Íslenskt mál og almenn málfræði - 2020, Page 83
eiga í 2p. et. og ft.9 ásamt orðunum góðan dag. Leitarorð voru höfð innan
gæsalappa.
Elsta dæmið um Hafðu góðan dag í íslensku kemur fyrir í grein Sigur -
dórs Sigurdórssonar (1988) þar sem tekið er fram að kveðjan sé „ekki ís -
lensk málvenja“. Athygli vekur að árið á undan hafði Haraldur Bessason
(1987) hvatt Íslendinga til að vera vakandi fyrir erlendum áhrifum því ýmis -
legt ætti til að slæðast inn í málið, svo sem orðatiltæki í beinum þýðing-
um. Þá nefndi hann sérstaklega að kveðjan Hafiði góðan dag væri algeng í
máli Vestur-Íslendinga þar sem hún hefði komið inn fyrir tilstilli ensku.
Þá má geta þess að heimildir eru til um að notkun kveðju sem svipar til
Hafðu góðan dag, þ.e. Hafðu/Eigðu góða helgi, hafi verið kennd á fyrir -
tækjanámskeiðum á Íslandi til að bæta kurteisi í samskiptum við við -
skipta vini (Þórður Helgason 2011).
Þrátt fyrir að neikvætt viðhorf komi oft fram gagnvart kveðjunni Hafðu/
Eigðu góðan dag, t.d. í blaðaskrifum, er hún samt sem áður út breidd í nú -
tímamáli. Bæði dæmigerð notkun og neikvætt viðhorf kemur fram í stjörnu -
spá frá árinu 1997, sjá dæmi (4).10
(4) Þú ferð í banka og gjaldkerinn segir við þig: Hafðu góðan dag. Þú
fríkar út og segir: Hafð ann sjálfur málníðingur!
(Dagur-Tíminn 1997:24)
Sem tilbrigði við Hafðu/Eigðu góðan dag má finna óskir um góða ferð, til
dæmis ef viðmælandi er á leið til útlanda. Dæmin í (5) eru fengin frá
heimildarmanni sem átti leið um Flugstöð Leifs Eiríkssonar og varð vitni
að notkun þessara orðasambanda.
(5) a. Eigðu góða ferð!
b. Hafðu góða ferð!
Erfitt er að greina hvort hér er útvíkkuð notkun á íslensku tökukveðjunni
Hafðu/Eigðu góðan dag, eða hvort þessi notkun er einnig bein þýðing úr
ensku, Have a nice trip. En hvað skyldi valda því að kveðjan kalli oft fram
neikvæð viðbrögð málhafa?
Eitt af því sem vekur athygli við Hafðu/Eigðu góðan dag er notkun
sagn anna hafa og eiga í boðhætti. Þrátt fyrir að notkun þessara sagna í
„Haf góðan dag“ 83
9 Leitað var að eftirtöldum boðháttarmyndum: haf (þú), hafðu, hafið (þið), hafiði, eig
(þú), eigðu, eigið (þið) og eigiði.
10 Kveðjan getur einnig komið fyrir með andlaginu í fleirtölu, t.d. Eigðu góða daga.