Fréttablaðið - 10.03.2021, Síða 35

Fréttablaðið - 10.03.2021, Síða 35
Up p h a f l e g a v a r S u n n e f a f r u m -sýnd á Egilsstöðum þann 19. september og frumsýna átti seinna um haustið í Reykjavík. Einhver örlagahendi virðist vera yfir leikhópnum Svip- um, þannig að sýningardagar leik- verks um ævi, dauða og áhrif kven- skörungsins Sunnefu Jónsdóttur lentu í byrjun mars á þessu ári, en 8. þessa mánaðar var Alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Árni Friðriksson semur leikritið með aðstoð frá leikhópnum og Þór Tulinius leikstýrir, en alltof langt er síðan við fengum að sjá hinn síðarnefnda á leiksviðinu. Saga Sunnefu er ansi merkileg og eitt af mýmörgum dæmum um meðferð kvenna, ekki einungis í samfélag- inu og réttarkerfinu heldur einnig í sagnfræðinni. Þeir nýta sér tækni frásagnar- og söguleikhússins þar sem aðalpersónan segir sína sögu sjálf, sem er römmuð inn með ein- faldri sviðsmynd. Til að gera langa sögu stutta þá var Sunnefa dæmd til dauða ekki einu sinni heldur tvisvar fyrir að eignast barn með bróður sínum þegar þau voru einungis unglingar. En ekki er allt sem sýnist. Leikkonurnar Tinna Sverrisdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir standa sig vel í leikverki Árna, sem ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Tinna leikur hina blá- fátæku Sunnefu frá unglingsaldri til dauðadags. Hún kemur ágætlega til skila hvernig Sunnefa þroskast og breytist við þetta ómannúðlega mótlæti. Vald hennar á textanum er líka gott, ekki auðvelt verk miðað við magnið sem hún þarf að koma til skila. Margrét Kristín leikur nán- ast allar aðrar persónur verksins og semur hljóðmynd og tónlist, sem hún flytur að stórum hluta meðan á sýningunni stendur. Kristín, vinnu- konan á Skriðuklaustri, er þó eftir- minnilegust úr persónugalleríinu sem hún sinnir. Þó er raddbeitingu þeirra beggja stundum ábótavant þá sérstaklega þegar þær eiga að vera að leika konur um þrítugt, en gera þær töluvert eldri. Samvinna þeirra þegar þær bregða sér úr hlut- verkunum til að ræða málin sín á milli og setja söguna í samhengi er ansi góð, þannig draga þær áhorf- endur nær sögunni. Saga Sunnefu hefur innistæðu fyrir töluvert dýpri og yfirgrips- meiri umræðu um stöðu kvenna í íslensku samfélagi heldur en höf- undur ber hér á borð. Þær voru keyptar og seldar, nauðgað og mis- þyrmt, þrælað út og barnsburður leiddi þúsundir til dauða. Þessi örlög kvenna einskorðast ekki við sautjándu og átjándu öldina heldur frá því að land var numið. Árni snertir á þessum málefnum en gleymir sér of oft í málalengingum, svo sem að tíunda hinar og þessar persónur frekar en að rýna rækilega í samfélagið sem þær spretta upp úr. Af þessum sökum verða margir kar- akterar tvívíðir og tækifæri týnast. Hvað leikstjórnina varðar gerir Þór ýmislegt laglega þá helst hvern- ig atriðin flæða áfram, en vankantar eru á heildarmyndinni. Í fyrri hluta sýningarinnar stöðva leikkonurnar reglulega framvinduna til að ræða málin, greina gögnin og gera létt grín. En þegar líða tekur á seinni hlutann hverfur þessi áhersla eigin- lega alveg og hefði mátt þræða betur inn í verkið. Þrátt fyrir að blóð- skammarþulan sé vel með farin í f lutningi Tinnu, þá er tónlistar- atriðið óþarfa stílbrot og hefði leik- stjóri átt að færa atriðið í annan farveg. Leikmynd og lýsing Egils Ingi- bergssonar þjónar frásagnarformi sýningarinnar vel þar sem einfald- leikinn ræður ríkjum. Leikmunir og hljóðfæri umkringja leikkonurnar sem grípa til þeirra hluta sem þær þurfa til að undirstrika mál sitt. Þó standa upp úr forláta skjáir tveir sem er stillt upp sem bakgrunni. Á þeim kvikna eftirminnilegar teikningar Móeiðar Helgadóttur sem gæða sýninguna óvæntu lífi, sjón er sögu ríkari. Búningar Beate Stormo þjóna verkinu sömuleiðis vel, enda fjöl- nota, þar sem einfaldur klútur getur fært persónurnar til og frá í tíma. Sunnefa Jónsdóttir lifði og dó á milli 1722/1723 og 1757/1758. Eins og margar hennar kynsystur lifði hún ekki lengi, en ekki tókst karlfausk- unum að aflífa hana. Hennar sögu á að deila, ræða og rannsaka. Allar kvennasögur reyndar. Af nægu er að taka. Leikhúsið er hinn prýðilegasti vettvangur fyrir slíka söguskoðun og sýningin Sunnefa skilar hennar sögu þokkalega en hefði þolað bæði stytt- ingu og meiri dýpt. Sigríður Jónsdóttir NIÐURSTAÐA: Áhrifamikil saga sem hefði þurft dýpri skoðun og djarfari umgjörð. SAMVINNA ÞEIRRA ÞEGAR ÞÆR BREGÐA SÉR ÚR HLUTVERKUNUM TIL AÐ RÆÐA MÁLIN SÍN Á MILLI OG SETJA SÖGUNA Í SAMHENGI ER ANSI GÓÐ. LEIKHÚS Sunnefa Árni Friðriksson og Leikhópurinn Svipir Tjarnarbíó Leikstjórn: Þór Tulinius Leikarar: Tinna Sverrisdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir Leikmynd og lýsing: Egill Ingi- bergsson Búningar: Beate Stormo Teikningar: Móeiður Helgadóttir Tónlist og hljóðmynd: Margrét Kristín Sigurðardóttir Blóðskammarþululag: Kristín Hrönn Waage, Margrét Kristín Sigurðardóttir og Tinna Sverris- dóttir Sviðshreyfingar: Aðalheiður Hall- dórsdóttir og Elín Signý Ragnars- dóttir STÆRSTA OG SKEMMTILEGASTA GOLFMÓT ÁRSINS Á STÖÐ 2 GOLF 11.-14. MARS Tryggðu þér áskrift í dag á stod2.is Feðraveldið og líf kvenna Leikkonurnar Margrét Kristín Sigurðardóttir og Tinna Sverrisdóttir standa sig vel, að mati dómarans. MYND/GUNNLÖÐ RÚNARSDÓTTIR M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M I Ð V I K U D A G U R 1 0 . M A R S 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.