Börn og menning - 2015, Side 13
„Eldri hjón biðja munaðarleysingjaheimili
um ungan dreng. Fá senda stúlku fyrir
mistök.“1 Þessi klausa úr dagbók kanadíska
rithöfundarins Lucy Maud Montgomery
er sögð kveikjan að bókaflokknum um
hina ástsælu skáldsagnapersónu Önnu í
Grænuhlíð.2 Það var fyrir einskæra tilviljun
að Montgomery rakst á klausuna í gamalli
dagbók og hófst hún handa við að móta
veröld Önnu, veröld sem snertir lesendur
um allan heim enn þann dag í dag.
Í upphafi bókaflokksins um Önnu í Grænuhlíð
eru gömlu hjónin úr dagbókarfærslu
Montgomery orðin að rosknu systkinunum
Marillu og Matthew Cuthbert. Anna
Shirley, munaðarleysinginn sem er óvart af
vitlausu kyni, hefur líkt og margar persónur
barnabókmenntanna misst foreldra sína á
sviplegan hátt. Foreldraleysið mótar hana
og birtist helst í óöryggi varðandi það hvort
hún sé virkilega elskuð. Heimili þessarar
óhefðbundnu fjölskyldu er Grænahlíð sem
staðsett er í Avonlea á Prins Eðvarðs-eyju
í Kanada. Grænahlíð á stóran sess í hjarta
Önnu og veit hún raunar engan stað betri í
heiminum öllum. Anna býr yfir miklum gáfum
og persónutöfrum líkt og svo margar aðrar
barnapersónur – svo sem hársystur hennar,
Lína Langsokkur og Annie úr samnefndum
söngleik. Montgomery lét þó ekki staðar
numið við barnæsku Önnu heldur skrifaði sex
bækur um sögupersónuna sem fylgja henni
frá því að hún kom í Grænuhlíð 11 ára gömul
og þar til hún er á fertugsaldri.
Þriðju bók Montgomery, Anna frá Eynni,
má skoða sem vendipunkt í bókaflokknum
í ljósi þess að þar skilur Anna við heim
barnæskunnar og heilsar fullorðinsárunum.
Ný íslensk þýðing Sigríðar Láru Sigurjónsdóttur
á bókinni kom út á síðasta ári en í ár er
öld frá upphaflegri útgáfu hennar. Slíkir
viðburðir gefa tilefni til að skoða bókaflokkinn
með þessa þróun í ævi persónunnar að
leiðarljósi. Hér verður litið til háskólaára
barnastjörnunnar frá Grænuhlíð og skoðað
hvernig höfundur sýnir fram á togstreitu
milli ólíkra hugmynda persóna í verkinu um
kyngervi, það er hvernig persónur í verkinu
takast á við væntingar samfélagsins um hið
líffræðilega kyn sem þær tilheyra.
Grænahlíð kvödd
Það heyrir til undantekninga að framhaldsverk
vinsælla skáldsagna njóti viðlíka hylli og
Sólveig Ásta Sigurðardóttir
Misdáð æviskeið Önnu Shirley
Ýmiss konar sjálfstæði í bókaflokknum um Önnu í Grænuhlíð
1 Lucy Maud Montgomery, The Story Girl Chronicles
(Extended Annotated Edition), Jazzybee Verlag,
Loschberg, 2013, bls. 4.
2 Sama heimild.