Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Síða 53
Fjarðarfréttir
53
Hinn kunni hagyrðingur, Sófus
Berthelsen, sendi FJARÐAR-
FRÉTTUM ágœta veiðisögu í
bundnu máli. Þennan formála lét
hann fylgja:
,,Ég hef lengi gengið með veiði-
dellu í höfðinu, og hef með tím-
anum komið mér upp mjög góðum
veiðiútbúnaði, en vegna stöðu
minnar í þjóðfélaginu hef ég ekki
haft efni á því að renna fyrir lax, en
látið mér nægja smásprænur og
druliupolla, þar sem silungslontur
halda sig. Nú varð ég fyrir þeirri
ánægjulegu lífsreynsiu í sumar, að
mér var boðið að renna í á, þar sem
ég mátti eiga von á að setja í lax. Sú
varð líka raunin á. Ég setti í 13
punda lax. Þar sem ég hafði enga
reynslu í að þreyta lax og áin stór-
grýtt og straumhörð, en ég stórlega
hræddur um að missa svona mikil-
fenglega veiði, þá voru víst viðbrögð
mín og aðferðir í viðureigninni við
laxinn kátbroslegar. Þegar ég kom
heim úr hinni velheppnuðu veiðiferð
settist ég niður og páraði veiði-
söguna á pappír.“
VEIÐSAGA
„Stríðið við fyrsta
laxinn“
En línuna illa þá laxinn skók
lést ætla á steini að skera,
úti í vatnið mig tvívegis tók
í tugum hann rann ána þvera.
Með ánægju og gleði ég gekk að á,
góð von er þannig vaxin,
viðbúinn stóð ég straumnum hjá
í stríðið við fyrsta laxinn.
Að lokum flaut veiðin á vatni góð
víst snéri upp kviðnum ljósa,
og örþreytt gamla manneskjan móð
mátti þá sigrinum hrósa.
Með græðgi maðkinn stökk á strax
og stefndi til minna funda,
ég æstur með fumi leitaði lags
en laxinn var þrettán punda.
Á viðbragði ekki mér varð um sel
en vonandi byrjar nú glíma.
,,Æ góði minn besti gleyptu nú vel
ég gef þér sko rúman tírna."
Með hamagangi ég hart tók á
og hafð'ann um síðir að landi.
Eg vildi nú eiga viðureign þá
á videó — myndseglubandi.
Auk veiðisögunnar lét Sófus fylgja með þetta
smáljóð um telpu, sem er mikið uppáhald ömmu
sinnar:
Laxinn tók sér þá sprækan sprett
en spólubremsu ég gleymdi.
Með buslugangi naskur og nett
nauðugan mig áfram teymdi.
Ég rann til á bakka, rak upp óp,
það reyndist þó ekki til saka.
En niður með ánni haltraði og hljóp
og hentist svo aftur til baka.
ÖMMGSTELPA.
Það falla tár hjá telpu smárri
tregablandin er sorgargrátur,
en fljótlega er í skapi skárri
skín við bros og mildur hlátur
því bilið milli skins og skúra
skipast fljótt án neinna tafa
finnst þá henni ljúft að lúra
litla stund hjá ömmu og afa.
IA3SIN3
RAKARAfe
HÁRSMYBTigiDFA
SIRAHDGÖnj 37 SÍMI53955