Börn og menning - 2015, Side 25
25Þriggja heima þroskasaga
leiðir lesandann inn í stærri og flóknari
atburðarás. Bókin er þó mun merkilegri en
þessi orð gefa til kynna. Höfundar leggja
gríðarlega vinnu í persónusköpun og í að búa
til sannfærandi söguheim sem hvergi finnst
glufa á og það tekst þeim prýðilega.
Nornir og tunglvarðliðar
Önnur bók þeirra, Draumsverð, kom svo
út árið 2013. Vinirnir þrír eru á flótta
ásamt leiðsögumanninum Nanúk og leita
nú nornarinnar Heiðvígar sem geymir
eitt innsiglanna. Þau leysa ýmsar þrautir
og lenda í alls kyns ævintýrum auk þess
að kynnast heiminum talsvert betur og
víkka sjóndeildarhring sinn. Í bókinni er
einnig hliðarsaga um tunglvarðliða
keisara Velajaborgar, sem rannsakar morð
yfirskjalavarðar borgarinnar og kemst á
snoðir um alveg hreint ótrúlegt samsæri.
Draumsverð er verk rithöfunda sem sem
hafa öðlast reynslu og unnið vel með hana
því sagan er afskaplega vel fléttuð og byggð.
Unglingarnir sem í fyrri bókinni voru fremur
barnalegir og síhræddir eru farnir að þroskast
og harðna. Höfundar leyfa persónunum að
halda einkennum sínum og gera mistök og
við það verða þær heilsteyptari og mannlegri
þannig að það er auðveldara fyrir lesendur
að tengjast þeim. Raunar er þessi áhersla
höfundanna á persónu- og umhverfislýsingar
um leið akkílesarhæll þessarar ágætu bókar,
því ýtarlegar lýsingar hægja á framvindu
sögunnar sem í raun hefði að meinalausu
mátt stytta um þriðjung.
Sundrung tvíhyggjunnar
Þriðja verkið í sagnabálknum er svo
Ormstunga, sem kom út fyrr á þessu ári.
Hún kom út í kilju en ekki innbundin
eins og hinar bækurnar, sem kemur sér
virkilega illa fyrir bókaskápinn minn, sem
er hrifinn af samhverfni og vill einsleitni
innan bókaflokka. Kiljuútgáfan er þó talsvert
þægilegri í meðförum en hinar tvær og
getur frekar fylgt hinum upptekna lesanda
á ferð hans um lífið. Ormstunga tekur upp
þráðinn þar sem frá var horfið í Draumsverði.
Við upphaf bókarinnar eru ungmennin þrjú
stödd hér og þar um heiminn og lenda í alls
kyns hremmingum þegar þau reyna að lifa af
á algjörlega ókunnum slóðum. Þroskasögu
þeirra vindur fram og hvert þeirra upplifir
heiminn á sinn hátt. Þeirri dýpt sem náðist í
persónusköpun í Draumsverði er haldið hér,
en tónn sögunnar verður dýpri og þróaðri
þegar við skoðum veröldina með augum
þessara þriggja ólíku sögupersóna.
Í bókinni verður baráttan milli góðs og ills
sem lagt var upp með í Hrafnsauga óskýrari
og mörkin dofna. Í stað þeirrar ofuráherslu
sem oft er lögð á tvíhyggjuna - einstaklingar
eru annað hvort góðir eða illir - snýst málið
um gjörðir og hvaða áhrif þær hafa. Þannig
er áherslan lögð á galdrana sem beita má
bæði til góðs og ills. Boðskapurinn virðist
vera að vald sé vandmeðfarið, að manni
beri að halda í mennskuna í sér með öllum
tiltækum ráðum. Eins og Úlfhildur Dagsdóttir
bendir á í dómi sínum um bókina, „Goð,
galdramenn og meinvættir“, sem birtist á
Bókmenntir.is, er líklega um áhrif frá Ursulu
Le Guin að ræða, en í sagnaflokki hennar,
Earthsea, sem hefur haft gríðarleg áhrif á
ritun fantasía fyrir ungmenni, er um svipað
andóf gegn tvíhyggjunni að ræða.
Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn
Brynjarsson komu með hvelli inn í íslenskt
bókmenntalíf. Þeir lögðu upp með þá
hugmynd að skrifa skemmtilegar fantasíur
sem unglingar og ungt fólk hefði gaman
af því að lesa. Hvorki meira né minna.
Bækurnar hafa þó farið langt fram úr þessum
væntingum höfunda sinna og standa eftir
sem mjög áhugaverður sagnabálkur þar sem
leikið er með hugmyndir um æsku, þrótt,
umhverfi og erfðir. Persónur bókanna þurfa
að horfast í augu við að geta ekki stjórnað
heiminum, sem er alltaf erfið lexía fyrir ungt
fólk. Með því að átta sig á því fá þær þann
kraft og þroska sem þarf til þess að geta lagt
lóð sín á vogarskálarnar í heimsátökunum -
þótt allt sé skilið eftir galopið í bókarlok og
enginn viti hvoru megin lóðin falla.
Þessir ágætu höfundar leika sér með
tungumálið af miklum krafti og búa til orð
þar sem þeirra er þörf - ég er sérstaklega
hrifin af orðinu manngálkn sem er orð yfir
skrímsli sem einungis eru til í þeirra heimi.
Bækurnar eru vel skrifaðar, þeim er vel ritstýrt
og vandað er til allra verka. Kjartan Yngvi og
Snæbjörn verða betri og betri með hverri
bókinni og það verður virkilega spennandi að
sjá hvernig sagan þróast í næstu bók, sem ég
vona að komi út sem fyrst.
Höfundur er íslensku- og
bókmenntafræðingur