Fréttablaðið - 10.03.2021, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —4 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 1 0 . M A R S 2 0 2 1
VIÐSKIPTI Mesta tap í rekstrar
sögu járnblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga varð á síðasta ári, en
tapið nam 2,2 milljörðum króna.
Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri
Elkem Ísland sem rekur verksmiðj
una, segir að miklar kostnaðar
hækkanir vegna hærra raforku
verðs og lágt afurðaverð hafi skilað
þeirri niðurstöðu.
„Landsvirkjun vill fá sambærilegt
verð og aðrir raforkuframleiðendur
í Evrópu. Það er skiljanlegt sjónar
mið. Hins vegar viljum við líka fá
sambærilegt verð og kaupendur í
þeim löndum sem við berum okkur
saman við, til að mynda í Noregi,“
segir Álfheiður. – thg / sjá Markaðinn
Mesta tap í
sögu Elkem
VIÐSKIPTI Kaupverð bandaríska
framtakssjóðsins Levine Leichtman
Capital Partners (LLCP) á meirihluta
hlutafjár Creditinfo Group, móður
félags Creditinfo á Íslandi, samsvarar
því að íslenska félagið sé verðmetið
á allt að 30 milljarða króna, sam
kvæmt heimildum Markaðarins.
Stærsti hluthafi sjóðsins saman
stendur af afkomendum stofnanda
IKEAkeðjunnar.
„Ég var í ökumannssætinu, færði
mig yfir í farþegasætið og er núna
kominn aftur í,“ segir Reynir Grét
arsson, stofnandi Creditinfo, um
aðkomu sína að félaginu eftir söluna.
Eins og fram kom í tilkynningunni
um kaupin í gær heldur Reynir sæti
í stjórn og er jafnframt annar stærsti
hluthafi félagsins eftir söluna. Reyn
ir, sem átti fyrir 70 prósenta hlut,
heldur eftir 35 prósenta hlut.
Kaupverðið er trúnaðarmál en
samkvæmt heimildum Markaðarins
miðar það við að fyrirtækið sé í heild
sinni metið á 2030 milljarða króna
– endanleg fjárhæð veltur á ákveðn
um fjárhagslegum markmiðum – og
má því ætla að virði hlutarins sem
Reynir selur sé allt að 10 milljarðar.
Creditinfo sérhæfir sig í miðlun
fjárhags og viðskiptaupplýsinga
og ráðgjöf tengdri áhættumati og
áhættustýringu fyrirtækja. Fyrir
tækið var stofnað á Íslandi 1997 og
hjá því starfa rúmlega 400 manns í
yfir 30 starfsstöðvum um allan heim.
Höfuðstöðvarnar eru á Höfðabakka
en minnkandi vægi starfseminnar
á Íslandi og nýtt eignarhald gæti á
endanum breytt því. „Vægi starf
seminnar á Íslandi hefur minnkað
hægt og rólega í gegnum tíðina og
það mun væntanlega halda áfram,“
segir hann. Reynir steig til hliðar
sem forstjóri fyrir meira en þremur
árum eftir að hafa staðið í brúnni í
tuttugu ár. „Það má segja að ferlið
hafi hafist þá vegna þess að ef þú ert
bæði eigandi og forstjóri þá geturðu
ekki selt fyrirtæki nema með því
að selja sjálfan þig með. Kaupendur
vilja ákveðinn stöðugleika,“ segir
Reynir. Fyrir um einu og hálfu ári
hófst síðan leit að kaupanda, sem
tafðist vegna kórónakreppunnar.
Kaupandinn LLCP er með um 11,7
milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði
um 1.500 milljarða króna, í stýr
ingu og hefur fjárfest í yfir 90 fyrir
tækjum. Reynir segir að einn stærsti
hluthafinn í sjóðnum sé sænska
Kampradf jölskyldan, af kom
endur Ingvars Kamprad, stofn
anda IKEAkeðjunnar. „Þetta eru
alvöru fjárfestar,“ bætir Reynir við.
– þfh / sjá Markaðinn
Fær risasummu
fyrir Creditinfo
Creditinfo Group er verðmetið á hátt í 30 milljarða
króna af sjóðnum LLCP sem keypti meirihluta. Virði
hlutar sem stofnandi seldi metinn á um 10 milljarða.
Ég var í ökumanns-
sætinu, færði mig
yfir í farþegasætið og er
núna kominn aftur í.
Reynir Grétarsson,
stofnandi Credit
info
VIÐSKIPTI Líftæknifyrirtækið Alvo
tech hefur lokið fjármögnun að jafn
virði 4,5 milljarða króna, en í þeim
hópi sem leggur félaginu nú til fé eru
íslenskir fjárfestar. Það er í fyrsta
sinn sem innlendir fjárfestar, sem
eru ekki hluti af stjórnendateymi
félagsins, koma í eigendahópinn.
Markaðsvirði Alvotech eftir þessa
síðustu fjármögnun nemur um 2,4
milljörðum dala. Samtals hefur Alvo
tech sótt sér um 100 milljónir dala í
nýtt hlutafé á fjórum mánuðum.
Með þeirri fjármögnun sem nú er
lokið er talið að búið sé að tryggja
rekstur fyrirtækisins fram að hluta
fjárútboði og skráningu á markað
erlendis á árinu. – hae / sjá Markaðinn
Alvotech fær um
fimm milljarða
Eftir heldur rólega daga í veðrinu er von á miklum breytingum sem fá fólk til að setja upp húfur og jafnvel vettlinga.
Þetta ágæta fólk nýtti síðasta góðviðrisdaginn í bili til að viðra bæði börn og gæludýr í Hjómskálagarðinum. Veður-
stofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir fjögur svæði þar sem vindur mun blása af norðri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON