sé að taka þátt i samræðum með góðu móti. Skilningur á skrif- uðu máli kemur mun fyrr, en talmál og skrifmál er tvennt ólíkt, eins og mörgum mun ljóst vera. Fyrstu 3-6 mánuðirnir í landinu fara í að ná undirstöðuatriðunum í tungumálinu en það tekur enn lengri tíma að ná góðu valdi á því.“ Jóhannes, Guörún, Þórir og Erla Björg.

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.